Víkurfréttir - 23.02.2022, Blaðsíða 23
Bráðvantar íbúð eða herbergi
til leigu.
Sími 775 8561. Guðmundur
Sigurðsson. Er reglusamur.
SMáauglÝSiNgar
„Ég hafði komið oft áður í frí með
fjölskyldunni og svo var ég líka búin
að sjá nokkrar stelpur frá Íslandi
taka stökkið til Ameríku í háskóla-
boltann. Ég hugsa að ég hafi verið
svona fjórtán, fimmtán ára þegar
ég fór að hugsa um það að alvöru
að komast í skóla,“ segir Thelma.
Thelma segir nokkra skóla hafa
haft samband við hana varðandi
nám en Ball State University hafði
samband við hana í desember 2017.
„Ég talaði við þjálfarana og leist mjög
vel á, ég fór svo í heimsókn í maí og
var mætt út í ágúst,“ segir hún.
Thelma var, að eigin sögn, mjög
feimin og segir hún að árin hennar
í háskólanum hafi hjálpað henni að
„brjótast út úr skelinni“ að einhverju
leyti. „Það er varla annað hægt þegar
maður er í kringum Kanann sem
elskar svokallað „smalltalk,“ segir
hún.
Þá segir hún upplifun sína í
skólanum vera góða og að smæð
samfélagsins hafi hjálpað henni að
kynnast fólki. „Muncie er nokkuð
lítill bær og flestallt tengist há-
skólanum að einhverju leyti,“ segir
hún og bætir við: „Það er auðvelt
að kynnast fólki í samfélaginu, sér-
staklega þeim sem hafa áhuga á
körfunni og er gaman að sjá hversu
vel þau fylgjast með manni.“ Hún
segir upplifunina vera nokkuð líka
því sem maður sér í bandarískum
bíómyndum, svo sem klappstýrur
og partý.
Þúsundasta stigið
Árangur Thelmu í körfuboltanum
leynir sér ekki en hún hefur byrjað
hvern einasta leik með liðinu síðan
hún byrjaði í skólanum. Aðspurð
hvernig henni hefur gengið að spila
með liðinu segir hún: „Fyrir mig per-
sónulega er búið að ganga mjög vel.
Í byrjun árs skoraði ég þúsundasta
stigið mitt.“
Lið Thelmu er í fjórða sæti í deild-
inni og liðið keppist nú um sæti í
útsláttarkeppni NCAA sem haldin
verður í Cleveland en aðeins átta lið
komast þar að. „Við erum að spila
mjög hraðan og skemmtilegan bolta,
þannig ég er spennt fyrir restinni af
tímabilinu og vona að við komumst
alla leið til Cleveland,“ segir Thelma.
Liðið hefur síðustu tvö ár dottið út
í fyrsta leik í Cleveland en Thelma
segir að nú sé kominn tími til að
komast lengra.
Öðruvísi áherslur
Að mati Thelmu er körfuboltamenn-
ingin úti öðruvísi en hér heima. „Mér
finnst boltinn vera hraðari og leik-
mennirnir sterkari og fljótari en því
sem ég var vön.“
Þá segir hún að lögð sé mun meiri
áhersla á skipulag á körfuboltaæf-
ingum en á Íslandi. „Æfingarnar eru
lengri og meira „intense“, allt er mjög
vel planað og varla mínúta sem fer
til spillis,“ segir hún. Þá nefnir hún
að tæknin sem sé til staðar sé mun
meira notuð í tengslum við æfingar:
„Við notumst líka mikið við mynd-
bönd, bæði af okkur sjálfum og og
þeim sem við erum að spila við, til
að þekkja allt sem andstæðingurinn
vill gera ... sem ég þekkti varla þegar
ég spilaði heima.“
Þurfti að redda sér
Thelma er á sínu fjórða ári í
skólanum en hún segir það hafa
komið með ákveðnum áskorunum.
„Stærsta áskorunin mín við að hafa
flutt hingað út er að þurfa að redda
mér og græja hlutina sjálf. Ég var ein
af þeim sem miklaði fyrir mér að
hringja og panta pítsu þannig að það
var aldeilis veggurinn sem ég lenti á
þegar ég þurfti að fara að hringja í
lækna, setja nafnið mitt á rafmagns-
reikninginn og græja skattinn,“ segir
Thelma. Hún segir Covid einnig hafa
haft áhrif á upplifun sína í skólanum.
„Venjulega hefur maður bara fjögur
ár til þess að keppa þegar maður er
í háskólaboltanum en vegna Covid
fékk allt íþróttafólk eitt aukaár.
Mastersnámið sem ég er í er tveggja
ára prógram þannig að þetta Covid-
ár hentaði mér mjög vel því að ég
næ að klára það með körfunni og út-
skrifast vorið 2023,“ segir Thelma.
Thelma stefnir að því að út-
skrifast úr Ball State háskólanum
vorið 2023 og flytja aftur til Íslands
eftir útskrift. Aðspurð hver markmið
hennar fyrir framtíðina séu segir
hún: „Varðandi framtíðina er margt í
lausu lofti einhvern veginn. Eina sem
ég veit er að ég verð að gera eitthvað
í kringum körfuboltann. Allt annað
verður eiginlega bara að koma í ljós.“
Skoraði sitt
þúsundasta stig
Thelma Dís Ágústsdóttir er 23 ára Keflavíkurmær sem er
búsett í Muncie í Indiana. Hún var lykilmaður í meistaraliði
Kefla víkur og varð meðal ann ars tvö fald ur meist ari með liðinu
2016–2017 og var hún val inn besti leikmaður úr vals deild ar
kvenna á sama tímabili. Thelma, sem er með BS gráðu í
tryggingastærðfræði, stundar nú meistaranám í tölfræði við
Ball State University og er í körfuboltaliði skólans. Hún segir
Bandaríkin alltaf hafa heillað sig en hún var aðeins fjórtán ára
gömul þegar hún fór að stefna að námi þar.
Ég var ein af þeim
sem miklaði fyrir
mér að hringja og panta pítsu
þannig að það var aldeilis
veggurinn sem ég lenti á
þegar ég þurfti að fara að
hringja í lækna, setja nafnið
mitt á rafmagnsreikninginn
og græja skattinn ...
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
Einnig birt á
www.naudungarsolur.is
Uppboð mun byrja á Vatnsnes-
vegi 33, 230 Keflavík, þann 3.
mars nk., kl. 12:15, á eftirfar-
andi ökutækjum sem hér segir:
AYP13 DK390 KO484 NY053
SVF31 TPJ05 TTP26 UTY39
UYY38 VT711
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
22. febrúar 2022
uPPbOð
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 23