Víkurfréttir - 09.06.2022, Blaðsíða 24
Hundalíf í París
Eins og vart hefur farið framhjá
dyggum lokaorðalesendum flutti sú
sem heldur hér á penna með fjöl-
skyldunni til Parísar fyrir nokkrum
mánuðum. Þetta hefur verið algjör
draumadvöl og njótum við lífsins
í hvívetna, sérstaklega nú þegar
yndislegt sumarið hefur tekið við af
dásamlega vorinu. En það tekur líka
á að flytja og mikil viðbrigði að byrja
í nýjum skóla, nýrri vinnu, venjast
nýjum siðum og umhverfi. Ekki síst
þegar viðkomandi er hundur.
Lubbalífið hefur tekið miklum
breytingum. Í stað þess að taka dag-
lega sinn venjulega göngutúr í alls-
konar veðrum um fallegu strand-
leiðina í Keflavík, labbar hann nú
um götur Parísarborgar, í skógum og
fallegum lystigörðum, líka reyndar í
allskonar veðrum. Það eru reyndar
færri lægðir, enginn snjór og minna
rok en þeim mun meiri hiti og raki.
Ég er ekki frá því að Lubbi sakni
hressilegu lægðanna akkúrat núna
þessa dagana þegar hitinn fer ekki
undir tuttugu stig og togast jafnvel
undir þrjátíu gráðurnar suma daga.
Það er erfitt að vera hundur frá Ís-
landi í svona hita, brjálæðislega
heitar gangstéttir og allt of lítið um
skugga til að kæla sig í. Gönguferð-
irnar verða mjög hægar og stundum
stoppar hann bara, horfir á mann
biðjandi augum og biður mann vin-
samlega (með því að neita að halda
áfram) að hætta þessari vitleysu og
fara heim. Strax.
En hundalífið er líka mjög spenn-
andi hér í París. Það eru hundar úti
um allt og margar sætar Parísartíkur
til að skoða. Það eru reyndar ekki
bara tíkurnar sem hann er spenntur
fyrir, við komumst nefnilega að því
að kærastan hans á hundasnyrtistof-
unni reyndist eftir allt saman vera
karlkyns! En það er hið besta mál –
við fögnum auðvitað bara fjölbreyti-
leikanum.
Það sem er hins vegar það allra
besta við hundalífið hér er að hér
eru hundar velkomnir alls staðar.
Þeir eru partur af samfélaginu, það
er gert ráð fyrir þeim og eru bara vel
uppaldir og alls ekkert til vandræða.
Lubbi er orðinn mjög veraldarvanur,
hann fer stilltur og prúður í metróið,
í leigubíla, á veitingastaði (þar sem
honum er alltaf boðið upp á vatn í
fínum dalli) og er velkominn í vel-
flestar verslanir. Við fórum til dæmis
í eina allra fínustu verslun Parísar
um daginn, Samaritaine, þar sem
við áttum fyrirfram kannski ekkert
endilega von á að honum yrði vel
tekið. Þetta er ótrúlega falleg verslun
á mörgum hæðum með hönn-
unarvörur, rándýra merkjavöru og
kampavín af öllu tagi. Við spurðum
við dyrnar og hann var heldur betur
velkominn. Okkur var vísað rakleiðis
á þjónustuborðið þar sem okkur var
færð falleg svört taska til að setja
hann í og þannig bárum við hann
um verslunina eins og þann hefðar-
hund sem hann er orðinn! Þetta við-
horf til hunda er dásamlegt og við
Íslendingar getum mikið lært af því.
Lubbi biður fyrir sérstaklega
góðar kveðjur á strandleiðina!
Mundi
Er ekki réttara að kalla þetta
lúxuslíf Lubba?
Optical Studio
fagnar 40 ára afmæli
Af því tilefni bjóðum við 40% afslátt
miðvikudaginn 8. júní og fimmtudaginn 9. júní
Opið 10 - 18 opticalstudio.is 511-5800
*Afslátturinn gildir ekki af tilboðsvöru
LO
KAO
RÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Fjölmenni var í fyrstu lýðheilsu-
göngu í Reykjanesbæ en í henni
var farið að Reykjanesvita þar sem
gönguhópurinn var fræddur um
sögu svæðisins, framtíðarpælingar
og uppbyggingu.
Fjórar lýðheilsugöngur verða
í Reykjanesbæ í upphafi sumars.
Göngurnar eru um ein til tvær
klukkustundir eftir veðri og að-
stæðum og eru öllum að kostnaðar-
lausu. Leiðsögumaður er Rannveig
Lilja Garðarsdóttir ásamt góðum
gestum. Mæting í allar göngurnar
er aftan við ráðhús Reykjanesbæjar
kl. 18:30 þar sem sameinast verður í
bíla og ekið að upphafspunkti.
Næstu göngur verða 14. júní þar
sem Garðskagi verður genginn að
Kirkjubóli, 21. júní verða brunnarnir
í Innri-Njarðvík skoðaðir og fræðst
um sögu þeirra. Síðasta ganga verður
um Leiruna 5. júlí.
Lýðheilsugöngur
í Reykjanesbæ
VF-myndir: ÁsdísRagna.