Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.10.2022, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 19.10.2022, Blaðsíða 10
Umsjón: Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is SUÐURNESJABÆR Á fundi íþrótta­ og tómstundaráðs Suðurnesjabæjar þann 15. sept­ ember lýsti íþrótta­ og tómstundaráð yfir áhyggjum sínum á dræmri þátttöku barna og unglinga í Suðurnesjabæ í skipulögðu íþróttastarfi. Lagt var til við bæjarstjórn að Suðurnesjabær setji sér það markmið að auka þátttöku barna­ og unglinga í íþrótta­ og tómstundastarfi og leiti leiða til að greiða leið barna í Suðurnesjabæ til að komast á sínar æfingar til dæmis með frístundundaakstri. Bæjarlistinn lagði fram eftirfarandi bókun vegna málsins á síðasta fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar: „Eins og fram kemur í minnisblaði íþrótta- og tómstundaráðs og einnig í Skólapúlsinum, þá stunda börn í Suðurnesjabæ mun síður íþróttir en börn í öðrum sveitarfélögum. Jafnframt kemur fram að öll börn og ung- menni ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og sú þekkta stað- reynd að hreyfing hefur víðtæk áhrif á heilsu og mikið forvarnargildi. Bæjarlistinn fagnar fram kominni tillögu um að Suðurnesjabær setji sér það markmið að auka þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi m.a. með frístundaakstri. Auk þess vill Bæjarlistinn leggja áherslu á að auka fjölbreytni í íþróttastarfi í sveitarfélaginu og bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar sem fyrst. Því óskum við eftir því að málinu verði aftur vísað til íþrótta- og tómstundaráðs og að ráðið komi fram með vel mótaðar tillögur til að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi strax á þessu ári.“ Í afgreiðslu bæjarstjórnar segir: „Bæjarstjórn tekur undir áhyggjur íþrótta- og tómstundaráðs vegna dræmrar þátttöku barna og unglinga í íþrótta- og tómstundastarfi. Samþykkt samhljóða að fela íþrótta- og tómstundaráði að móta stefnu og markmið um aukna þátttöku barna og ungmenna í Suðurnesjabæ í íþrótta- og tómstundastarfi. Einnig sam- þykkt samhljóða að í samstarfi við íþróttafélögin verði unnin greining á þörf fyrir frístundaakstur og kostnaður metinn, niðurstöður verði lagðar fyrir bæjarráð hið fyrsta.“ Bæjarlistinn í Suðurnesjabæ leggur til að Suðurnesjabær hætti rekstri ljósabekkja og að tekinn verði út gjaldskrárliðurinn ljósabekkir í íþróttamiðstöðinni í Garði úr gjald­ skrá sveitarfélagsins. Þetta kemur fram í bókun listans á síðasta fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar. Bæjarlistinn vill leggja áherslu á heilsu íbúa og að Suðurnesjabær sé heilsueflandi samfélag eins og samþykkt hefur verið. Því finnst fulltrúum Bæjarlistans eðlilegt að sveitarfélagið hætti rekstri ljósa- bekkja. Á heimasíðu Geislavarna rík- isins kemur m.a. fram að Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin (WHO) styður við takmörkun á notkun ljósabekkja í þeim tilgangi að draga úr hættu á skaðlegum áhrifum af notkun þeirra. Í nýrri skýrslu frá stofnuninni segir að að notkun ljósabekkja til sólbaða í fegrunarskyni undanfarna áratugi hafi valdið aukinni tíðni húðkrabba- meina. Einnig hefur aldur þeirra sem fá slík krabbamein í fyrsta sinn lækkað. Notkun ljósabekkja er talin valda meira en tíu þúsund tilfellum af sortuæxlum árlega og meira en 450 þúsund tilfellum af öðrum húð- krabbameinum í Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu samanlagt. Skaðleg áhrif ljósabekkja eru þannig vel þekkt og því er nauðsynlegt að takmarka notkun þeirra sem mest. Einnig kemur fram að rannsóknir sýna að þeir sem hafa notað ljósa- bekk að minnsta kosti einu sinni eru í 20% meiri hættu að fá sortuæxli en þeir sem aldrei hafa gert það. Þeir sem fara í ljósabekk fyrir 35 ára aldur eru í 59% meiri hættu að fá sortu- æxli. Í ljósi þessa m.a. telur Bæjarlistinn að Suðurnesjabær eigi ekki standa að rekstri slíkra bekkja, sérstaklega í ljósi þess að rekstur þessara bekkja og afleiðingar af notkun þeirra teljast vart til markmiða heilsueflandi sam- félags. Afgreiðsla bæjarstjórnar Suður- nesjabæjar er að samþykkt var sam- hljóða að vísa tillögunni til vinnslu fjárhagsáætlunar. Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða kaup á gáma- einingum og uppsetningu þeirra til að leysa tímabundið húsnæðis- vandræði leikskólans Sólborgar í Sandgerði. Kostnaður er rétt um 29 milljónir króna. „Bæjarráð þakkar skjót viðbrögð skipulags- og umhverfissviðs, fjöl- skyldusviðs og starfsmanna leik- skólans í vinnslu við málið og leggur áherslu á að málið verði unnið hratt og örugglega,“ segir í afgreiðslu ráðsins. Í september sl. var ákveðið að loka öllu húsnæði leikskólans Sólborgar í kjölfar úttektar Mannvits verk- fræðistofu á gæðum innivistar og ástandi húsnæðisins. Í framhaldinu hafa verið settar í gang umbótafram- kvæmdir á þeim stöðum þar sem úr- bóta er þörf í samræmi við tillögur í skýrslu Mannvits. Í bráðabirgðabygg- ingu leikskólans, svokölluðu „brúna húsi“ er mat á aðstæðum þannig að ekki telst forsvaranlegt að eyða fjár- munum í endurbyggingu þess húss. Unnið hefur verið hörðum höndum síðan þessi sviðsmynd kom upp að koma starfsemi leikskólans í gang, í fyrstu á þremur mismunandi stöðum en nú á fjórum mismunandi stöðum. Starfsemin snýr að 109 börnum og 33 starfsmönnum og fer leikskólastarfið nú fram á Skerja- borg á Stafnesvegi, Sandgerðisskóla (Skólaseli), í Samkomuhúsinu og Safnaðarheimili. Stefnt er að því að ljúka fram- kvæmdum á aðalbyggingu leik- skólans um mánaðamótin nóv- ember/desember en óvissuþættir varðandi það eru vissulega til staðar, segir á vef Suðurnesjabæjar. Þá er stefnt að því að gerðar verði ráð- stafanir til að taka við allt að 82-84 börnum þegar endurbótum er lokið og hægt að taka húsnæðið aftur í notkun og um leið myndi notkun Samkomuhúss, Safnaðarheimilis og Skólasels leggjast af. Á fundi bæjarráðs þann 10. október sl. var lagt til að keypt verði húsnæði í formi færanlegrar skóla- stofu sem sett verði niður á Staf- nesvegi 15 á lóð Skerjaborgar. Þessi húsnæðislausn ásamt núverandi leikskólahúsnæði á Stafnesvegi mynda leikskólaeiningu fyrir 38-40 börn. Fyrir Skerjaborg yrði gert af- girt leiksvæði sem gagnast Skerja- hverfinu nýja einnig með tengingu um göngustíg þó svo að leikskóla- starfsemin þar yrði tímabundin. Það er von Suðurnesjabæjar að færan- legu skólastofurnar verði komnar í notkun í lok október. Leysa tímabundið húsnæðisvanda leik- skólans Sólborgar með gámaeiningum Leikskólinn Sólborg í Sandgerði. Ráðast þarf í verulegar endurbætur á húsnæðinu vegna mygluvanda. VF-mynd: HBB Íþróttamiðstöðin í Garði, þar sem Suðurnesjabær rekur ljósabekki. VF-mynd: HBB Taka undir áhyggjur vegna dræmrar þátttöku barna og ungl- inga í íþrótta- og tómstundastarfi Suðurnesjabær hætti rekstri ljósabekkja 125 ÁRA ÖLDUNGUR Á GARÐSKAGA Gamli vitinn á Garðskaga er 125 ára um þessar mundir en vitinn var tekinn í gagnið árið 1897. Það ár hafði verið starfandi barnaskóli í Garði í 25 ár. Vitinn var starfræktur fram á lýðveldisárið 1944 þegar ljósið var kveikt í nýjum vita á Garðskaga. STARFSMAÐUR Í FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA Auðarstofa óskar eftir metnaðarfullum starfsmanni með reynslu, sem vill leggja sitt að mörkum að gera starfið skemmtilegt og fjölbreytt með gæði og kærleika að leiðarljósi. Starfið er opið, skemmtilegt og býður upp á að innleiða nýjungar. Um er að ræða 25% stöðu. Helstu verkefni leiðbeinanda ■ Aðstoðar með félagsstarfið ■ Skipulagning starfsins í samráði við forstöðumann og aðra starfsmenn ■ Samskipti og samstarf ■ Þátttaka að innleiða nýjungar Menntunar og hæfniskröfur ■ Áhugi á frístunda og félagsstarfi ■ Hæfni í mannlegum samskiptum, virðing og samvinna ■ Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í félagsstarfi - handavinna og föndur ■ Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð ■ Góð íslenskukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um ráðningu liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Vilma Úlfarsdóttir í síma 425-3170 Umsókn ásamt starfsferilsskrá og kynningar- bréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið vilma@sudurnesjabaer.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 10 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.