Víkurfréttir - 23.02.2022, Blaðsíða 24
Mundi
Þá er gríman fallin og þessi
fína motta komin í ljós ...
Systkinin Már Gunnarsson og
Ísold Wilberg, sem skipa dúettinn
Amarosis, eru fyrst á svið á fyrra
undanúrslitakvöldi Söngvakeppn-
innar sem haldið verður næsta
laugardagskvöld. Fimm lög keppa
og komast tvö í úrslitaþáttinn sem
verður 12. mars. Már og Ísold flytja
„Don’t you know (íslenska út-
gáfan)“.
„Það er brjálað að gera en þetta er
ógeðslega skemmtilegt,“ segir Már
Gunnarsson um þátttöku þeirra í
Söngvakeppninni en Víkurfréttir
náðu tali af Má og Ísold á milli æf-
inga í byrjun vikunnar. „Fyrir okkur
er þetta ævintýri að komast inn og
það er ákveðinn sigur út af fyrir
sig,“ segir Ísold og bætti við: „Að fá
að geta þetta saman eru bestu verð-
launin.“
„Lagið „Don’t you know“ var
samið fyrir rúmlega ári og uppruna-
lega planið var að gefa það út síðasta
sumar, við vorum tilbúin með mix
og master þegar við ákváðum að
senda það inn í Söngvakeppnina.
Þegar lagið var valið til þátttöku
sömdum við íslenskan texta og
svo kom að því að finna íslenskan
titil sem reyndist vera basl þar sem
okkur fannst flestar hugmyndirnar
hálf lúðalegar,“ segja þau og því hafa
enska og íslenska útgáfan sama nafn.
Lagið varð til í ástarsorg og hug-
myndin að textanum kom til Más
um leið og hann stakk sér til sunds á
sundæfingu í fyrra. Lagið var einnig
unnið öðruvísi en öll önnur lög sem
þau hafi komið að. Fyrst var byrjað á
kórusnum og svo var það unnið aftur
á bak. „Við erum mjög spennt að fara
með þetta á svið á laugardaginn. Það
er flott að við séum fyrst á svið og
setjum standardinn fyrir showið,“
segir Már Gunnarsson.
Lenti í lokasprettinum (vonandi!) á
covid halanum ásamt svo mörgum
öðrum. Milli þess sem ég reyndi
að sinna fjarvinnu, lágmarks heim-
ilisstörfum og Covid sýktum betri
helmingi þá nýtti ég heilaþokuna
í að hámhorfa þættina Dopesick.
Algjört meistaraverk og leikurinn
stórbrotinn. Í stuttu máli fjalla þætt-
irnir um bandaríska lyfjafyrirtækið
Purdue Pharma og ógeðfellda mark-
aðssetningu þess á lyfinu Oxycontin.
Mæli því með áhorfi!
Ef ég hefði ekki verið meðvituð
um að þættirnir væru byggðir á
sönnum atburðum hefði upplifun
áhorfsins virkað sem fjarstæðu-
kenndur skáldskapur, eða eins og
kaninn segir: „You can’t make this
shit up!“. Minnimáttarkennd eins
fjölskyldmeðlims í forríkri og veru-
leikafirrtri fjölskyldu sem vildi slá
hinum við skóp gríðarlegan ópíóða-
faraldur í Bandaríkjunum. Afleið-
ingarnar eru meðal annars þær að
frá árinu 1999 hafa um ein milljón
Bandaríkjamanna látið lífið af of
stórum skammti eiturlyfja og um
70% þeirra vegna ofneyslu ópíóða.
Til að setja þetta í samhengi þá er
það svipaður fjöldi og látist hefur úr
Covid-19 í Bandaríkjunum frá upp-
hafi þess faraldurs.
Með blekkingum tókst umræddu
lyfjafyrirtæki, Purdue Pharma,
að sannfæra lyfjastofnun Banda-
ríkjanna (FDA), sem almennt þykir
ströng, um að ópíóðalyfið Oxycontin
væri ekki ávanabindandi vegna
hæglosandi eiginleika þess. Það
var því háð minni takmörkunum
sem galopnaði lyfjamarkaðinn fyrir
fyrirtækið árið 1995. Í kjölfarið
komu fljótlega í ljós ávanabindandi
eiginleikar lyfsins. En í stað þess
að bregðast við því þá juku stjórn-
endur áherslur á söluna í þeim eina
tilgangi að hagnast sem mest á lyfinu
áður en það yrði gripið inn í. Mann-
legt eðli í sinni hráustu útgáfu. Af-
leiðingarnar eru að árið 2019 mis-
notuðu yfir tíu milljón Bandaríkja-
menn ópíóðalyf, sem er þó lækkun
frá þrettán milljónum frá árinu 2015,
með tilheyrandi dauðsföllum vegna
ofneyslu og afleiðingum fyrir að-
standendur. Óheiðarleiki og græðgi
eru sannarlega banvæn blanda.
Þættirnir eru á aðra röndina
kennslubókarefni í markaðssetn-
ingu lyfja en á hina röndina skóla-
bókardæmi hvað gerist þegar græðgi,
veruleikafirring, spilling og sofandi
eftirlitsstofnanir fara saman. Hvernig
viðbjóðslega rík fjölskylda tortímdi
lífi milljóna fjölskyldna til að eignast
enn fleiri milljarða. Það tók 24 ár að
stöðva Purdue Pharma sem fór loks
í gjaldþrot 2019.
Fær mann til að hugsa hversu mik-
ilvægt það er að vera með gagnrýna
og sjálfstæða hugsun. Að hafa virkar
og sjálfstæðar eftirlitsstofnanir. Og
síðast en ekki síst hversu mikilvægir
frjálsir og óháðir fjölmiðlar eru.
Hvert erum við komin þegar frétta-
mönnum er ógnað af lögreglunni og
þeir eru yfirheyrðir með stöðu sak-
bornings?! Svo er Donald Trump
búinn að hleypa af stokkunum nýrri
fréttaveitu, Truth Social. Hlýtur að
vera eitthvað grín. Trump og Truth
í sömu setningunni. Nú er ég hætt
áður en ég missi endanlega trúna á
mannkyninu.
BANVÆN BLANDA
LO
KAO
RÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR
Ævintýri og ákveðinn
sigur útaf fyrir sig
Már og Ísold fyrst á svið í Söngvakeppninni á laugardaginn
LJÓSMYND: ZOFIA DROZYNSKA