Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.05.2022, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 04.05.2022, Blaðsíða 12
„Mér hefur brugðið fyrir á skjánum hér og þar undanfarið og það skrifast að ég held mest á guð og lukkuna, ljúfa strauma kosmósins, að ég hafi rambað á það að vera réttur maður á réttum stað. Svona er þetta oft, starf leikarans, maður rembist eins og rjúpa við staur án ár- angurs og svo þegar maður á síst von á því flæðir allt af stað,“ segir Keflvíkingurinn Davíð Guðbrandsson, leikari, en hann hefur verið nokkuð reglulega á sjónvarpsskjánum í vetur. Hann var t.d. meðal leikara í seríunni Ófærð og Verbúðinni en báðar nutu þær mikilla vinsælda. Ritstjórinn Hvernig var að vinna að þessum verkefnum. Þú tókst þig vel út sem ritstjóri dagblaðs í Verbúðinni. „Ég var svo heppinn að landa hlut- verki Jónasar Kristjánssonar heitins, fyrrverandi frétta- og ritstjóra og eins áhrifamesta manns í sögu ís- lenskrar blaðamennsku. Í bókinni Frjáls og óháður fer Jónas yfir feril sinn og segir úgefandi hans í kynningu bókarinnar: „Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, er þekktur fyrir að láta skoðanir sínar í ljós og hrista upp í fólki. Hefur þrí- vegis verið rekinn úr starfi fyrir að segja sannleikann.“ Þótt hlutverk mitt væri lítið vildi ég gera því skil af virðingu og heil- indum, án þess að skopskæla hans persónu eða fara í nokkursskonar eftirhermuleik. Ég undirbjó mig vel, las mikið og hlustaði og horfði á viðtöl við hann. Hann var með sérstakan talanda og ég leyfði mér að láta örla á honum í túlkun minni en þó ekki um of. Ég safnaði saman þeim myndum sem ég fann af honum frá þessum árum og það var svo einn okkar allra fremsti gervahönnuður, Suðurnesjakonan Kristín Júlla Krist- jáns, sem rak smiðshöggið á útlit minnar persónu og á hún mikið lof skilið fyrir það afrek sem hún vann í þessi seríu sem gerist á afar litríkum tímum í okkar menningarsögu. Ver- búðin virðist hafa snert sameiginlega þjóðartaug okkar Íslendinga og ég enn eftir að hitta þá manneskju sem ekki ber þáttaröðinni vel söguna.“ Sorgleg en sæt Hvað geturðu sagt okkur um nýj- asta verkefnið, BERDREYMI? „Berdreymi er önnur kvikmynd leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar, leikstjóra Hjarta- steins, og er hann einnig handrits- höfundur. Eftir að hafa fengið símtal þar sem hann bauð mér hlutverk föður Adda, einnar aðalpersónu myndarinnar, fékk ég handritið sent til aflestrar. Ég settist niður, hóf lestur og gat ekki lagt það frá mér. Ég get án efa sagt að kvikmynda- handritið er það allra besta sem ég hef lesið hingað til. Sagan gerist á óræðum tíma rétt fyrir aldamót og fjallar um ungan vinahóp sem reynir að gera sitt besta í þeim aðstæðum sem þeir fæðast inn í, aðstæður sem við könnumst öll við úr okkar nærumhverfi, og oft á tíðum er það fullorðna fólkið sem er óhæft til þess að koma ungu krökk- unum til aðstoðar og rétta þeim hjálparhönd, heldur gerir illt verra. Guðmundur Arnar er einstakur leikstjóri, hann er hæglátur og vand- virkur, umhyggjusamur, kurteis, að- laðandi í háttum og framkomu og metnaður hans bráðsmitandi. Öll undirbúningsvinna og framkvæmd tökuferlisins var til fyrirmyndar, frá- bært listafólk sem að henni kemur útkoman og umfjöllun eftir því. Það er sannur heiður að fá að tilheyra þannig hópi. Sagan er erfið en sönn, grimm en falleg, sorgleg en sæt, ljót en ljúf. Þetta er sannarlega kvik- mynd sem lætur engan ósnotinn.“ Ævintýri í heimsfaraldri Hvernig hefur líf leikarans Davíðs Guðbrandssonar verið í heims- faraldri? Guð og lukkan með Davíð Keflvíski leikarinn Davíð Guðbrandsson hefur leikið í vinsælum sjónvarpsseríum að undanförnu á milli þess sem hann notar röddina í sögum á Storytel Það segir sig sjálft að hringla með tökuplan fram og til baka vegna óviðráðanlegra aðstæðna er meira en að segja það, að flytja heilt stóð af mótorhjólum milli landshluta, að fljúga leikurum og starfsfólki hingað og þangað ... Nokkrum augnablikum áður Davíð skutlaði sér í sjóinn við höfnina i Hafnarfirði í Ófærð. ,,Ekki glefsa, bíta!” Davíð í hlutverki Jónasar Kr. í Verbúð. 12 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.