Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2022, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 19.01.2022, Blaðsíða 14
NAFN: ALDUR: KATLA RÚN GARÐARSDÓTTIR 22 ÁRA TREYJA NÚMER: STAÐA Á VELLINUM: 7 LEIKSTJÓRNANDI MOTTÓ: SECOND PLACE IS JUST THE FIRST LOSER Ennþá stolt af því að vinna Skólahreysti Katla Rún hefur alla tíð leikið með Keflavík og á að baki tvo leiki með A landsliði Íslands auk fjölda leikja með yngri landsliðum. Katla er mikil keppnismanneskja og valdi körfuna fram yfir fimleika á sínum tíma, hún er í uppleggi vikunnar í Víkurfréttum. Hefurðu fasta rútínu á leikdegi? Ekki beint – en flestir dagar eru frekar svipaðir. Á leikdögum passa ég bara að næra mig vel, fæ mér hafragraut um morguninn og reyni að loka augunum í stutta stund eftir vinnu. Hvenær byrjaðir þú í körfu og af hverju valdirðu körfubolta? Ég byrjaði í körfu í kringum fimm ára aldur, var áður í fimleikum og valdi svo körfuna fram yfir þar sem ég var mun betri í körfu en fim- leikum. Átti marga vini sem æfðu körfu þannig það spilaði líka inn í. Hver er besti körfuboltamaður allra tíma? Michael Jordan. Hver er þín helsta fyrirmynd? Hef alltaf horft svolítið upp til stóru bræðra minna, Ásgeirs og Brynjars. Hvert er eftirminnilegasta atvikið á ferlinum? Minn fyrsti bikarmeist- aratitill í meistaraflokki árið 2017 er mjög eftirminnilegur. Leikurinn sjálfur og síðustu sekúndurnar í leiknum voru svakalega dramatískar og eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Hver er besti samherjinn? Daniela Wallen Morillo er nokkuð góð í körfubolta. Hver er erfiðasti andstæðingurinn? Hef mætt mörgum góðum leik- mönnum bæði hér heima og í landsliðsferðum, erfitt að velja ein- hverja eina. Hver eru markmið þín á þessu tímabili? Markmiðið er að vinna þann stóra í maí. Hvert stefnir þú sem íþrótta- maður? Stefni á að bæta mig sem leikmann og vinna titla með Keflavík. Hvernig væri fimm manna úrvalslið þitt skipað með þér? Ég ætla velja mitt Keflavíkur úr- valslið og tæki þar með mér Þór- önnu Kiku, Birnu Valgerði, Emelíu Ósk og Thelmu Dís. Fjölskylda/maki: Maki er Halldór Garðar, myndarleg- asti leikmaður karlaliðs Keflavíkur. Hvert er þitt helsta afrek fyrir utan körfuboltann? Myndi kalla það mikið afrek að vinna Skólahreysti, mér tókst það í 9. bekk í Heiðar- skóla. Ennþá stolt af því í dag. Áttu þér áhugamál fyrir utan körfuboltann? Finnst skemmtilegt að fylgjast með „skincare“ mynd- böndum og svo þetta klassíska að vera með vinum og fjölskyldu. Reyni að eyða sem mestum tíma með litlu systkinabörnunum mínum. Ef þú ætlar að gera vel við þig, hvað gerirðu? Tvennt sem kemur til greina, annað hvort að fara út að borða og njóta góðs matar eða þá að slaka virkilega vel á heima og horfa á þætti eða bíómyndir. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Lambahryggur eða lambalæri með góðu meðlæti getur ekki klikkað. Ertu öflug í eldhúsinu? Ætla ekki að fara svo langt að kalla mig öfluga en er mjög góð að gera mína „go to“ rétti. Það má segja að ég sé efnileg. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Enginn leyndur hæfileiki sem ég veit af allavega. Er eitthvað sem fer í taugarnar á þér? Get verið fljót upp í umferðinni ef fólk er að keyra undir hámarks- hraða, svo fer almennt neikvæðni og fýla í taugarnar á mér. Halldór Garðar Hermannsson er myndarlegasti leikmaður karlaliðs Keflavíkur ... og kærasti Kötlu. GOLFSVÍTA og glæsileg aðstaða Golfklúbbur Suðurnesja tók í notkun nýja og glæsilega inniæfingaað- stöðu um síðustu helgi. Aðstaðan er í gömlu slökkvistöðinni við Hringbraut í Reykjanesbæ og leysir af hólmi þá aðstöðu sem golf- klúbburinn hefur deilt undanfarin ár með Púttfélagi Suðurnesja í Íþróttaakademíunni við Sunnubraut. Sigurpáll Geir Sveinsson, íþrótta­ stjóri GS, sagði í samtali við Víkur­ fréttir að nýja aðstaðan væri mun rúmbetri en sú gamla og henti betur til golfæfinga. „Hér höfum við níu holu púttflöt og aðstöðu þar sem þrír geta slegið í net samtímis. Þá eru tveir golf­ hermar á staðnum, sá gamli og einn nýr og fullkominn sem er í stóru, lokuðu rými – það er hálfgerð svíta,“ segir Sigurpáll. „Þá er þarna aðstaða með sjón­ varpi, sófasetti og píluspjaldi fyrir félagsmenn en það er mjög gott fyrir félagsandann að hafa aðstöðu yfir vetrartímann þar sem félagar geta hist og fylgst með golfi í sjónvarpinu, spilað pílu eða bara spjallað saman.“ Þótt Golfklúbbur Suðurnesja sé nýbúinn að opna aðstöðuna í gömlu slökkvistöðinni þá er nú þegar búið að panta mikið í golfhermana segir íþróttastjórinn. „Það er augljóslega mikill áhugi á að komast í golf því nú þegar er búið að panta mjög mikið í hermana, sérstaklega þann nýja. Það geta allir pantað í golfhermi hjá okkur, sama hvort þeir eru félagar í GS eða ekki, en það er þó talsvert ódýrara tímagjald fyrir félagsmenn,“ sagði Sigurpáll að lokum. Nánari upplýsingar um tímapant­ anir er að finna á heimasíðu Golf­ klúbbs Suðurnesja, gs.is. Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Úrslit leikja og fréttir af íþrótta- viðburðum á Suðurnesjum birtast reglulega á vefnum vf.issport Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ prófaði nýja golfherminn hjá GS í vikunni. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Umhverfismiðstöð - Verkamaður/verkstjórn  Umhverfismiðstöð – Verkamaður Myllubakkaskóli - Kennari á miðstigi Ösp sérdeild - sérkennari/þroskaþjálfi Velferðarsvið - Ráðgjafaþroskaþjálfi Velferðarsvið - Heima- og stuðningsþjónusta Starf við liðveislu sport

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.