Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.06.2022, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 09.06.2022, Blaðsíða 18
Á föstudaginn 27. maí síðastliðinn fór fram hátíðleg athöfn í húsnæði Keilis á Ásbrú í tilefni útskriftar hjá fyrsta nemendahóp Menntaskólans á Ásbrú (MÁ). Menntaskólinn á Ásbrú útskrifaði 21 nemanda og hafa nú 4340 einstaklingar út- skrifast úr námi frá skólum Keilis. Í upphafi athafnar var tónlistarat- riði þar sem Guðjón Steinn Skúlason spilaði á saxófón og Alexander Grybos spilaði á gítar. Nanna Krist- jana Traustadóttir, framkvæmda- stjóri Keilis, flutti ræðu og leiddi at- höfnina. Ingibjörg Lilja Guðmunds- dóttir, kennari MÁ, flutti einnig hátíðarræðu. Ingigerður Sæmundsdóttir, for- stöðumaður MÁ, ávarpaði gesti og afhenti útskriftarskírteini og viður- kenningarskjöl til allra nýstúdenta ásamt Skúla Frey Brynjólfssyni. En þess má geta að starfsfólk Mennta- skólans hittist nokkrum dögum fyrir útskrift og skrifaði falleg orð og hvatningu til hvers og eins nem- anda sem var afhent með prófskír- teininu. Allir nýstúdentar dagsins fengu einnig blóm frá Keili. Viktoría Rós Wagner var verð- launuð fyrir framúrskarandi námsár- angur með 9,67 í meðaleinkunn og fékk hún peningagjöf frá Keili. Stefán Ingi Víðisson fékk menntaverðlaun HÍ fyrir félagsstörf, þrautseigju og framúrskarandi námsárangur og fékk hann 20.000 kr. gjafabréf í bóksölu stúdenta og endurgreiðslu á skóla- gjöldum Í HÍ. Í lok athafnar flutti Brimar Jörvi Guðmundsson útskriftarræðu fyrir hönd nemenda og Helgi Rafn Guð- mundsson, kennari MÁ, ávarpaði einnig útskriftarhópinn. „Það er gríðarlegur heiður að fá að taka þátt í útskrift fyrsta nem- endahóps Menntaskólans á Ásbrú og erum við ótrúlega stolt af þessum glæsilega hóp. Athöfnin var mjög hátíðleg og var dásamlegt að geta boðið aðstandendum að samfagna með börnum sínum á þessum fal- lega degi án fjöldatakmarkana vegna Covid. Ég held að hver og einn hafi notið stundarinnar og vil ég þakka þeim sem sáu sér fært að vera með okkur í dag fyrir komuna og nýstúd- entum óska ég velfarnaðar. Á svona stundu eru allir sigurvegarar“ hafði Ingigerður að segja eftir athöfnina. Menntaskólinn á Ásbrú er einn af fjórum skólum Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. MÁ hefur frá árinu 2019 boðið nem- endum að stunda nám á metnaðar- fullri stúdentsbraut í tölvuleikja- gerð. Námið byggir á hagnýtum verkefnum og sterkum tengslum við atvinnulífið. Lagt er áherslu á færni til framtíðar, nútíma kennslu- hætti og vinnuaðstöðu í sérklassa. Námsframboð í MÁ er í stöðugri þróun, en í dag er þar einnig starf- rækt fjarnámshlaðborð með stökum framhaldsskólaáföngum sem kenndir eru í fjarnámi. Fleiri myndir má sjá á vf.is. „Á svona stundu eru allir sigurvegarar“ Ú T S K R I F T M E N N T A S K Ó L A N S Á Á S B R Ú Það var hátíðleg stund í Gjánni í Grindavík þann 25. maí sl. en þá fór fram glæsileg útskrift fjöl- mennasta nemendahóps sem lokið hefur námi frá Fisktækni- skóla Íslands. Alls luku 53 nem- endur formlegu námi frá skólanum á vorönn. Segja má að þessi athöfn hafi verið þriðja og síðasta útskrift vorannar en fyrr í mánuðinum hafði farið fram hátíðleg athöfn í höfuðstöðvum Marel í Garðabæ, þar sem sjö nemendur fengu afhent skírteini sín sem Vinnslutæknar og deginum áður luku níu nemendur námi í fiskeldistækni á Bíldudal. Sérlega ánægjulegt var að meðal útskriftarnemenda voru fimm nemendur sem útskrifuðust úr veiðarfæratækni (áður netagerð), skólinn sinnir kennslu faggreina í veiðarfæratækni en það er enn sem áður löggild iðngrein. Einnig hófst á ný kennsla í smáskipanámi sem Fisktækniskólinn hafði reyndar áður kennt um árabil en vegna uppfærslu á námskrá hafði verið nokkurt hlé á því að skólinn hafi getað boðið uppá það nám. Við athöfnina í Grindavík rakti skólameistari í stuttu máli að- draganda að stofnun Fisktækni- skóla Íslands skólans en nú eru tíu ár frá því að Fisktækniskólinn fékk starfsleyfi sem framhaldsskóli og hafa um fjögur hundruð nemendur lokið formlegu námi frá skólanum á þessum tíu árum. Framtíðin er björt og byggir á þessum grunni sem hefur mótast vel til á þessum fyrsta ára- tugi. Fisktækniskólinn býður fjöl- breytt tækninám á framhaldsskóla- stigi þar sem fyrst ber að nefna fisk- tæknibraut; tveggja ára hagnýtt nám sem er byggt upp sem önnur hver önn í skóla og hin í vinnustaðanámi. Þá er leitast við að bjóða nemendum upp á val um vinnustað með hliðsjón af áhugasviði hvers og eins t.d. sjó- mennsku, fiskvinnslu eða fiskeldi. Í framhaldinu eru fjórar spennandi brautir í boði undir sameiginlegu yfirskriftinni Haftengd auðlinda- tækni. Fyrst má nefna fiskeldistækni en fiskeldi er í miklum vexti, hvort sem er á landi eða í sjókvíum og því mikilvægt að vera með vel menntað fólk til að starfa í greininni. Gæða- stjórnun er önnur af framhaldsbraut- unum, það er braut sem hentar fólki sem þegar starfar í eða stefnir á starf við gæðaeftirlit í fiskvinnslu eða annarri matvælavinnslu. Vinnslu- tækni er þriðja framhaldsbrautin, það nám er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í hátæknibúnaðinum sem notaður er í fisk- og matvæla- vinnslu. Vinnslutæknir sinnir still- ingum á hugbúnaði og vélbúnaði og hefur umsjón með því að taka út öll helstu gögn úr hugbúnaði til að geta unnið einfaldari útreikninga fyrir skýrslugerð og upplýsingagjöf t.d. varðandi gæði, nýtingu og afköst í matvælavinnslu. Síðust en alls ekki síst er Haftengd nýsköpun – Sjávar- akademía sem þjálfar frumkvöðla á sviði haftengdrar nýsköpunar og hentar fólki sem hyggst stofna fyrir- tæki innan bláa hagkerfisins eða er með viðskiptahugmynd sem það vill þróa. Áhersla er á leiðtogafærni, ný- sköpun og markaðsmál. Veiðarfæratæknin er svo eins og áður sagði löggild iðngrein þar sem Fisktækniskólinn býður uppá kennslu faggreinahluta námsins. Alls stunduðu 150 nemendur nám á fimm brautum við skólann síðastliðinn vetur. Fastir starfs- menn voru ellefu en auk þeirra var fjöldi verktaka sem sinnti stunda- kennslu. Kennt var á alls fimm stöðum á landinu auk Grindavíkur, en skólinn hefur frá stofnun haft það að markmiði að námsbrautir skólans séu í boði sem víðast – og þá í sam- starfi við fræðsluaðila, stofnanir og fyrirtæki sem sérhæfa sig í veiðum, vinnslu og fiskeldi á hverjum stað. Að lokinni afhendingu skírteina, fluttu fulltrúar kennara stutt ávörp, en útskriftinni lauk síðan með kaffi- samsæti. Opið er fyrir innritun og tekið á móti nýjum umsóknum um skólavist vegna haustannar 2022. Framtíðin liggur í tækninámi FJÖLMENNASTA ÚTSKRIFT FISKTÆKNISKÓLA ÍSLANDS FRÁ UPPHAFI Störf hjá Reykjanesbæ Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum heimasíðu Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Akurskóli - Sérfræðingur í námsver Heilsuleikskólinn Garðasel - Leikskólakennari Holtaskóli – Starfsmaður skóla Leikskólinn Hjallatún - Leikskólakennarar Stapaskóli - Stoðþjónusta Stapaskóli - Stoðþjónusta Stapaskóli - Umsjónakennari Stapaskóli - Umsjónarmaður skólahúsnæðis Stapaskóli - Þroskaþjálfi Starf við liðveislu Velferðarsvið - Sumarstarf á heimili fatlaðs fólks Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn Viktoría Rós Wagner (t.h.) ásamt Skúla Frey Brynjólfssyni. Stefán Ingi Víðisson (t.h.) og Skúli Freyr Brynjólfsson. 18 // VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.