Víkurfréttir - 19.01.2022, Side 14
NAFN: ALDUR:
KATLA RÚN GARÐARSDÓTTIR 22 ÁRA
TREYJA NÚMER: STAÐA Á VELLINUM:
7 LEIKSTJÓRNANDI
MOTTÓ:
SECOND PLACE IS JUST THE FIRST LOSER
Ennþá stolt af því að vinna Skólahreysti
Katla Rún hefur alla tíð leikið með Keflavík og á að baki tvo leiki með A landsliði Íslands auk fjölda
leikja með yngri landsliðum. Katla er mikil keppnismanneskja og valdi körfuna fram yfir fimleika á
sínum tíma, hún er í uppleggi vikunnar í Víkurfréttum.
Hefurðu fasta rútínu á leikdegi?
Ekki beint – en flestir dagar eru
frekar svipaðir. Á leikdögum passa
ég bara að næra mig vel, fæ mér
hafragraut um morguninn og reyni
að loka augunum í stutta stund eftir
vinnu.
Hvenær byrjaðir þú í körfu og af
hverju valdirðu körfubolta?
Ég byrjaði í körfu í kringum fimm
ára aldur, var áður í fimleikum og
valdi svo körfuna fram yfir þar sem
ég var mun betri í körfu en fim-
leikum. Átti marga vini sem æfðu
körfu þannig það spilaði líka inn í.
Hver er besti körfuboltamaður
allra tíma? Michael Jordan.
Hver er þín helsta fyrirmynd?
Hef alltaf horft svolítið upp til stóru
bræðra minna, Ásgeirs og Brynjars.
Hvert er eftirminnilegasta atvikið
á ferlinum? Minn fyrsti bikarmeist-
aratitill í meistaraflokki árið 2017
er mjög eftirminnilegur. Leikurinn
sjálfur og síðustu sekúndurnar í
leiknum voru svakalega dramatískar
og eitthvað sem ég mun aldrei
gleyma.
Hver er besti samherjinn?
Daniela Wallen Morillo er nokkuð
góð í körfubolta.
Hver er erfiðasti andstæðingurinn?
Hef mætt mörgum góðum leik-
mönnum bæði hér heima og í
landsliðsferðum, erfitt að velja ein-
hverja eina.
Hver eru markmið þín á þessu
tímabili? Markmiðið er að vinna
þann stóra í maí.
Hvert stefnir þú sem íþrótta-
maður? Stefni á að bæta mig
sem leikmann og vinna titla með
Keflavík.
Hvernig væri fimm manna úrvalslið
þitt skipað með þér?
Ég ætla velja mitt Keflavíkur úr-
valslið og tæki þar með mér Þór-
önnu Kiku, Birnu Valgerði, Emelíu
Ósk og Thelmu Dís.
Fjölskylda/maki:
Maki er Halldór Garðar, myndarleg-
asti leikmaður karlaliðs Keflavíkur.
Hvert er þitt helsta afrek fyrir utan
körfuboltann? Myndi kalla það
mikið afrek að vinna Skólahreysti,
mér tókst það í 9. bekk í Heiðar-
skóla. Ennþá stolt af því í dag.
Áttu þér áhugamál fyrir utan
körfuboltann? Finnst skemmtilegt
að fylgjast með „skincare“ mynd-
böndum og svo þetta klassíska
að vera með vinum og fjölskyldu.
Reyni að eyða sem mestum tíma
með litlu systkinabörnunum mínum.
Ef þú ætlar að gera vel við þig,
hvað gerirðu? Tvennt sem kemur
til greina, annað hvort að fara út
að borða og njóta góðs matar eða
þá að slaka virkilega vel á heima og
horfa á þætti eða bíómyndir.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Lambahryggur eða lambalæri með
góðu meðlæti getur ekki klikkað.
Ertu öflug í eldhúsinu? Ætla ekki að
fara svo langt að kalla mig öfluga en
er mjög góð að gera mína „go to“
rétti. Það má segja að ég sé efnileg.
Býrðu yfir leyndum hæfileika?
Enginn leyndur hæfileiki sem ég
veit af allavega.
Er eitthvað sem fer í taugarnar á
þér? Get verið fljót upp í umferðinni
ef fólk er að keyra undir hámarks-
hraða, svo fer almennt neikvæðni
og fýla í taugarnar á mér.
Halldór Garðar Hermannsson er
myndarlegasti leikmaður karlaliðs
Keflavíkur ... og kærasti Kötlu.
GOLFSVÍTA
og glæsileg aðstaða
Golfklúbbur Suðurnesja tók í notkun nýja og glæsilega inniæfingaað-
stöðu um síðustu helgi. Aðstaðan er í gömlu slökkvistöðinni við
Hringbraut í Reykjanesbæ og leysir af hólmi þá aðstöðu sem golf-
klúbburinn hefur deilt undanfarin ár með Púttfélagi Suðurnesja í
Íþróttaakademíunni við Sunnubraut.
Sigurpáll Geir Sveinsson, íþrótta
stjóri GS, sagði í samtali við Víkur
fréttir að nýja aðstaðan væri mun
rúmbetri en sú gamla og henti betur
til golfæfinga.
„Hér höfum við níu holu púttflöt
og aðstöðu þar sem þrír geta slegið
í net samtímis. Þá eru tveir golf
hermar á staðnum, sá gamli og einn
nýr og fullkominn sem er í stóru,
lokuðu rými – það er hálfgerð svíta,“
segir Sigurpáll.
„Þá er þarna aðstaða með sjón
varpi, sófasetti og píluspjaldi fyrir
félagsmenn en það er mjög gott fyrir
félagsandann að hafa aðstöðu yfir
vetrartímann þar sem félagar geta
hist og fylgst með golfi í sjónvarpinu,
spilað pílu eða bara spjallað saman.“
Þótt Golfklúbbur Suðurnesja sé
nýbúinn að opna aðstöðuna í gömlu
slökkvistöðinni þá er nú þegar búið
að panta mikið í golfhermana segir
íþróttastjórinn. „Það er augljóslega
mikill áhugi á að komast í golf því nú
þegar er búið að panta mjög mikið
í hermana, sérstaklega þann nýja.
Það geta allir pantað í golfhermi hjá
okkur, sama hvort þeir eru félagar í
GS eða ekki, en það er þó talsvert
ódýrara tímagjald fyrir félagsmenn,“
sagði Sigurpáll að lokum.
Nánari upplýsingar um tímapant
anir er að finna á heimasíðu Golf
klúbbs Suðurnesja, gs.is.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Úrslit leikja og fréttir af íþrótta-
viðburðum á Suðurnesjum
birtast reglulega á vefnum
vf.issport
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri
í Reykjanesbæ prófaði nýja
golfherminn hjá GS í vikunni.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Umhverfismiðstöð - Verkamaður/verkstjórn
Umhverfismiðstöð – Verkamaður
Myllubakkaskóli - Kennari á miðstigi
Ösp sérdeild - sérkennari/þroskaþjálfi
Velferðarsvið - Ráðgjafaþroskaþjálfi
Velferðarsvið - Heima- og stuðningsþjónusta
Starf við liðveislu
sport