Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2022, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 23.02.2022, Blaðsíða 8
Sjötíu ára afmæli Myllubakkaskóla var fagnað 17. febrúar þegar nemendur skólans söfnuðust saman framan við aðalinngang skólans og sungu afmælis- söng fyrir skólann sinn. Stundin var nokkuð óvenjuleg í sögu skólans, því síðustu mánuði hefur skólinn verið lokaður og nemendur hans stundað nám sitt á víð og dreif um Reykjanesbæ. Ástæðan er alvarlegt tilfelli myglu sem fannst víða í skólabyggingunni. Þegar afmælissöngurinn hafði verið sunginn var nemendum, kennurum og öðru starfsliði stillt upp í mynda- töku í tilefni dagsins. Þegar myndum hafði verið smellt af var blásið til dansveislu á skólalóðinni. Nú hefur hins vegar elsti hluti skólans verið opnaður aftur og yngstu nemendurnir hafa hreiðrað um sig í endurbættum skólastofum. Nýtingu skólans hefur jafnframt verið breytt og þar sem voru kennarastofur eru í dag skólastofur. Kennararnir fá í staðinn inni í tölvustofunni. Fram- kvæmdir halda svo áfram í öðrum rýmum skólans við að fjarlægja myglu og fyrirbyggja frekara smit. Meðal annars þarf að rífa hluta skólans og endurbyggja. Saga Myllubakkaskóla eða Barna- skóla Keflavíkur nær til ársins 1897. Árið 1948 var hafist handa við bygg- ingu skólans á Sólvallagötu og var hann vígður 17. febrúar 1953. Vegna mikilla fólksfjölgunar þurfti að byggja við skólann og var nýbyggingin tekin í notkun 1967. Árið 1973 varð aftur aukning nemenda vegna gossins í Vestmannaeyjum og var þá brugðið á það ráð að kaupa þrjár lausar kennslustofur, svonefnda „kálfa“, og koma þeim fyrir við skólann. Árið 1987 var tekið til við að byggja við Myllubakkaskóla og var sú bygging tekin í notkun 1988. Árið 1998 var hafist handa við að byggja Heiðarskóla og haustið 1999 er 1. -10. bekk skipt niður á skólana þrjá í Keflavík. Sumarið 1999 var hafist handa við að stækka Myllubakkaskóla til að hægt sé að einsetja hann. Skólinn varð einsetinn haustið 2000. 70 ára afmæli Myllubakkaskóla fagnað við sérstakar aðstæður Nemendur og starfsfólk Myllubakkaskóla stillti sér upp í mynd framan við skólann á afmælisdaginn. VF-myndir: Hilmar Bragi Nemendur Myllubakkaskóla sungu fyrir skólann sinn. Sönginn má heyra í myndskeiði í rafrænni útgáfu Víkurfrétta. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Háaleitisskóli - Kennari í námsver Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili fatlaðra barna Ævintýrasmiðja - Sumarstarf Ævintýrasmiðja - Umsjónarmaður Vinnuskóli - Yfirflokkstjóri skrifstofu Vinnuskóli - Flokkstjórar Vinnuskóli - Sérverkefna flokkstjóri Vinnuskóli - Skrúðgarða flokkstjóri Vinnuskóli - Yfirflokkstjóri í virku eftirliti Starf við liðveislu 8 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.