Víkurfréttir - 19.10.2022, Qupperneq 5
„Ég var ráðinn í miðju Covid, tók til starfa í maí þegar allt var búið að opna á ný en svo blossaði veiran
upp aftur með tilheyrandi lokunum. Þá gerði maður lítið annað en lesa Covid-reglugerðir svo það má
alveg segja að starfið hafi verið krefjandi því auðvitað tekur tíma að koma sér inn í hlutina á svo
stórum vinnustað,“ segir Jóhann Árni Ólafsson en hann tók við starfi yfirmanns íþróttamannvirkja í
Grindavík vorið 2020.
Jóhann segir að hann hafi verið
heppinn því forveri hans í starfi,
Hermann Guðmundsson, hafi reynst
honum mjög vel og geri enn. „Hann
kemur í sund flesta morgna og kíkir
þá við. Sömuleiðis hefur allt starfs-
fólk á bæjarskrifstofunni verið mér
hjálpsamt svo ég myndi segja að
þetta hafi gengið vel til þessa,“ segir
Njarð-/Grindvíkingurinn sem er
flestum körfuknattleiksunnendum
kunnur en hann lék bæði með
Njarðvík og Grindavík á sínum ferli,
auk þess að hafa leikið með lands-
liðum Íslands. Jóhann á átján leiki
með A-landsliði Íslands.
Valdi körfuna
Jóhann fæddist og ólst upp í Njarðvík
og sleit þar barnsskónum. Íþróttir
skipuðu strax stóran þátt í lífi hans
og æfði hann jöfnum höndum/fótum
körfu- og fótbolta en svo kom að því
að velja og varð valið nokkuð einfalt,
boltanum skyldi skotið ofan í körfu
frekar en spyrnt að marki.
Jóhann átti farsælan feril með
Njarðvík og varð einu sinni Ís-
landsmeistari með liðinu og einu
sinni bikarmeistari en ákvað svo
að söðla um og fór hinum megin
við Þorbjörn, eða til Grindavíkur.
Þetta var árið 2011 og má segja að
um happafeng hafi verið að ræða
fyrir þá gulklæddu sem höfðu ekki
unnið Íslandsmeistaratitilinn síðan
1996. Sá stóri mætti í hús tímabilið
2011/2012 og leikurinn var endur-
tekinn ári síðar. Jóhann bætti svo
bikarmeistaratitli við árið 2014 svo
það má segja að hann hafi skilað sínu
til félagsins. Ekki nóg með að hann
hafi verið leikmaður, heldur byrjaði
hann fljótlega að þjálfa ungviðið og
var yfirþjálfari yngri flokkana í sjö ár.
Fann ástina í Grindavík
Jóhann fann sömuleiðis ástina í
Grindavík en hann og Petrúnella
Skúladóttir eiga saman þrjú börn
og hafa skotið rótum í Grindavík.
Jóhann tók við starfi yfirmanns
íþróttamannvirkja í Grindavík um
mitt sumar 2020 og sá tími er sam-
ofinn Covid en veiran virtist vera að
klárast þegar Jóhann tók við stjórn-
artaumunum en svo reyndist aldeilis
ekki. Því voru miklar áskoranir
fólgnar í nýja starfinu og svo bættust
skjálftar við sem urðu svo að eldgosi.
Ákveðin eldskírn má segja en Jóhann
tók á þessu með sinni stóísku ró og
er búinn að koma sér vel fyrir í nýja
starfinu.
„Ég er fæddur og uppalinn Njarð-
víkingur og mun alltaf líta á mig
sem slíkan, þar liggja ræturnar en í
leiðinni verður hjartað alltaf gulara
og gulara eftir því sem árunum hér
fjölgar, ekki síst þegar börnin manns
fara að æfa íþróttir. Við Petrúnella
erum búin að koma okkur mjög vel
fyrir hér í Grindavík og ég sé ekki
að breytingar verði á þeim högum
á næstunni. Svo er líka stutt að
skjótast í heimsókn til Njarðvíkur.“
Hvað hefur Jóhann verið að gera í
Grindavík?
„Ég var í námi þegar ég kom fyrst
til Grindavíkur en ég útskrifaðist
sem íþróttafræðingur frá HR árið
2013 og þá um sumarið varð ég for-
stöðumaður Þrumunnar sem er fé-
lagsmiðstöð grindvískra ungmenna.
Þeirri stöðu gegndi ég næstu ár en
tók ársleyfi til að taka mastersgráðu í
mannauðsstjórnun og vinnusálfræði.
Þetta allt auðvitað samhliða körfu-
boltaiðkun- og þjálfun en ég hætti
fyrst að spila árið 2019 en kom svo
með nett „comeback“ ári síðar. Ég
tók við þjálfun kvennaliðs Grinda-
víkur árið 2018 og kom liðinu strax
upp úr 1. deild en við vorum dæmd
niður af KKÍ vegna Covid árið eftir.“
Hefur Jóhann einhverju breytt og
hvað er framundan?
„Stærsta breytingin hefur verið
stytting vinnuvikunar. Það var að
sjálfsögðu ekki mín ákvörðun en í
samstarfi við starfsfólkið breyttum
við vaktaplaninu og það tókst mjög
vel og gerði vinnustaðnum gott.
En með nýjum stjórnendum
koma oftast breytingar. Hermann
forveri minn stóð sig mjög vel en
ég hef alveg komið á einhverjum
breytingum en hef passað mig á
að innleiða þær hægt og rólega.
Það var mjög gott að taka námið í
vinnusálfræði, það hefur nýst mér
mjög vel í þessu nýja starfi og ég tel
að starfsfólkið mitt hafi tekið þeim
breytingum sem ég hef innleitt vel.
Áherslan hefur aðallega snúið að
börnum og upplifun þeirra í mann-
virkjunum. Nú eru t.d. frjálsari opn-
unartímar fyrir ungmennin okkar en
þau geta æft sig í sinni íþrótt þegar
þau vilja, þ.e. þegar laus tími er. Það
var í raun ekki mögulegt áður en nýja
íþróttahúsið kom til sögunnar. Þetta
fyrirkomulag er líka í Hópinu, sem
er knattspyrnuhús Grindvíkinga,
en þar geta krakkarnir æft sig allan
ársins hring. Það er mikil ánægja hjá
foreldrum með þetta fyrirkomulag
og krakkarnir hafa verið flottir að
fylgja þeim reglum sem þarf til að
slíkt fyrirkomulag gangi upp.
Það sem er framundan er að klára
nýja íþróttahúsið með áhorfenda-
bekkjum og töflu en stefnt er á að
hægt sé að leika þar strax á nýju ári.
Þetta verður eitt flottasta íþróttahús
Íslands og mjög hentugt fyrir áhorf-
endur en hægt verður að ganga á
svalir fyrir ofan áhorfendabekkina
innan úr félagsaðstöðu þannig að að-
staðan verður til fyrirmyndar.
Framtíðaríþróttasvæði
Deiliskipulagsvinna er í gangi
varðandi framtíðaruppbyggingu
á íþróttasvæðinu í Grindavík en
fyrir liggur að endurnýja þarf sund-
laugina, leggja gervigrasvöll svo það
er nóg framundan.
„Það verður fróðlegt að sjá hvernig
framtíðarsýnin verður en margar
skoðanir eru á lofti um hvernig nýja
sundlaugin eigi að vera, hvernig hús-
næði fyrir líkamsrækt eigi að vera og
margt fleira. Þessi vinna er í gangi,
hvenær ráðist verður síðan í við-
komandi framkvæmdir er á borði
pólitíkusanna.“
Byrjað er að halda samkomur
aftur en íþróttahús Grindavíkur
hefur hýst þær síðan Festi var og
hét. Jóhann og hans starfsfólk eru
því í raun líka að reka samkomustað
og huga þarf að ýmsu:
„Þorrablótsnefndin er t.d. byrjuð
að huga að blótinu og búið er að
halda tvo stóra dansleiki á þessu ári.
Nóg framundan, eins og við viljum
hafa það,“ sagði Jóhann að lokum.
NJARÐVÍSKI GRINDVÍKINGURINN JÓHANN ÁRNI ÓLAFSSON ER YFIRMAÐUR ÍÞRÓTTAMANNVIRKJA Í GRINDAVÍK
Verður eitt flottasta
körfuboltahús landsins
Jóhann Árni í Njarðvíkurbúningi í leik gegn Keflavík og
á næstu mynd í gulum Grindavíkurbúningi.
Hér er Jóhann við stjórn
kvennaliðs UMFG.
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 5