Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.06.2022, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 09.06.2022, Blaðsíða 20
Leikskólinn Völlur hefur gefið út myndbönd með yfirskriftinni Orð skipta máli. Aðalmarkmið þessa verkefnis er að efla orðaforða barna en myndböndin eru tileinkuð foreldrum og aðstandendum þeirra. Völlur er fjölmenningarleikskóli en í leikskólanum eru 28 þjóðerni, bæði börn og starfsfólk. Um 70 prósent barnanna eru tví- eða fjöltyngd og tæplega helmingur kennara eru með íslensku sem annað tungumál Völlur fékk styrk frá Nýsköpunar- og þróunarsjóði Reykjanesbæjar til að vinna verkefnið og er það von Huldu Bjarkar Stefánsdóttur, leikskólastýru Vallar, og Heiðrúnar Scheving Ing- varsdóttur, verkefnastjóra fjölmenn- ingar á Velli, að myndböndin dreifist sem víðast. Þær Hulda og Heiðrún segja rannsóknir sýna að fátæklegur orðaforði barna geti haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra og framtíð, því skipta orð máli. Þessar einföldu athafnir að tala við barn, að syngja með því og lesa fyrir það geta haft mikil áhrif.. Rannsóknir sýna að barn sem fær mikla málörvun í fjöl- breyttum aðstæðum á meiri mögu- leika á að takast á við þær áskoranir sem lífið mun bjóða upp á í fram- tíðinni,“ segir Heiðrún. Þær Hulda og Heiðrún segjast spenntar fyrir framhaldi verkefnisins en ný stefna þess tengist leiklist með börnum. Þá er meðal annars stefnt að því að setja upp svið í leikskól- anum. „Þannig að Orð skipta máli, verkefnið okkar, heldur áfram en færir sig inn á ný svið. Því orðin eru alls staðar,“ segir Hulda. Heiðrún starfaði um skeið hjá Menntamálastofnun. „Ég sá það svo greinilega þegar ég var að ferðast um landið á vegum Menntamáls- tofnunar að ójöfnuður meðal barna er staðreynd í íslensku samfélagi. Barn sem býr í litlu þorpi úti á landi er oft ekki að fá sömu þjónustu og barn sem býr í stærra sveitarfélagi. Jöfnuður á meðal barna hefur alltaf verið mér hugleikinn og það er það sem drífur mann áfram í að vinna svona verkefni. Maður vill náttúru- lega öllum börnum það besta. Að fræða foreldra um mikilvægi þess að barn búi yfir ríkulegum orðaforða er á vissan hátt ákveðið skref í átt að jöfnuði“ segir Heiðrún. Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir, leikskólafulltrúi á Fræðslusviði Reykjanesbæjar, segir 29 prósent barna á leikskólum Reykjanes- bæjar vera með íslensku sem annað tungumál. Þá hefur Reykjanesbær bætt inn stöðugildum á leikskóla bæjarins og segir Ingibjörg það hafa verið gert til þess að „halda utan um þennan hóp barna og vinna með ís- lenskunámið þeirra“. Ingibjörg bætir við að það sé „sífellt verið að skoða hvernig hægt sé að mæta þessum hópi barna, sérstaklega hvað varðar að styrkja íslensku kunnáttu þeirra og er þá verið að horfa á orðaforða“. Aðspurðar hvort þeim finnist að eitthvað mætti gera betur til að koma til móts við fólk af erlendum uppruna í Reykjanesbæ segir Heiðrún: „Það eru allir að reyna að gera sitt besta en persónulega finnst mér það ekki vera nógu sýnilegt, sem má kannski tengja við nýafstaðnar kosningar og lélega kjörsókn. Það er spurning hvort upplýsingastreymi til erlendra íbúa sé að skila sér. Þetta er eitthvað sem við hugsuðum út í áður en við unnum myndbandið þ.e. hvernig við ætluðum að koma þessum mikilvægu upplýsingum til foreldra þannig að árangur náist.“ Hulda tekur undir með henni og bætir við: „Það er mikilvægt að hafa fjölbreytileikann sýnilegan, að það sé ekki bara í orði heldur líka á borði.“ MYNDBÖNDIN MÁ SJÁ Á ÍSLENSKU, ENSKU, PÓLSKU OG ARABÍSKU Í GEGNUM ÞENNAN HLEKK MYNDSKEIÐIN ERU AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma.h.hermannsdottir@gmail.com Viðskiptahugmynd varð að fyrirtæki: „Í upphafi ferilsins var það aðeins fjarlægur draumur – en nú er sá draumur orðinn að veruleika“ Þær Jóhanna Helgadóttir og Anna Dagbjört Hermannsdóttir koma báðar frá Suðurnesjum en þær stofnuðu fyrirtækið Sigursetrið og vinna nú að undirbúningi fyrir opnun þess. Fyrirtækið veitir per- sónulega þjónustu og einstakl- ingsbundna ráðgjöf fyrir börn og ungmenni sem eru að takast á við krefjandi verkefni í skóla eða heima fyrir. Viðskiptahugmyndin var ein af um 40 umsóknum sem fengu inn- göngu í HÍ-AWE Nýsköpunar- hraðalinn 2022 en alls bárust yfir 100 umsóknir. Hraðallinn er sam- starfsverkefni bandaríska sendi- ráðsins á Íslandi og Háskóla Íslands og er meginmarkmið þess að styrkja konur í stofnun fyrirtækja. Jóhanna og Anna hafa báðar mikla reynslu af starfi með börnum og foreldrum þeirra en þær kynntust í starfi við Háaleitisskóla í Reykja- nesbæ. Þá komust þær fljótt að því að þær deildu áhuga á stuðningi við foreldra og börn þegar kemur að flóknum og krefjandi verkefnum í lífi þeirra. Þær höfðu báðar gengið lengi með þá hugmynd að stofna fyrirtæki af þessum toga en nú eru þær í óða önn að vinna í opnun þess. „Í upphafi ferilsins var það aðeins fjarlægur draumur – en nú er sá draumur orðinn að veruleika,” segir Jóhanna. Stefnt er að því að hefja form- legan rekstur þann 1. september og er nú þegar hægt að bóka þjónustu og ráðgjöf fyrir haustið. Orð skipta máli Vilja efla orðaforða barna í fjölmenningarsamfélagi Áríðandi tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja: Þjónustuskerðing í sumar Vegna manneklu og sumarleyfa mun HSS þurfa að skerða ýmsa þjónustu í sumar. ÖLLUM BRÁÐAERINDUM VERÐUR SINNT en öðrum erindum kann að verða forgangsraðað í þágu öryggis skjólstæðinga stofnunarinnar. AÐEINS SLYSUM OG BRÁÐAERINDUM VERÐUR SINNT Á SLYSA- OG BRÁÐAMÓTTÖKUNNI. Einstaklingar eru vinsamlegast beðnir um að leita ekki með önnur erindi þangað. ATH skráðir skjólstæðingar HSS hafa forgang á þjónustu. Þeir sem ekki eru skráðir á heilsugæslustöðvar HSS í Reykjanesbæ, Grindavík eða Vogum gætu þurft að bíða eða sækja þjónustu á sína heilsugæslustöð. Síðdegisvakt lækna verður með hefðbundnu sniði og hægt að panta tíma samdægurs frá kl. 13:00. Reynt verður að sinna flestum erindum en reikna má með að bið verði á þjónustu. HSS biðlar til skjólstæðinga sinna að sýna þessum vanda skilning. ATHUGIÐ AÐ ÖLLUM BRÁÐAERINDUM VERÐUR SINNT. Hulda Björk Stefánsdóttir og Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir á Velli. 20 // VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.