Víkurfréttir - 04.05.2022, Side 22
Ljónynjurnar fóru alla leið
SMELLTU Á MYNDSKEIÐIÐ TIL AÐ HORFA OG HLUSTA
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
G R Æ N A H J Ö R Ð I N
L É T S I T T E K K I E F T I R L I G G J A
Það er óhætt að segja að Njarðvík sé ríkt af stuðn-
ingsfólki. Græna hjörðin styður dyggilega við bakið
á sínu liði og stemmningin í Ólafssal var engu lík
en met var slegið í fjölda áhorfenda á úrslita-
viðureign Hauka og Njarðvíkur – alls 1.378
áhorfendur sáu leikinn og sannarlega létu
áhangendur Njarðvíkur heyra vel í sér þótt
þeir væru aðeins um fjórðungur salar.
Engin spurning að það hafði sitt að
segja og hjálpaði liðinu til sigurs.
Vilborg Jónsdóttir, fyrirliði Njarðvíkinga,
naut þess að spila úrslitaleikinn en þetta
var hennar síðasti leikur með Njarðvík í bili
þar sem hún heldur vestur um haf og hefur
háskólanám í Bandaríkjunum í haust.
Mamma fyrirliðans gat ekki
haldið aftur af tárunum
þegar leiknum lauk.
Aliyah Collier var valin mikilvægasti
leikmaður úrslitakeppninnar og er
vel að þeim titli komin en Collier
var Njarðvíkingum gríðarlega
mikilvæg og óx henni ásmegin
eftir því sem leið á tímabilið.
Helena Rafnsdóttir átti sterka innkomu
í úrslitaleikinn, gerði mikilvæg stig
og stal boltanum þrisvar sinnum.
Helena heldur í nám til Bandaríkjanna
í haust og eftir leik sagði Helena
Víkurfréttum að hún ætlaði að bæta sig sem
leikmann og snúa aftur til Njarðvíkur.
Kamilla Sól Viktorsdóttir
fagnar góðri körfu.
Lára Ösp Ásgeirsdóttir bætti
leik sinn verulega eftir því sem
leið á tímabilið. Hún var með tvo
stolna bolta gegn Haukum.
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari
Njarðvíkurliðsins, var ákaflega
stoltur af frammistöðu stelpnanna
sem voru nýliðar í deildinni.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, afhenti Njarðvíkingum
ávísun fyrir afrekið og Kristín Örlygsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar
Njarðvíkur, gaf leikmönnum blóm sem þakklætisvott fyrir frábært tímabil.
22 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM