Víkurfréttir - 04.05.2022, Blaðsíða 24
Mundi
Njarðvíkingar munu verja
Íslandsmeistaratitilinn
með varðskipum ...
„Það er álitlegur kostur að útvega
Landhelgisgæslunni aðstöðu fyrir
varðskip á Suðurnesjum. For-
sendan fyrir því eru þær úrbætur
sem ráðast þarf í á hafnaraðstöð-
unni og ég er bjartsýnn á að þær
framkvæmdir gangi eftir í góðu
samstarfi allra aðila,“ segir Jón
Gunnarsson, dómsmálaráðherra.
Landhelgisgæslan hefur í vetur
skoðað hugmyndir um hafnarað-
stöðu fyrir varðskip Landhelgis-
gæslunnar utan Reykjavíkur.
Í janúar á þessu ári fékk Jón
Gunnarsson, dómsmálaráðherra,
Vilhjálm Árnason, þingmann til
þess kanna möguleika á slíku á
Suðurnesjum. Vilhjálmur leiddi
viðræður Landhelgisgæslunnar
og stjórnar Reykjaneshafnar um
þann möguleika að nýta Njarð-
víkurhöfn fyrir varðskip Land-
helgisgæslunnar. Dómsmálaráð-
herra hefur tekið þá ákvörðun að
Landhelgisgæslan fari þessa leið
að því tilskyldu að samningar náist
við sveitarfélagið um nauðsynlegar
úrbætur og aðgerðir sem ráðast
þarf í á hafnarsvæðinu.
Undanfarin ár hefur þrengt að
varðskipum Landhelgisgæslunnar
í Reykjavík vegna aukinnar um-
ferðar skemmtiferðaskipa. Land-
helgisgæslan hefur því lengi horft
til þess að komast í varanlega
aðstöðu með skipakost sinn þar
sem hægt er að tryggja öryggi og
starfsaðstöðu bæði fyrir áhafnir og
þann búnað sem þarf til reksturs
varðskipanna.
Varðskipin fá heima-
höfn í Njarðvík
Bylgja ráðin
skólastjóri í
Sandgerði
Opið hús hjá slökkviliðinu
Varðskipið Þór kemur til hafar í Keflavík. VF-mynd: Hilmar Bragi
Bylgja Baldurs-
dóttir, settur
skólastjóri og
aðstoðarskóla-
stjóri Sand-
gerðisskóla,
hefur verið
ráðin skóla-
stjóri Sandgerð-
isskóla. Alls
bárust sex umsóknir um starfið
sem var auglýst nýverið.
Umsækjendur um stöðu skóla-
stjóra Sandgerðisskóla:
Anna Björg Ingadóttir, skólastjóri.
Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri.
Gerður Ólína Steinþórsdóttir,
kennari. Hannesína Scheving
Skarphéðinsdóttir, kennari. Vera
Steinsen, tónlistarkennari og Þórdís
Sævarsdóttir, fyrrv. skólastjóri.
Ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja við
Flugvelli í Reykjanesbæ verður sýnd almenn-
ingi um komandi helgi. Opið hús verður hjá
Brunavörnum Suðurnesja laugardaginn 7. maí
og sunnudaginn 8. maí kl. 13:00 til 16:00 báða
dagana. Þar býðst Suðurnesjafólki að koma og
skoða húsakostinn og tækjabúnað slökkviliðsins.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa lagt fram þingsályktunartil-
lögu þar sem Alþingi ályktar að
heilbrigðisráðherra feli Sjúkra-
tryggingum Íslands að bjóða út
rekstur heilsugæslu á Suður-
nesjum. Fyrsti flutningsmaður
tillögunnar er Guðrún Hafsteins-
dóttir.
Með því að bjóða út rekstur ann-
arrar heilsugæslustöðvarinnar er
tryggt að heimilislæknum standi
einnig til boða að reka eigin þjón-
ustu eins og aðrir sérfræðilæknar
hafa kost á. Leiða má líkur að því
að auknir valmöguleikar hvað
varðar rekstrarform hafi í för með
sér að auðveldara verði að fá heim-
ilislækna til starfa á Suðurnesjum.
Sem kunngut er hefur reynst erfitt
að fá sérfræðinga, hvort sem er á
sviði læknisfræðinnar eða annarra
sérfræðigreina, til starfa á lands-
byggðinni og því mikilvægt að gera
starfsumhverfi þeirra eins fjölbreytt
og aðlaðandi og unnt er.
„Nú eru tæplega 30.000 íbúar
á þjónustusvæði HSS og um er að
ræða fjórða stærsta sveitarfélag
landsins. Almennt er miðað við að
að baki hverri heilsugæslustöð séu
um 12.000 íbúar. Þannig ættu í raun
að vera þrjár heilsugæslustöðvar á
Suðurnesjum. Nú er þar ein bráða-
móttaka og ein heilsugæslustöð
á Suðurnesjunum öllum. Það er
skortur á heilbrigðisstarfsfólki og
gríðarlegt álag. Það er óviðunandi
staða og það er mat okkar flutn-
ingsmanna að mikilvægt sé að Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja fái aukið
rými til að sinna sinni lögbundnu
þjónustu Kostir einkarekinna heilsu-
gæslustöðva eru ótvíræðir og því
full ástæða til þess að bjóða ekki
einungis upp á þann kost á höfuð-
borgarsvæðinu heldur einnig tryggja
landsbyggðinni möguleika á að nýta
sér þjónustu þeirra,” segir Guðrún
Hafsteinsdóttir þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Í greinargerð með þingsályktunar-
tillögunni kemur fram að reynslan af
einkareknum heilsugæslustöðvum
hafi verið góð og njóta þær almennt
meira trausts en aðrar, sbr. þjónustu-
könnun Maskínu fyrir allar heilsu-
gæslustöðvar höfuðborgarsvæð-
isins frá árinu 2019. Heilsugæslu-
stöðvarnar eru nítján talsins. Þar
kom fram að allar fjórar einkareknu
heilsugæslustöðvarnar á höfuð-
borgarsvæðinu voru mjög ofarlega
á lista yfir þær heilsugæslustöðvar
sem nutu mests trausts, eða í efstu
sjö sætunum. Í sömu könnun var
spurt um ánægju sjúklinga með þá
þjónustu sem heilsugæslustöðvarnar
buðu upp á og var niðurstaðan af-
gerandi. Einkareknu heilsugæslu-
stöðvarnar röðuðu sér í fjögur efstu
sætin.
Vilja útboð um rekstur
heilsugæslu á Suðurnesjum
Kosningablað Víkurfrétta kemur út í næstu viku. Blaðið verður aðgengi-
legt á vef Víkurfrétta í rafrænu formi á þriðjudagskvöld og í prentaðri
útgáfu á miðvikudag. Opið er fyrir móttöku aðsendra greina til hádegis
á mánudag. Athugið að aðeins er tekið á móti einni grein til birtingar
á prenti frá hverju framboði. Allar greinar sem berast umfram verða
eingöngu birtar á vef Víkurfrétta, vf.is. Aðsendar greinar á að senda á
póstfangið vf@vf.is.
Auglýsingar í kosningablaðið berist á póstfangið andrea@vf.is. Framboð
eru beðin um að bóka auglýsingapláss tímanlega fyrir næsta blað.
Áríðandi vegna næsta blaðs
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
Við boðum breytingar fyrir þig
Vertu velkomin(n) í vöfflukaffi eldri íbúa að
Hafnargötu 64, laugardaginn 7. maí kl. 12:00 - 14:00