Víkurfréttir - 09.06.2022, Blaðsíða 11
Ný tónleikastaður á Fish House í Grindavík. Stærsta helgi ársins framundan.
Matsölustaðurinn Fish House í Grindavík á sér ekki langa sögu en húsnæðið sem hýsir reksturinn
geymir sögu skemmtanahalds og veitingarekstrar í Grindavík allt til ársins 1989 en þá hóf hinn goð-
sagnakenndi Hafurbjörn upp raust sína.
Hafurbjörninn hélt uppi stemmn-
ingu fyrir Grindvíkinga allt til ársins
2003 en eftir nokkur eigendaskipti
með nafnabreytingum þá hefur
staðurinn gengið undir nafninu Fish
House síðan 2016. Við rekstrinum
tók framkvæmdarmaðurinn Kári
Guðmundsson en segja má að Kári
sé þúsundþjalasmiður, hann lemur
bæði húðir og nagla en hafði unnið
talsvert fyrir sér sem kokkur og þá
mest á bátum. Í honum blundaði
alltaf rekstrarmaður og hann
dreymdi um að eignast og reka veit-
ingastað og lét loks drauminn rætast
með sinni heittelskuðu, Ölmu Guð-
mundsdóttur.
Víkurfréttir kíktu í heimsókn á
Fish House en ekki nóg með að Kári
sé búinn að taka allt útlit staðarins
algjörlega í gegn, þá hefur hann
stækkað hann en hann keypti næsta
bil við hliðina og breytti því í frá-
bæran tónleikastað, „Gíginn“.
Hvernig byrjaði þetta ævintýri og
hvar liggja rætur Kára?
„Mig var búið að dreyma lengi um
að fara út í sjálfstæðan rekstur og
selja mat, þessi staður hér, sem þá
hét Kanturinn, var til sölu og við
hjónin skelltum á okkur á þetta. Það
er mjög mikið búið að gerast síðan,
mikill uppgangur í ferðamanna-
bransanum en svo kom Covid sem
kom að sjálfsögðu mjög illa við okkur
eins og aðra í þessum bransa. Ég tók
ákvörðun í miðju Covid að gjörbylta
útliti staðarins og fljótlega eftir það
hófst gosið fræga og þá fjölgaði fljótt
mjög mikið svo það má segja að
þetta hafi verið stormasamir tímar.
Stuttu síðar var svo bilið við hliðina
á Fish House sett á sölu og ég sá í
því tækifæri, keypti það og breytti í
þennan frábæra tónleikasal sem mér
fannst rétt að nefna Gíginn – eftir
að gosið færði mikinn fjölda inn á
staðinn.“
Fjölbreyttur matseðill
Kári leggur mikla áherslu á fjöl-
breyttan og góðan matseðil:
„Þegar við byrjuðum með mat-
seðilinn þá var hann tiltölulega ein-
faldur, þessi týpíski hamborgari en
að sjálfsögðu höfum við alltaf boðið
upp á fisk, eins og nafn staðarins ber
með sér. Ég er mjög stoltur af „Fish
& Chips“-réttinum okkar en hann
hefur alltaf verið sá vinsælasti hjá
mér. Ég býð upp á flottari steikur
og ekki fyrir svo löngu byrjaði ég að
bjóða upp á pizzur. Þær hafa mælst
mjög vel fyrir.“
Þegar Kári keypti bilið við hliðina
á Fish House og innréttaði sem tón-
leikastað, þá opnuðust nýir mögu-
leikar.
„Ég lagði mikla vinnu í að inn-
rétta „Gíginn“ þannig að hljóðgæði
yrðu sem best. Fékk Exton, en þar
vinnur Grindvíkingurinn Guðjón
Sveinsson, til að hanna staðinn með
það fyrir augum að hljóðgæði yrðu
sem best. Ég tel mjög vel hafa tekist
til en þetta er frábær staður fyrir
hljómsveitir að troða upp, hægt er að
koma 200 manns fyrir í sæti. Stað-
urinn er líka hannaður með það fyrir
augum að fyrirtæki geti haldið hér
ráðstefnur og í raun er hægt að taka
allan pakkann hjá mér, ráðstefna á
daginn og kvöldmat og skemmtun
um kvöldið.“
Kári er ekki aldeilis hættur fram-
kvæmdum.
„Ég ákvað að klæða þetta nýja
bil á sama máta að framan og Fish
House svo heildarútlitið að verði
eins. Svo verður frábært þegar pall-
urinn að aftan verður tilbúinn en þar
verður æðislegt að sitja í skjóli og sól
og njóta góðra veitinga.“
Sjómannahelgin stærst
Sjómannahelgin er framundan, ein
stærsta helgi ársins í Grindavík,
og eftir tveggja ára pásu frá há-
tíðarhöldum má búast við stærri sí-
kátum sjóara en nokkru sinni fyrr!
Hvað mun Fish House bjóða upp á?
„Þetta verður stærsta helgi Fish
House frá upphafi en við byrjum á
tónleikum með Dimmu á fimmtu-
dagskvöldinu. Nýju fötin keisarans
mæta með sveitaball á föstudags-
kvöldinu og Heiður & félagar verða
á laugardagskvöldinu. Á sunnudeg-
inum mætir mótorhjólaklúbburinn
Sleipnir og kynnir góðgerðarferð
sína um landið til styrktar Um-
hyggju, félags langveikra barna. Helg-
inni lokum við svo með frábærum
PROG-rokktónleikum með úrvali
grindvískra söngvara og einvalaliði
hljóðfæraleikara. Grindavík er stað-
urinn til að vera á, á sjómannahelg-
inni og ég hvet alla til að mæta, ég
held að að bærinn verði troðfullur.“
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Tónaflóð í
Gígnum
VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum // 11