Víkurfréttir - 04.05.2022, Page 15
„Þetta var mikill skóli og upplifun. Maður sá allt og sjúkrabílinn var bara eitthvað allt annað dæmi,“
segir Ingvi Þór Hákonarson, sjúkraflutningamaður og starfsmaður hjá Brunavörnum Suðurnesja, en
hann og félagi hans, Aron Rúnarsson, komu heim nýlega eftir að hafa sótt nám í bráðatækni í Boston.
Hvernig kom það til að þið ákváðu
að fara í nám í bráðatækni?
„Ég var búinn að skoða þetta nám í
nokkur ár og hafði mikinn áhuga á
að fara erlendis og sækja mér þessa
menntun. Brunavarnir Suðurnesja
auglýsa svo að þeir ætla að senda
tvo starfsmenn út í námið, svo við
sóttum nokkrir um og við Aron
urðum fyrir valinu.“
Um hvað snýst það?
„Námið snýst aðallega um að ná
sér í meiri þekkingu og meiri færni
í starfi sem vonandi skilar sér í betri
þjónustu við íbúa á svæðinu. Bráða-
tæknir hefur meiri heimildir til að
framkvæma ákveðna hluti t.d. lyfja-
gjafir. Stefna Brunavarna Suðurnesja
er að hafa bráðatækni á vakt á öllum
vöktum hjá okkur. Vonandi munu
þeir senda fleiri starfsmenn út síðar.
Í dag erum við þrír og einn starfs-
maður er núna staddur í Boston og
mun klára námið í lok apríl. Átta
aðrir Íslendingar stunda nám í sama
skóla í Boston í dag.“
Undirbúningur mikilvægur
Hvernig fór námið fram?
„Það byrjaði á bóklegu námi sem
hófst í nóvember 2020 og við klár-
uðum það 1. nóvember 2021. Ég
varð alltaf að passa upp á að komast
í netttengingu til að sinna náminu þó
ég væri á ferðalagi með fjölskylduna
um sumarið. Þann 1. nóvember 2021
héldum við svo út til Boston. Þar
þurftum við að taka EMT-B sem er
grunmenntun í sjúkrabílafræðum þó
við værum búnir að taka það fyrir
mörgum árum hér heima á Íslandi.
Það tók okkur 3 daga með smá
verklegri kennslu og bóklegu prófi
og síðan hófst bootcamp í 11 daga.
Þar vorum við einu Íslendingarnir
ásamt 30 bandarískum nemum.
Þessa 11 daga voru verklegar æfingar
og byrjuðu allir dagar á bóklegu
prófi sem var gert til að sjá hvar við
værum öll stödd í fræðunum. Reglu-
lega tókum við svo verkleg próf og
fengu þeir sem þurftu tækifæri til
að taka þau aftur ef þeir náðu ekki
prófinu. Á þessum 11 dögum voru
um tíu nemendur sendir heim og
þar með var þessu námi lokið hjá
þeim. Kaninn er mjög harður á að
nemendurnir séu vel undirbúnir
fyrir námið og geti gert alla hluti
upp á tíu. Bootcampið endar svo
með verklegum prófum og bóklegu
prófi, ef nemandinn nær þeim getur
hann hafið verknám á sjúkrahúsi og
svo síðar sjúkrabíl.“
Er það ekki sérstök lífsreynsla
að fara í verknám á sjúkrahúsi og
standa vaktir á sjúkrabíl í Boston?
„Jú þetta var mikill skóli að taka
verknámið í Boston. Sjúkrahúsið var
þannig að maður sá allt og það var
mikil reynsla að fá að upplifa það.
Sjúkrabílinn var bara eitthvað allt
annað dæmi. Við vorum á stað sem
heitir Fall River og þeir sem störf-
uðum á sjúkrabílnum voru að vinna
24 tíma vaktir og var maður orðinn
frekar tæpur þegar það voru bara
7 tímar eftir af vaktinni og þessir
bílar stoppa lítið, þeir eru bara á fullu
þessa 24 tíma. Þar sáum við allt, t.d
fórum við í svakalega hnífaárás og
mann sem var með skotáverka og
margt fleira. Við tókum 300 tíma á
sjúkrabíl. Þessir bílar sem eru með
bráðatækni (paramedic) fara bara í
þá flutninga sem eru forgangs flutn-
ingar. Á Íslandi flokkum við þá F-1 og
F-2 og þeir eru allan sólarhringinn á
bláum ljósum með sírenur.“
Hvernig mun þetta svo virka þegar
þið hefjið störf aftur hjá BS?
„Það breytist lítið. Við munum klár-
lega vera með meiri ábyrgð en áður.
Brunavarnir Suðurnesja eiga frábæra
starfsmenn sem leggja hart að sér til
að þjónusta íbúa eins vel og hægt er.
Við munum klárlega koma til með að
koma okkar þekkingu til allra starfs-
manna BS,“ segir Ingvi Þór.
Ýkt í sjónvarpinu
Það var freistandi að spyrja Ingva
Þór hvort þeir hefðu fengið sömu
upplifun og sjá má í mörgum
þáttum um slökkvilið og sjúkrahús
í bandarískum sjónvarpsþáttum.
„Það er búið að ýkja alla hluti , t.d
hvernig þeir vinna við sjúklinginn í
sjónvarpinu og það sem er gert í al-
vöru er bara ekkert líkt því sem við
sjáum á skjánum. Annað dæmi er
þegar menn fara í reykköfun, þá setja
menn maskann á sig og tengja sig
áður en þeir fara í brennandi hús, en
í sjónvarpsþáttnum fara þeir í brenn-
andi húsið og þegar þeir eru komnir
inn setja þeir grímuna á sig og tengja
sig við kútin,n komnir í reykinn og
drulluna. Þetta sérðu menn aldrei
gera í alvörunni.“
Mikill skóli og upplifun
-Ingvi Þór Hákonarson og Aron
Rúnarsson hjá Brunavörnum
Suðurnesja sóttu nám í bráðatækni
í Boston.
Æfing á svínsbarka var meðal þess sem félagarnir þurftu að gera í náminu.
„Námið snýst aðallega um að ná
sér í meiri þekkingu og meiri færni
í starfi sem vonandi skilar sér í
betri þjónustu við íbúa á svæðinu.“
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Tímabundin staða:
Starfsmaður í innkaupadeild
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða starfsmann í afleysingu í innkaupa-
deild fram að áramótum. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi
sem getur unnið sjálfstætt. Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafið
störf sem fyrst.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður
starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða að-
lögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í móttöku á vörum, skráningu
í innkaupakerfi, afhendingu á vörum til
deilda, auk annarra tilfallandi verkefna.
Starfinu fylgir töluvert líkamlegt álag.
Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði
• Æskilegt er að umsækjandi sé talnag-
löggur
• Góð kunnátta í excel
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Lögð er áhersla á sjálfstæði, þjónustu-
lund og frumkvæði í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfs-
mannafélag Suðurnesja hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Ákvörðun
um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafn-
réttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir
gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Sótt er um hér:
Laus störf - Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (hss.is)
Umsóknarfrestur er til og með 16.05.2022.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 15