Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.10.2022, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 19.10.2022, Qupperneq 12
SKÓLINN, UMHVERFIÐ, NÁTTÚRAN Í fyrstu reglugerð skólans, frá 1872, er náttúrufræði ekki skyldunámsgrein í almennri kennslu fyrir ófermd börn en heimilt er, ef aðstæður leyfa, að veita þeim tilsögn í landafræði og að auki náttúrusögu í „sérstakri kennslu“ fyrir fermd börn. Í reglugerð skólans frá 1912 segir að kenndar skuli þrjár vikustundir í náttúru- fræði og þrjár í landafræði og eftir það er prófað í þessum greinum. Í ágúst 1916 bókar skólanefndin að eðlisfræðiáhöld o.fl. vanti við skólann og samþykkir að bæta þar úr. Myndin er af náttúrufræðibók Bjarna Sæmundssonar (4. útg. 1909) sem kennd var í skólum landsins í hálfa öld. Þar er fræðsla um eðlis- fræði, grjót, dýr, plöntur og manns- líkamann. Sumir kennarar flettu gjarna fram hjá blaðsíðunum um æxlun mannsins. Menntamálaráðuneytið sam- þykkti 1968 áætlun um eflingu eðlis- og efnafræðikennslu fyrir ellefu til sextán ára unglinga. Árið 1970 var hafin tilraunakennsla, útgáfa náms- efnis, sala kennslutækja og námskeið fyrir kennara. Sumir í Vatnsleysu- strandarhreppi voru fljótir að kveikja á perunni, eins og sjá má á svohljóð- andi bréfi dags. 11. mars 1970: „Til hreppsnefndar Vatnsleysustrandar- hrepps. Í tilefni þess að Verkalýðs- félag Vatnsleysustrandarhrepps varð 25 ára gamalt 29. desember síðast- liðinn, ákvað félagið á aðalfundi 7. mars síðastliðinn, að færa Brunn- astaðaskóla að gjöf kennslutæki í eðlis og efnafræði. Kennslutæki þessi hafa þegar verið keypt og afhendast hér með skólanum til eignar. Vogum, 11. mars 1970. Fyrir hönd Verkalýðs- félags Vatnsleysustrandarhrepps. Jón Bjarnason, formaður.“ Pétur G. Jónsson, oddviti, þakkaði fyrir hönd hreppsins og lagði til að skólanefndin sendi verkalýðsfélaginu viðurkenn- ingu með þakkarorðum. Í fyrsta áfanga Stóru-Vogaskóla 1979 var aðstaða til að kenna nátt- úrufræði og í þriðja áfanganum frá 2005 er vel búin náttúrufræðistofa. Umsjónarkennarar kenna yngri bekkjum náttúrufræði en frá 2000 hafa líffræðingar kennt mið- og unglingastigi. Um árabil spreytti 7. bekkur sig á krufningu brjóstholslíf- færa úr svínum en þeim svipar mjög til líffæra mannsins. Myndin er úr slíkum tíma árið 2008. Nemandinn fyrir miðju kennir nú íþróttir við skólann. Halla Jóna og Særún tóku saman á 10. áratugnum hugmyndir að útivist- arferðum í nágrenni skólans. Farið var gangandi frá skólanum í sumar ferðirnar og á skólabílnum á fjar- lægari staði, svo sem í Lambafellsgjá, Keili, sleðaferðir á Svartsengisfell og skautaferðir á Seltjörn. Halla fékk gamlar konur til að mæta í tíma og kenna handbragð og lét börnin banka upp á hjá eldri íbúum til að gleðja þá, segja eitthvað fallegt eða gefa smá gjafir. Börnin gerðust litlir leiðsögumenn og undirbjuggu að segja frá ákveðnum stöðum. Helga Ragnarsdóttir kom með hesta og teymdi undir og fleira mætti nefna. Árið 1988 hófu skólarnir á Suður- nesjum uppgræðslu- og gróðursetn- ingarátak í maímánuði, sem nefnt var Vordagar Vigdísar til heiðurs þáverandi forseta. Yngstu nem- endur Stóru-Vogaskóla hafa nær öll ár síðan sáð grasfræi og áburði og grætt þannig upp moldarflög í ná- grenni þéttbýlisins. Lengst af hefur Landgræðslan lagt til áburð og grasfræ. Nemendur á miðstigi hafa gróðursett trjáplöntur frá Yrkjusjóði, hin síðari ár við Háabjalla, og gera enn á hverju vori í umsjá Skógfells. Myndin sýnir nemendur gróðursetja birki vorið 2007. Síðastliðinn áratug hefur skólinn tekið þátt í grænfánanum, alþjóð- legu umhverfismenntaverkefni. Þá er valin umhverfisnefnd skipuð kenn- urum og nemendum sem markar umhverfisstefnu skólans. Græn- fáninn er viðurkenning til skóla sem vinna að sjálfbærnimenntun á ein- hvern hátt. Frá því að Fræða-/þekkingar- setrið í Sandgerði kom til 1996 er það heimsótt nær árlega og unnið með fugla, spendýr og sjávarlífverur. Einnig var þáverandi Sæfiskasafn í Höfnum oft heimsótt fyrsta áratug 20. aldar. Skólinn er þannig staðsettur að auðvelt er að stunda fjölþætta úti- kennslu í náttúrufræði. Sand- og klettafjara og tjörn er nánast við hús- vegg og stutt í móa og gróin hraun. Guðrún Kristín Ragnarsdóttir, sem kennt hefur náttúrufræðin frá 2017, segir svo frá: „Mér finnst alltaf eitt af skemmtilegri verkefnunum að vinna þemaverkefni með 6. bekk um lífríki Vogatjarnar. Þar bý ég svo vel að hafa ýmislegt frá þér [Þor- valdi Erni Árnasyni, pistlahöfundi] til að vinna með. Krakkar telja sig þekkja Vogatjörn ágætlega og hafa flest veitt þar hornsíli og gaman að fylgjast með þeim uppgötva hulinn heim hins smásæja lífríkis í vatninu. Við byrjum á að skoða gróðurfarið og nota greiningalykla til að kynnast helstu plöntunum. Svo útbúum við ferskvatnsker í fiskabúri sem við höfum í stofunni og vekur ávallt athygli í öllum bekkjum. Farið er í vettvangsferðir og sýnum úr lífríki tjarnarinnar safnað í fiskabúrið og krukkur. Svo er það rannsóknar- vinnan. Það kemur margt í ljós þegar nánar er skoðað í fiskabúrið, horn- síli sýkt af bandormum, sprækar brunnklukkur og tjarnatítur, lirfur, blóðsugur og smákrabbadýr. Það er skemmtilegt en einnig krefjandi að lofa nemendum að leika lausum hala í rannsóknarvinnunni og verða forvitin og vinna með víðsjár og raf- ræna smásjá til að ná myndum. En ég hef séð breytingar á lífríkinu und- anfarin ár. Hornsílum hefur fækkað gríðarlega og í sumum vettvangs- ferðum sjáum við engin. Krakkarnir hafa ýmsar kenningar varðandi það, eins og mengun.“ Heimildir: Bréf frá Verkalýðsfélagi Vatnsleysustrandarhrepps, fræðslumálaskrifstofunni, hreppsskrifstofu o.fl. Reglugerð skólans frá 1872. Gjörðabók skólanefndar, árið 1912. Funda- gerðarbók Skólaráðs 1984–2001. Grein um Vordaga Vigdísar. Umhverfisstefna Stóru-Voga- skóla. Frásagnir Höllu Jónu Guðmundsdóttur, Særúnar Jónsdóttur og Guðrúnar Kristínar Ragnarsdóttur. Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu. Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann, tekur saman með góðra manna hjálp. 39. ÞÁTTUR Akurskóli í Reykjanesbæ stóð fyrir þemadögum í síðustu viku sem endaði svo með opnu húsi í skólanum, þar sem haldin var sýning á því sem nemendur höfðu verið að bralla á þemadögunum. Eins og á síðasta ári var það lestrarverkefnið Skólaslit sem var viðfangsefni þemadaganna og nemendur endur- gerðu hluta af þeim hrylling sem er að finna í sögunni. Þá settu nem- endur einnig upp draugahús í anda hrekkjavökunnar sem er síðar í þessum mánuði. „Það er gaman að segja frá því að spennan og áhuginn í ár er ekki minni en í fyrra fyrir Skólaslitum – Dauð viðvörun. Nemendur bíða spenntir á hverjum morgni eftir nýjum kafla og hlusta af athygli,“ segir Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla, í samtali við Víkurfréttir. „Skólaslit hefur svo sannarlega aukið áhuga nemenda á lestri og bókmenntum og við sáum það vel á hve spennt þau voru þegar bókin hans Ævars kom út núna í haust. Það var því gaman að tengja þemað í ár aftur við Skólaslit og nú tengdum við efnið við furður- verurnar sem eru í sögunni. Við hlökkum til að byggja enn frekar ofan á þennan áhuga á lestri og nýta í skólastarfinu,“ segir Sigurbjörg. Svipmyndir frá Akurskóla þar sem nemendur unnu að verkefnum tengdum við söguna Skólaslit. Furðuverur úr Skólaslitum mættu á þemadaga í Akurskóla Fleiri myndir á vef Víkurfrétta, vf.is Frá opnu húsi í Akurskóla þar sem afrakstur þemadaga var sýndur. VF-myndir: Hilmar Bragi 12 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.