Víkurfréttir - 19.01.2022, Blaðsíða 12
Heilsueflandi samfélag
vellíðan fyrir alla
Anna Sigríður Jóhannesdóttir,
BA sálfræði og MBA, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjanesbæ, aðalmaður í lýðheilsuráði.
Reykjanesbær er heilsueflandi
samfélag eins og öll sveitarfélögin
á Suðurnesjum, við gætum kallað
svæðið Heilsueflandi Suðurnes.
Meginmarkmið Heilsueflandi sam
félags er að styðja samfélög í að
skapa umhverfi og aðstæður sem
stuðla að heilbrigðum lífsháttum og
vellíðan allra íbúa.
Lýðheilsuráð í Reykjanesbæ lagði
fram lýðheilsustefnu árið 2021 og
áhersla er lögð á andlega, líkamlega
og félagslega heilsu. Aðgerðaáætlun
er klár fyrir stefnuna og þema og
áhersla árið 2022 verður næring.
Í vikunni mun lýðheilsuráð bjóða
íbúum Reykjanesbæjar upp á raf
ræna fræðslu með Geir Gunnari
Markússyni, næringarfræðingi, um
hollan lífsstíl, mátt matarins og
ávinninginn af því að lifa heilsu
samlegra lífi. Heilsan er okkar dýr
mætasta eignin og hún gleymist oft
í amstri dagsins og nútímamann
inum. Fjallað verður um leiðir að
sykurlitlum lífsstíl, hvort við þurfum
fæðubótarefni og hvernig á að versla
hollara í matinn. Sannkölluð heilsu
fræðsla fyrir alla íbúa sem vilja efla
heilsulæsi. Fræðslan, eða upptakan,
verður opin í nokkra daga og er að
finna á heimasíðum Reykjanesbæjar,
rnb.is, og Facebooksíðu Reykjanes
bæjar.
Allir grunnskólarnir eru heilsu
eflandi skólar og flestallir leikskól
arnir á svæðinu. Mjög margt jákvætt
hefur verið að gerast í heilsueflingu
í skólunum á síðustu árum en við
getum alltaf gert betur og þurfum
fleiri til að taka þátt í heilsueflingu
allra barna. Í Reykjanesbæ er boðið
upp á mjög fjölbreyttar íþrótta
greinar fyrir börn og einnig eru tóm
stundir vinsælar. Suðurnesin eru
með heimasíðu þar sem allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi en hægt
er að skoða úrvalið af íþróttum og
tómstundum í öllum sveitarfélögum
á slóðinni https://www.fristundir.is/
Frístundavefurinn hefur að geyma
upplýsingar um frístundastarf fyrir
alla aldurshópa og hægt er að skoða
framboð eftir aldri og eftir stað
setningu. Á vefnum má einnig finna
hugmyndir af skemmtilegum stöðum
fyrir útivist og samveru.
Einstakt tækifæri
Eiður Ævarsson.
Frambjóðandi í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Reykjanesbæ.
eiduraevarss.is
Reykjanesbær hefur mikla mögu
leika þegar kemur að atvinnutæki
færum hér á svæðinu. Það má
eiginlega segja að smjör drjúpi hér
af hverju strái þegar horft er til tæki
færa í atvinnulífinu. Verslun og þjón
usta ásamt ferðaþjónustu er undir
staða atvinnulífsins í Reykjanesbæ
og við getum byggt á þeim trausta
grunni í sókn okkar til fjölbreyttara
atvinnulífs.
Reykjanesbær býr svo vel að hér
er öll sú besta aðstaða og húsnæði
fyrir frumkvöðla, hugvits og ný
sköpun hvers konar. Ég vil að lögð
verði fram trúverðug áætlun um
hvernig við ætlum að byggja upp
atvinnu hér í bænum, áætlunin á að
vera með tímasettum markmiðum
og þeirri áætlun verði fylgt fast eftir.
Dæmi um slíka áætlun sem gekk
vel upp var hvernig Kadeco seldi
þær byggingar sem varnarliðið skildi
eftir sig.
Svæði fyrir erlenda aðila.
Nú er Kadeco komið með nýja
áætlun og framtíðarsýn sem vert
er að skoða. Framtíðarsýn um nýtt
skipulag og uppbyggingu á Ásbrúar
svæðinu en það er góður grunnur
fyrir áframhaldandi verðmæta
sköpun og fjölgun vel borgandi starfa
í nágrenni flugvallarins. Einnig er
Isavia er með stórhuga markmið á
Keflavíkurflugvelli og þær alþjóðlegu
tengingar sem honum fylgja. Þarna
er svæði sem gæti verið eftirsótt
fyrir erlenda aðila til að byggja upp
sína starfsemi.
Staðsetning
Nálægð við alþjóðaflugvöll og stór
skipahöfn er einstök staðsetning og
með því að hlúa betur að nýsköpun
opnast ný tækifæri og fjöldi verðmætra
starfa verða til. Þess vegna verðum
við að styðja við uppbyggingu innviða
fyrir slíka starfsemi á svæðinu og skoða
mætti samstarf einkaaðila og opin
berra aðila í því sambandi.
Nýsköpun
Nú eru komnar fram skemmtilegar
hugmyndir með nýtingu á álvers
húsinu í Helguvík og verður spenn
andi að sjá hvort það geti nýst sem
eins konar nýsköpunarmiðstöð hér í
Reykjanesbæ. Þar er verið að hugsa
um að vinna nýsköpun frá hugmynd
og yfir á framkvæmdastig með ein
stakri aðstöðu í frábæru húsnæði.
Einstakt tækifæri
Í þessum hugmyndum felst sú stað
reynd að hér drjúpi smjör af hverju
strái. Reykjanesbær hefur því ein
stakt tækifæri á að byggja upp
þjónustu í kring um atvinnulíf sem
gæti byggt á frumkvöðlastarfsemi,
nýsköpun og ferðaþjónustu.
Látum þetta tækifæri ekki framhjá
okkur fara.
Fyrstu ár barnanna
og góður kaffibolli
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir,
uppeldisfræðingur, flugfreyja og matarbloggari.
Ég hef nú búið í Reykjanesbæ í um
einn áratug og er ekki á leiðinni neitt
annað. Það er gott að búa í Reykja
nesbæ en gæti auðvitað verið betra.
Reykjanesbær er ört stækkandi
samfélag og þjónustan þarf að halda
í við stækkunina. Nú styttist í bæjar
stjórnarkosningar og þá fer maður
að velta fyrir sér hvað skipti mann
mestu máli og hvað betur mætti fara.
Ég eignaðist mitt fyrsta barn í
febrúar 2018. Þegar barn kemur við
sögu, fer maður að spá í hluti sem
maður spáði ekki jafn mikið í áður.
Auðvitað vill maður allt það besta
fyrir börnin sín og hugsanir koma
eins og hvar vil ég ala barnið mitt
upp, í hvaða leikskóla og skóla fer
barnið?
Það vita það kannski ekki allir en
flestir leikskólar hér í bænum taka
ekki börn inn nema þau hafi náð
tveggja ára aldri, með einstaka und
artekningum. Það segir okkur það
að börn fædd snemma á árinu eru
kannski heima fyrstu tvö og hálfa
árið ef þau fá ekki pláss hjá dagfor
eldri. Það er nefnilega alls ekki sjálf
gefið að fá pláss hjá dagforeldrum í
dag og þú þarft helst að hringja og
setja þig á margra blaðsíðna biðlista
um leið og það er pissað á prikið.
Þessu þarf að breyta.
Eftir að barn kemur í heiminn er
ekki óalgengt að spítalaheimsóknir
séu margar fyrstu mánuðina og árin.
Ég þekki það vel sjálf með tvö lítil
kríli með ofnæmi, exem, síendur
teknar eyrnabólgur. Hvað ætli ég
hafi þurft að keyra oft til Reykja
víkur í klukkutíma með grátandi
barn í aftursætinu til að geta talað
við barnalækni, háls, nef og eyrna
lækni eða ofnæmislækni?
Þessu þarf að breyta.
Ég vil að hér í Reykjanesbæ eigi að
vera hægt að tryggja öllum börnum
dagvistun að loknu fæðingarorlofi og
að hér sé að sjálfsögðu barnalæknir
á vakt, alla daga.
Svo vil ég í lokin líka nefna það
að það væri auðvitað frábært að
fá hollari skyndibitastaði og gott
kaffihús í bæinn, að ekki sé minnst
á eins og eina glæsilega mathöll eins
og til dæmis hefur verið reist á Sel
fossi – en tölum um það næst.
Skilaboð frá heilsugæslu HSS
Ágætu Suðurnesjabúar,
við á heilsugæslunni höfum fengið
töluverða gagnrýni undanfarna
daga vegna aðstöðu og skipulags
í Covidsýnatöku á Iðavöllum 12a.
Við erum að fara í gegnum
óvenjulega tíma þar sem verk
efnin eru stór sem okkur eru falin
og virðist ekkert lát á. Við reynum
þó að gera þetta eins vel og okkur
er unnt án þess að þurfa að skerða
þjónustu á heilsugæslustöðinni á
meðan.
Fjöldi þeirra sem fá strikamerki í
sýnatöku á hverjum fimmtán mín
útum ræðst af því sem húsnæðið
og aðkoma þola.
Allir sem fá strikamerki í ein
kennasýnatöku fá nákvæma tíma
setningu í sýnatökuna. Skipulagið
hjá okkur miðast við þær tímasetn
ingar. Þegar fáir mæta í uppgefinn
tíma fer skipulagið úr skorðum og
langar raðir myndast.
Þeir sem koma í sýnatöku eftir
sóttkví eða smitgát fá ekki ákveðna
tímasetningu en geta mætt á opn
unartíma. Skipulagið hefur and
rými fyrir þá, ef aðrir mæta á þeim
tímum sem þeim var úthlutað.
Opið er til kl. 11:30 á virkum
dögum. Ef þeir sem eru að koma í
sýnatöku eftir sóttkví eða smitgát,
koma að sýnatökustað og sjá langar
raðir má skreppa frá og koma aftur
fyrir kl. 11:30.
Mikilvægt er að þeir sem eru
að fara í einkennasýnatöku mæti
á þeim tíma sem skilaboðin segja
til um.
Öll sýni fara í sömu ferð á veiru
fræðideildina.
Ágætu Suðurnesjabúar, vinsam
lega hjálpið okkur að láta þetta
ganga vel. Starfsfólkið reynir sitt
allra besta í þessum erfiðu að
stæðum.
Við erum öll í þessu saman.
Með vinsemd og virðingu,
heilsugæsla HSS.
Val á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins
Andri Örn Víðisson,
formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjanesbæ.
Þann 20. janúar mun fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ
koma saman til að taka ákvörðun
um hvaða leið verður viðhöfð
við val á framboðslista flokksins
til sveitarstjórnarkosninga í vor.
Stjórn fulltrúaráðsins mun leggja
til að efnt verði til prófkjörs enda
rík hefð fyrir því innan Sjálfstæðis
flokksins. Flokkurinn er breið
fylking fólks með fjölbreytta hæfni
og reynslu og það er mikilvægt að
það fái tækifæri til að gefa kost á
sér; alveg eins og það er mikilvægt
fyrir sjálfstæðismenn að fá tæki
færi til að velja frambjóðendur
flokksins með beinum hætti.
Það liggur fyrir að það verði
umtalsverðar breytingar á bæjar
stjórn Reykjanesbæjar í vor. Odd
vitar tveggja framboða eru komnir
á þing og dæmi er um að framboðs
listar sem buðu fram síðast munu
hverfa af sviðinu. Það eru því mikil
tækifæri fyrir öfluga einstaklinga
með hugsjónir til að taka þátt í að
móta samfélagið sitt með því að
taka þátt í sveitarstjórnarmálum
og þá sérstaklega í gegnum starf
Sjálfstæðisflokksins. Því hvet ég
allt sjálfstæðisfólk til að taka þátt
í kraftmiklu starfi flokksins og
alveg sérstaklega ef efnt verður til
prófkjörs. Þá er mikilvægt að sem
flestir taki þátt í slíkri lýðræðis
veislu til að ná fram besta mögu
lega framboðslista.
Í prófkjöri yrði kosið að minnsta
kosti um jafn mörg sæti og flokk
urinn á fulltrúa í bæjarstjórn og í
mesta lagi tvöfalt fleiri. Það er að
segja, að minnsta kosti þrjú og
mest sex efstu sætin. Það mun
kjörnefnd ákveða ákveða ásamt
nánari útfærslu og auglýsa eftir
framboðum. Almennar upplýsingar
um þessi mál og skipulagsreglur
flokksins er hægt að nálgast inn
á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins,
xd.is.
JÖFNUNARSTYRKUR TIL NÁMS
Umsóknarfrestur á vorönn 2022 er til 15. febrúar n.k.
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá Menntasjóði náms-
manna geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af
búsetu og er fyrir þá sem að stunda nám fjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili
og fjölskyldu
• sinni vegna náms).
• Akstursstyrkur (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili
• fjölskyldu fjarri skóla).
Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum á Mitt Lán
sem aðgengilegt er í gegnum heimasíðu okkar www.menntasjodur.is eða
island.is. Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur
um styrkinn á vef Menntasjóðs námsmanna (www.menntasjodur. is).
Menntasjóður námsmanna
Námsstyrkjanefnd
12 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár