Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2022, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 23.02.2022, Blaðsíða 9
á timarit.is ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG EYJÓLFUR GÍSLASON 2. SÆTI Prófkjör Sjálfstæðisflokksins Í reykjanesbæ 26. febrúar Fögnum fjölbreytileika Reykjanesbæjar Ég óska eftir stuðningi ykkar í 2. sæti Hugsum út fyrir boxið, hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér! Eitt af því sem lengi hefur háð okkur íbúum Reykjanesbæjar er áhættan af því að hafa öll eggin í sömu körfunni þegar kemur að at- vinnumálum. Kjölfestan í atvinnu- málum okkar hefur gjarnan verið einn til tveir mjög stórir vinnu- staðir, til dæmis herinn, flugstöðin og sveitarfélagið. Þetta þýðir að höggið verður enn meira þegar á móti blæs og illa árar í einni grein eða breytingar verða eins og þegar herinn fór og Covid skall á. Ólíkt mörgum öðrum sveitar- félögum liggja óþrjótandi tækifæri í túnfætinum hjá okkur. Hvar annars staðar á landinu er til staðar allt í senn; nóg af landsvæði, stórskipa- höfn og alþjóðaflugvöllur? Það gerist hins vegar ekkert af sjálfu sér í þessu frekar en öðru. Við eigum að vera óhrædd að kalla til skrafs og ráðagerða öfluga frum- kvöðla og fyrirtæki sem hugsa út fyrir boxið og geta skapað hér örugg og fjölbreytt störf. Þau þurfa ekki öll að tengjast stóriðju! Vinnumarkaðurinn er að breyt- ast mjög hratt, einyrkjar og smærri fyrirtæki blómstra sem aldrei fyrr. Sú leið að vera eigin herra hentar æ fleirum og einstaklingsframtakið skapar verðmæti fyrir samfélagið allt. Með því að nýta mannauðinn sem í bænum býr og búa fyrir- tækjum gott umhverfi náum við að styrkja enn frekar grunnstoðir okkar og þjónustu. Drögum að öflugt fólk og njótum sjálf búsetu í okkar góða sveitar- félagi. Njótum þess að búa í bæ þar sem fólk getur fengið meira fyrir launin sín og átt fleiri gæðastundir í sólarhringnum, fjarri ys og þys stórborgarinnar en samt svo nálægt. Ég býð mig fram í 3ja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar í vor og óska eftir þínum stuðningi. Helga Jóhanna Oddsdóttir. FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 9

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.