Víkurfréttir - 09.06.2022, Page 9
Bæjaryfirvöld í Grindavík funda í vikunni með jarðvísindamönnum,
verkfræðingum, ríkislögreglustjóra og almannavörnum um varnir
við Grindavík og Svartsengi ef kæmi til eldgoss í ljósi jarðskjálfta-
virkni og landriss við Þor björn. Land hefur risið við Þorbjörn og í
Svartsengi um 60 millimetra frá því í apríl. Hægt hefur á landrisi og
aflögun síðustu daga.
Hægt hef ur á landrisi og af lög un
við Þor björn og Svartsengi und-
an farna daga, en stöðugt landris
hafði mælst þar síðustu vik ur og
Þor björn lyfst um allt að 60 milli-
metra síðan í apríl.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri
Grindavíkur, segir nauðsynlegt
að vera viðbúinn. Í samtali við
RÚV sagði hann að bæjaryfirvöld
hafi verið að skoða þessi varnar-
mannvirki.
„Það þarf að vera til tækjalisti,
tengiliðalisti þeirra aðila sem geta
komið með tól og tæki, öflugustu
vélar á svæðið og það þarf að
vera til hönnun á þessum mann-
virkjum. Þannig það er eitt af því
sem við verðum að skoða,“ sagði
Fannar við RÚV sl. föstudag.
Til skoðunar er hönnun leiði-
garða fyrir ofan byggðina í
Grindavík og í Svartsengi. Þeim
er ætlað að beina hrauninu, komi
til eldgoss, á ákveðna braut í stað
þess að stöðva hraunrennslið.
Leiðigarður var m.a. reistur upp
af Nátthagakrika síðasta sumar
þegar gaus í Fagradalsfjalli. Hann
varnaði því að hraun myndi
renna í Nátthagakrika og beindi
rennslinu niður í Nátthaga.
Eins og greint var frá í Víkurf-
réttum í síðustu viku er nú til
skoðunar að koma upp varavatns-
bóli til að auka öryggi á svæðinu,
hvort sem eldgos eða mengunar-
slys myndi ógna núverandi vatns-
bóli í Lágum.
Í fréttum RÚV á föstudaginn
talaði Jón Gunnarsson dómsmála-
ráðherra um að mikla uppbygg-
ingu þyrfti á Reykjanesskaganum
vegna mögulegra eldsumbrota til
að tryggja innviði eins og vatnsból.
Til þess gæti regluverk þurft að
víkja.
Ný bæjarstjórn Grindavíkur hélt
sinn fyrsta fund 7. júní þar sem
málefnasafningur nýs meirihluta
Sjálfstæðisflokk, Framsóknar og
Raddar unga fólksins var kynntur.
„Kjörnir fulltrúar Framsóknar
(B), Sjálfstæðisflokks (D) og Raddar
unga fólksins (U) munu vinna sem
ein heild og starfa saman í vinnu
sinni fyrir Grindavíkurbæ,“ segir í
bókun nýs meirihluta. Greint var frá
skipan í nefndir, stjórnir og ráð. For-
seti bæjarstjórnar verður frá B-lista
fyrir utan þriðja árið verður fulltrúi
U-lista. Formaður bæjarráðs verður
frá D-lista.
„Grindavíkurbær er í örum vexti
með uppbyggingu í Hlíðarhverfinu
sem verður nýjasta hverfi okkar
Grindavíkinga. Rekstur bæjar-
félagsins hefur gengið vel og eigin-
fjárstaða góð, samkvæmt áætlun
munu þau metnaðarfullu verkefni
sem eru í vinnslu nota þá fjármuni
sem bæjarfélagið á. Það er fyrirséð
að þó nokkur fólksfjölgun muni
verða samhliða uppbyggingu Hlíðar-
hverfis og því nauðsynlegt að styðja
við uppbyggingu innviða og þjón-
ustustigs í Grindavík í samræmi við
íbúafjölda. Þó þarf einnig að tryggja
trausta fjármálastjórn og reyna að
halda kostnaði á íbúa í lágmarki. Nýr
meirihluti Framsóknar, Sjálfstæðis-
flokksins og Raddar unga fólksins
mun leiða metnaðarfull verkefni á
næstu árum í góðu samstarfi við
minnihluta og íbúa Grindavíkur-
bæjar. Grindavík er gott bæjarfélag,
saman munum við hugsa til fram-
tíðar og stefna hátt til að gera góðan
bæ enn betri,“ segir m.a. í málefna-
samningnum en meðal forgangsverk-
efna eru að þrýsta á afhendingarör-
yggi rafmagns og hringtengja Grinda-
víkurbæ og að öryggi vatnsbóla og
að vatnsvernd verði með besta móti
í Grindavík. Jafnframt verði leitast
við að innleiða nýjungar í stjórnsýslu
sem miða að því að auka skilvirkni
og efla þjónustustig.
Ný bæjarstjórn Grindavíkur:
Hjálmar Hallgrímsson, Ásrún Helga
Kristinsdóttir, Birgitta H. Ramsay
Káradóttir, Hallfríður G Hólm-
grímsdóttir, Helga Dís Jakobsdóttir,
Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, Gunnar
Már Gunnarsson var fjarverandi en
í staðinn sat fundinn Hulda Kristín
Smáradóttir, varamaður.
Uppbygging framundan í Grindavík
– segir nýr meirihluti Sjálfstæðisflokk, Framsóknar og Raddar unga fólksins
Hjálmar Hallgrímsson, Ásrún Helga Kristinsdóttir, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hallfríður G
Hólmgrímsdóttir, Helga Dís Jakobsdóttir, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, Gunnar Már Gunnarsson
var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Hulda Kristín Smáradóttir, varamaður.
– helgin er undirlögð af einskærri gleði og allir skemmta sér saman
Sjómannahelgin er framundan en á fáum stöðum á landinu er þessari
merku helgi gerð jafn góð skil eins og í Grindavík. Hann er sannkallaður
sjávarútvegsbær með nokkrum mjög öflugum sjávarútvegsfyrirtækjum
og hefur sjómannadagurinn verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1948. Það
var árið 1996 sem Grindvíkingar gerðust stórtækari og hinn eini sanni
síkáti sjóari fæddist (Sjóarinn síkáti). Þá breyttust hátíðarhöldin umtals-
vert og úr varð heil vika má segja í hátíðarhöldum. Í vikunni í aðdraganda
helgarinnar eru byrjaðir sýningar af ýmsum toga og spennan byggist hægt
og bítandi upp. Hverfunum er skipt upp í fjóra hluta og ber hvert hverfi
sinn lit og eins og Grindvíkinga er von og vísa, þá verður til nettur múg-
æsingur og pissukeppni fer í gang á milli hverfa, um hver skreyti best!
Á föstudeginum er spennan nokkurn
veginn komin í algleymi, þá styttist
í hið frábæra bryggjuball en fyrst
grilla íbúar hverfanna saman, leggja
síðan af stað á tiltekinn stað þar
sem öll hverfin hittast og saman
gengur hersingin fylktu liði að há-
tíðarsvæðinu sem er við Kvikuna.
Landslið íslenskra skemmtikrafta
skemmtir síðan ungum sem öldnum
og formleg dagskrá er þá hafin.
Síðan er helgin svona, undirlögð af
einskærri gleði og allir skemmta sér
saman.
Eggert Sólberg Jónsson hjá Grinda-
víkurbæ burðast með þennan sí-
káta sjóara á bakinu en hann hefur
veg og vanda af allri skipulagningu.
Honum er farið að líka vel við þann
síkáta:
„Það er miklu skemmtilegra að hafa
nóg að gera við skipulagningu á
þessari helgi, samanborið við síðustu
tvö ár þar sem engin skemmtanahöld
voru þessa helgi. Þetta er ofboðslega
gaman, mikið líf og maður finnur
hvernig spennan vex og dafnar á
meðal bæjarbúa. Mér sýnist veður-
spáin ætla verða okkur hliðholl og
því get ég ekki ímyndað mér annað
en það verði mikið líf í Grindavík um
helgina!“
Hvernig hefur skipulagning gengið
og hvað mun bera hæst?
„Aðaldagskráin byrjar má segja á
föstudeginum en eftir að íbúar og
gestir hafa grillað saman, og gengið
saman að íþróttahúsinu, verður lagt
þaðan í hann klukkan 19:30 og dag-
skrá Bryggjuballsins hefst stundvís-
lega klukkan 20:00. Ég er gífurlega
ánægður að geta boðið upp á grind-
vískan trúbador til að stýra bryggju-
söngnum en okkar eini sanni Pálmar
Örn Guðmundsson mun taka öll
helstu sönglögin og flétta nokkrum
góðum Grindavíkurlögum inn í
jöfnuna. Til hvers að sækja vatnið
yfir lækinn? Í framhaldinu stígur
Emmsjé Gauti á svið og það gleður
mig að geta kynnt hann til leiks. Vin-
sælasta hljómsveit landsins, Stuðla-
bandið, mun síðan stíga á stokk og
loka kvöldinu en þar eru sannkall-
aðir fagmenn á ferð, ótrúlega góð
hljómsveit sem getur spilað eitt-
hvað fyrir alla. Þetta verður von-
andi bara byrjunin á frábærri helgi
því eftir bryggjuballið rekur í raun
hver viðburðurinn annan. Nokkur
böll eru síðar þetta föstudagskvöld
og þar ættu allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Píanóleikarinn
og söngkonan Guðrún Árný og Egill
Rafns, trommari, munu halda sing-
along tónleika á Sjómannastofunni
Vör, Nýju fötin keisarans verða í nýja
Gígnum hans Kára á Fish House
og Paparnir verða með stórt ball
í hinum glæsilega sal í netagerðar-
salnum á Bryggjunni og munu gestir
geta virt fiskitroll fyrir sér í leiðinni.
Á laugardagskvöldinu er síðan eitt-
hvað í gangi alls staðar, t.d. verður
Láki á Salthúsinu með hljómsveitina
Swiss, körfuknattleiksdeild UMFG
er með stórt ball í íþróttahúsinu
þar sem Auddi og Steindi, Jón
Jónsson, ClubDub og BB Brothers
trylla lýðinn og svo verður dúettinn
Heiður á Fish House! Svona gæti
ég lengi haldið áfram, er eflaust að
gleyma að minnast á eitthvað.“
Sjóarinn síkáti hefur er fjölskyldu-
hátíð og því er mikið lagt upp úr
afþreyingu fyrir börnin:
„Börnin munu hafa nóg fyrir stafni
en boðið verður upp á andlits-
málningu, ýmis leiktæki verða í
boði og þau hugrökku munu geta
þeyst um Grindavíkurhöfn á sjó-
pylsu. Að vanda er boðið í skemmti-
siglingu og mun viðkomandi skip
sem annast siglinguna fá ákveðinn
heiðursvörð við innkomuna en hið
eina sanna varðskip, Óðinn, mun
sigla í fararbroddi inn í Grindavíkur-
höfn og verða gestum og gangandi
til sýnis. Forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson mun mæta á staðinn
ásamt forstjóra skipasmíðastöðvar-
innar Mirai ships frá Japan, Ta-
keyoshi Kidoura, en fyrirtækið gaf
nýtt mastur á Óðinn. Klukkan 13:30
hefst síðan skemmtidagskrá fyrir
börnin á sviðinu og þar mun Ronja
ræningjadóttir m.a. stíga á svið. Um
kvöldið er síðan, eins og áður kom
fram, mikið stuð!
Eggert fór vel yfir hve sjálfur sjó-
mannadagurinn er sveipaður
miklum hátíðarbrag:
„Sjómanna- og vélstjórafélag Grinda-
víkur, sem kemur mjög myndarlega
að Sjóaranum síkáta, heldur sjálfan
sjómannadaginn á sunnudeginum
alltaf í miklum heiðri og er virki-
lega falleg stund í Grindavíkurkirkju
þegar aldraðir sjómenn eru heiðraðir.
Eftir bænastundina ganga allir að
minnisvarðanum VON en hann var
reistur árið 1980 til minningar um
drukknaða sjómenn. Mjög hátíðleg
stund þar sem Grindavíkurdætur,
kvennakórinn okkar, tekur lagið.
Svo hefjast aftur hátíðarhöld við
bryggjuna og ber kannski hæst hinn
eini sanni koddaslagur, þar berjast
víkingar á planka með kodda í hönd
og sá sem þarf að lúta í lægra haldi
fær kalt sjósund. Þetta vekur alltaf
gífurlega gleði og margir sem bíða
spenntir eftir þessu.“
Eggert hvatti alla til að kíkja til
Grindavíkur um Sjómannahelgina:
„Við í Grindavík teljum okkur státa
af besta tjaldsvæði landsins en mikill
metnaður var lagður í alla hönnun
og búast má við að tjaldsvæðið verði
troðfullt. Vinir og vandamenn tjalda
sömuleiðis í görðum svo eins og ég
segi, ég geri ráð fyrir að bærinn verði
stútfullur og ekki skemmir fyrir að
veðurspáin er okkur hliðholl.“
Eitthvað fyrir alla
á Sjóaranum síkáta
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Aldraðir sjómenn heiðraðir á sjómannadaginn 2019.
Fundað um varnargarða við
Grindavík og Svartsengi
VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum // 9