Víkurfréttir - 09.06.2022, Side 8
„Mér varð fljótt ljóst að það væri rekstrargrundvöllur fyrir gleraugnaverslun á Suðurnesjum þegar
ég kom í nokkur ár fyrir fjörutíu árum síðan með Úlfari Þórðarsyni, augnlækni, vikulega á heilsu-
gæsluna í Keflavík með fullar töskur af gleraugum. Þau seldi ég fólki sem hafði fengið gleraugna-
„recept,“ segir Kjartan Kristjánsson, eigandi Gleraugnaverslunar Keflavíkur (GVK), nú Optical Studio
en fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli.
Kjartan stofnaði síðan Gleraugna-
verslun Keflavíkur með félaga sínum
Pétri Christiansen 29. maí 1982 í
litlu húsnæði við Hafnargötu.
„Viðtökur voru strax góðar og
ekki var það verra að íbúar á varnar-
svæðinu nýttu sér okkar þjónustu.
Það leiddi til þess að aðeins sex
mánuðum eftir opnun GVK var
samið við Varnarliðið um rekstur
gleraugnaverslunar á varnar-
svæðinu, nánar tiltekið við verslun
Varnarliðsins, Navy ExChange. Að
sjálfsögðu voru öll viðskipti með
gleraugu til varnarliðsins tollfrjáls
(duty free). Versluninni á varnar-
svæðinu var gefið nafnið Optical
Studio. Það var þá sem ég fór að
leiða hugann að því að komast inn
í flugstöðina með gleraugnaverslun,
ekki bara sólgleraugu, heldur að setja
upp alvöru gleraugnaverslun og geta
boðið Íslendingum tollfrí gleraugu
líkt og Varnarliðinu á Keflvíkurflug-
velli. Það liðu þó ein sautján ár áður
en sá draumur varð að veruleika.“
Gleraugu í gömlu löggustöðinni
Gleraugnaverslun Keflavíkur flutti
á Hafnargötu 17, í gömlu lögreglu-
stöðina, eftir þrjú ár frá opnun.
„Árið 1992 byggðum við húsið við
Hafnargötu 45 í samvinnu við Húsa-
gerðina. Þar er starfsemin í dag með
augnlæknastofu á 2. hæð. Þetta er
stakstætt hús teiknað af Valdimar
Harðarsyni, arkitekt, með góðu að-
gengi og ágætum bílastæðum. Sama
ár var farið í útrás inn á Reykja-
víkursvæðið, Gleraugnaverslunin í
Mjódd var stofnuð og nokkru síðar
reksturinn á gleraugnaverslun á Sel-
fossi tekinn yfir. Optical Studio hóf
rekstur í Leifsstöð í janúar 1998 og í
Smáralind um haustið 2001.“
Lánsamur með starfsfólk
Leiðir Kjartans og Péturs skilja 2004
og hann varð einn eigandi að fjórum
verslunum Optical Studio.
„Ég hef verið lánsamur með starfs-
fólk í þessi 40 ár en nú eru vatnaskil
í mínum rekstri og við keflinu tekur
yngra og vel menntað fólk. Dóttir
mín, Hulda Guðný, er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins.
Burkni Birgisson, sjóntækja-
fræðingur, er í forsvari fyrir Optical
Studio í Keflavík. Hann er einnig
með annann fótinn í versluninni í
Leifsstöð. Burkni hefur starfað hjá
mér í 24 ár og er af góðu kunnur af
viðskiptavinum okkar fyrir fágaða
vinnu við sjónmælingar og smíði
á gleraugum Suðurnesjamanna. Í
versluninni í Leifsstöð var Burkni
mér við hlið er Optical Studio hóf
rekstur og framleiðslu á gleraugum
á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð.
Ein sinnar tegundar
Verslunin í Leifsstöð er ein sinnar
tegundar í alþjóðlegri flugstöð, þar
eru öll algengestu styrkleika gler-
augu framleidd á aðeins fimmtán
mínútum.
„Ég er ekki hættur störfum, í raun
hefur vinnan hjá mér aukist nú þegar
Covid er að baki. Ný verslun Optical
Studio í miðbænum í Reykjavík rétt
við nýtt heimili mitt er sá vinnu-
staður sem ég sinni mest í dag.
Með haustinu opnar Optical Studio
verslun í Kringlunni. Svo það er nóg
af verkefnum framundan.“
En hvað segir Kjartan um breyt-
ingar í faginu á fjörutíu árum?
„Mesta breytingin átti sér stað
2003 þegar sjónmælingar gerðar af
sjóntækjafræðingum voru leyfðar í
gleraugnaverslunum, fram að þeim
tíma voru aðeins augnlæknar sem
skrifuðu út recept fyrir gleraugum,“
segir Kjartan sem alla tíð hefur verið
þekktur fyrir að vera með þekkt
merki í gleraugum.
„Viðskiptasambönd og umboð
Optical Studio í dag eru við öll þekk-
ustu gleraugnamerkin á markað-
inum, Gucci, Prada, Dior, Cartier og
Ray Ban svo nokkur séu nefnd. Um-
gjarðir sem eru aðeins 2.8 grömm frá
Lindberg sem Optical Studio kynnti
markaðinum fyrir 30 árum síðan
eru og hafa verið skrautfjöður fyrir-
tækisins. Í tilefni 40 ára afmælisins
ætlum við að veita 40% afslátt af
öllum vörum verslunarinnar mið-
vikudag og fimmtudag 8. og 9. júní,“
sagði Kjartan.
Kom með fullar töskur af
gleraugum fyrir Suðurnesjamenn
Gleraugnaverslun Keflavíkur 40 ára. Gleraugu líka fyrir varnarliðsmenn og ferðalanga í flugstöð.
Mesta breytingin átti sér stað 2003 þegar sjónmælingar
gerðar af sjóntækjafræðingum voru leyfðar í
gleraugnaverslunum, fram að þeim tíma voru aðeins
augnlæknar sem skrifuðu út recept fyrir gleraugum ...
Kjartan Kristjánsson,
eigandi Optical Studio.
Burkni Birgisson, sjóntækjafræðingur er
í forsvari fyrir Optical Studio í Keflavík.
Brot úr viðtali í Víkurfréttum sem tvítugur ritstjóri VF tók við
Kjartan og Pétur ári eftir opnun Gleraugnaverslunar Keflavíkur árið 1983.
8 // VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum