Víkurfréttir - 23.02.2022, Blaðsíða 4
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Þjónustuaðili fyrir:
Volvo - Ford - Mazda - Peugeot Citroen - Suzuki
Alhliða bílaverkstæði
og dekkjaþjónusta
þar sem þjónustan er í fyrirrúmi
Iðjustíg 1, 260 Reykjanesbæ
421 4620
bilaverk.thoris@gmail.com facebook.com/Bílaverkstæði-Þóris
Alhliða bifreiðaverkstæði
sem býður einnig upp á dekkjaþjónustu
ÞJÓNUSTAN Í FYRIRRÚMI Á BÍLAVERKSTÆÐI ÞÓRIS
Segja HSS hafa starfað í eitruðu umhverfi
ómálefnalegrar umræðu í áratugi
Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur sent frá sér
yfirlýsingu vegna þess sem hún segir ómálefnalega umfjöllun. Í yfirlýsing-
unni segir m.a.: „Stofnunin hefur um áratugi starfað í eitruðu umhverfi
ómálefnalegrar umræðu sem er ein orsök helsta vandans sem við glímum
við, mönnunarvandans. Linni þessum árásum ekki verður vandinn sem
við reynum samhent að leysa einfaldlega enn verri.“
Hér er yfirlýsingin í heild sinni: Frá
því að núverandi framkvæmdastjórn
tók til starfa hefur verið unnið með
starfsfólki að breytingum. Árið 2020
markaði starfsfólk HSS stefnu til
næstu ára sem kynnt var opinber-
lega. Síðan þá hefur verið unnið
markvisst eftir henni og nú þegar er
sú vinna farin að skila árangri.
Breytingarnar miða allar að því að
bæta getu stofnunarinnar til að veita
þjónustu í þágu samfélagsins. Tekist
hefur að byggja upp samheldið teymi
fagfólks og stjórnenda við erfiðar að-
stæður svo sem undirmönnun og að-
stöðuleysi. Starfsfólk HSS tekst á við
þessi verkefni vitandi að stofnunin
hefur um áratugi starfað í eitruðu
umhverfi ómálefnalegrar umræðu
sem er ein orsök helsta vandans sem
við glímum við, mönnunarvandans.
Linni þessum árásum ekki verður
vandinn sem við reynum samhent
að leysa einfaldlega enn verri.
Gagnrýni á þjónustu opinberra
stofnana er þeim öllum nauðsynleg.
Við, eins og aðrir víkjum okkur ekki
undan henni. Hún verður hinsvegar
að vera málefnaleg og fara í réttan
farveg.
Mönnunarvandi er vel þekktur í
heilbrigðiskerfinu, ekki síst á lands-
byggðinni. Ofan á hann bætist ómál-
efnaleg gagnrýni á opinberum vett-
vangi sem fær starfsfólk til að hug-
leiða þakklátari störf. Þetta leiðir til
þess að erfiðlega gengur að manna
stöður í framlínu sem veldur því
að ekki er hægt að veita eins mikla
þjónustu og við gætum ef við værum
fullmönnuð.
Segja má að við séum föst í víta-
hring neikvæðrar umræðu sem ekki
hefur tekist að rjúfa í áratugi. Í stað
þess að vinna með stofnuninni hafa
sumir valið að fara þá leið að gagn-
rýna starfsfólk hennar ómálefnalega
og vinna þannig gagngert gegn upp-
byggingu. Sú orðræða er starfsfólki
afar erfið og hefur bein áhrif á það
hversu aðlaðandi HSS er sem vinnu-
staður, bæði fyrir núverandi og fram-
tíðar starfsfólk. Afleiðingarnar hafa
verið þær að við getum ekki veitt
eins mikla þjónustu og samfélagið
þarf.
Tvær leiðir eru færar fyrir sam-
félagið á Suðurnesjum. Sú fyrri er
sú sem haldið hefur verið á lofti í
áratugi, leið ómálefnalegrar gagn-
rýni. Slíkt niðurrif getur aðeins
spillt fyrir því að okkur sé kleift að
rækja hlutverk okkar eins vel og
hægt er. Seinni leiðin er að fara að
fordæmi starfsfólks, sem í dag vinnur
samhent að því að byggja upp heil-
brigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Við getum öll verið sammála um
að góð heilbrigðisþjónusta er undir-
staða hvers samfélags. Það er sam-
eiginleg ábyrgð okkar allra að taka
þátt í að hlúa að henni. Við hvetjum
alla til þess að leggja sitt af mörkum
til að styðja við bakið á okkar starfs-
fólki og hjálpa okkur þannig að efla
heilbrigðisþjónustu á svæðinu.
Framkvæmdastjórn HSS.
Skipuð verði stjórn Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja með aðkomu heimamanna
Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir áskorun Öld-
ungaráðs Suðurnesja að skipuð verði stjórn Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja með aðkomu heima-
manna. Öldrunarráð sendi heilbrigðisráðherra erindi
þess efnis þann 27. janúar síðastliðinn.
Í erindinu skorar stjórn Öldungaráðs Suðurnesja
skorar á heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson,
að beita sér fyrir því að sett verði á laggirnar sérstök
fimm manna stjórn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Stjórnin verði skipuð tveimur fulltrúum frá Reykja-
nesbæ og sveitarfélögin Grindavík, Suðurnesjabær og
Vogar tilnefni einn fulltrúa hvert. Hlutverk stjórnar-
innar verði að fylgjast með rekstri og móta framtíðar-
stefnu í samráði við yfirstjórn HSS.
Opið er fyrir skráningu í prófkjör í Árborg og Reykjanesbæ.
Framboðsfrestur er til 1. mars kl. 15:00. Niðurstöður
atkvæðagreiðslu prófkjöra eru áætlaðar 12. mars 2022.
Skráning fer fram á x.piratar.is
PÍRATAR Í SUÐURKJÖRDÆMI AUGLÝSA
EFTIR ÞÁTTTAKENDUM Í PRÓFKJÖR Í:
• ÁSAHREPPI • BLÁSKÓGABYGGÐ • FLÓAHREPPI • GRÍMSNES- OG
GRAFNINGSHREPPI • GRINDAVÍKURKAUPSTAÐ • HRUNAMANNAHREPPI •
HVERAGERÐISBÆ • SVEITARFÉLAGINU ÁRBORG • MÝRDALSHREPPI •
RANGÁRÞINGI EYSTRA • RANGÁRÞINGI YTRA • REYKJANESBÆ •
SUÐURNESJABÆ • SKAFTÁRHREPPI • SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHREPPI •
SVEITARFÉLAGINU HORNAFIRÐI • SVEITARFÉLAGINU VOGAR •
SVEITARFÉLAGINU ÖLFUS • VESTMANNAEYJABÆ
PRÓFKJÖR
Markmiðið er að bjóða fram Pírata í sem flestum sveitarfélögum.
Öll sem hafa áhuga geta haft samband við Álfheiði (alfa@piratar.is)
eða Margréti (margthor@piratar.is) varðandi hvernig best er að bera
sig að þátttöku. Prófkjörsreglur og framboð verða auglýst á
kosningavef Pírata — x.piratar.is.
HAFÐU ÁHRIF Á GANG MÁLA Á ÞÍNUM HEIMASLÓÐUM
4 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM