Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.10.2022, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 19.10.2022, Blaðsíða 16
Flóttamannabúðir í Reykjanesbæ? Formaður allsherjar- og menntamála- nefndar kallaði eftir því nú á dögunum að flóttafólk fái að dvelja saman á ákveðnu svæði fyrstu vikur þeirra eða mánuði á Íslandi og stunda nám og vinnu. Þetta svæði er Reykjanesbær enda getur sá bær alltaf á sig blómum bætt. Viðkomandi þingmaður hlaut eðlilega skammir og ákúrur frá sveitarstjórnar- fólki á svæðinu enda þessi tillaga væg- ast sagt stórundarleg. Vildi þessi ágæti þingmaður nú ekki meina að um flótta- mannabúðir væri að ræða sem er þó akk- úrat málið. Reykjanesbær yrði auðvitað tilvalinn staður fyrir slíkar búðir enda drýpur hér smjör af hverju strái. Eins og hver einasti starfsmaður bæjarfélagsins okkar getur vitnað um þá eru innviðir bæjarfélagsins löngu sprungnir og starfs- fólk víða að bugast undan miklu álagi. Hvernig á að hjálpa fólki í neyð á stað þar sem allir innviðir eru sprungnir? Leikskólar, grunnskólar og t.d. félagslega kerfið, þetta er hvellsprungið. Á meðan stendur ríkisvaldið hjá glottandi og sker t.d. niður framlög til HSS enn og aftur en þessi stofnun hefur ávallt fengið löngu- töng frá ríkinu. Hérna búa hvort eð er annars flokks þegnar og hafa alltaf gert. Í skjóli nætur tekur ríkið svo húsnæði á leigu upp á Ásbrú og þar á að hýsa 400 manns sem væntanlega þurfa að nýta sér innviði Reykjanesbæjar. Þetta er gert án alls samráðs við sveitarfélagið. Köld tuska framan í sveitarfélag sem hefur lagt hvað mest til málanna þegar kemur að málefnum flóttamanna og hælisleitenda. Langflest sveitarfélög á landinu gera ná- kvæmlega ekki neitt í þessum málum, leggja ekkert til málanna. Reykjanesbær hefur gert sitt og gott betur en það. En nú er gjörsamlega komið að þolmörkum. Annars eru málefni flóttamanna og hælisleitenda flókin og erfið viðfangs. Mikil aukning hefur verið á straum fólks til landsins síðustu ár og ljóst að ærið verkefni er fram undan hjá okkur sem þjóð í þessum málum. Fyrst og fremst þarf að dreifa álagi og það gengur alls ekki að fáein sveitarfélög leggi hönd á plóginn. Þessi mál eru gríðarlega við- kvæm og stjórnmálamenn ræða þau ekki á yfirvegaðan hátt, upphrópanir eru tíðar. Margir þora svo ekki í umræðuna af ótta við að vera úthrópaðir rasistar eða hreinlega bara vont fólk ef það styður ekki móttöku allra þeirra sem sækja hérna um hæli. Aðrir vilja bara skella öllu í lás og hjálpa helst engum. Við þurfum að fara einhvern milliveg því það verður aldrei hægt að hjálpa öllum en þeim sem við ætlum að hjálpa þá ber okkur sú skylda að gera það vel. Það verður ekki gert með því að gera Reykjanesbæ að flóttamannabúðum eða setja allt álagið á fárra manna hendur. Því miður sést það á orðum formanns allsherjar- og menntamálanefndar að engin almenn skynsemi er hjá ríkisvald- inu í þessum málum. Mundi Var ekki örugglega verið að semja um nýja heilsugæslu í Reykjanesbæ en ekki flóttamannabúðir? volundarhus.is · Sími 864-2400 GARÐHÚS 14,5 m² www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt VH /2 2- 03 GARÐHÚS 4,7m² 34 mm bjálki / Tvöföld nótun GARÐHÚS 4,4m² GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs GARÐHÚS 9,7m² 45% afsláttur af flutningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustustöð- var Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá fleiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar volundarhus.is og í síma 864-2400. HAUSTTILBOÐ Rýmingarsala · Allt á að seljast! 20% afsláttur af öllum garðhúsum og 15% afsláttur af völdum gestahúsum á meðan birgðir endast. Takmarkað magn · Ekki missa af þessu · Fyrstur kemur fyrstur fær www.volundarhus.is LO KAO RÐ ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON Dagskrárgerðarfólk og hugmyndir að þáttum í Hlaðvarp Víkurfrétta Hlaðvarp Víkurfrétta — Leggðu við hlustir Ertu til í að vinna við dagskrárgerð og taka upp einn þátt í viku eða kannski bara einn þátt í mánuði? Ertu til í að ganga til liðs við okkur í vetur og sjá um hlaðvarpsþátt? Ertu kannski bara með hugmyndir að áhugaverðu efni til umfjöllunar og ert til í að deila því með hlaðvarpsstjórnendum? Við erum að leggja lokahönd á nýtt stúdíó þar sem verður aðstaða til að taka á móti gestum og ræða við þá á bak við hljóðnemann og/eða framan við myndavélina. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, þá máttu endilega senda okkur línu á vf@vf.is Stórar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli Starfakynning fyrir grunnskólanemendur Bleikur dagur á heilsugæslunni FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Í þætti vikunnar:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.