Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.10.2022, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 19.10.2022, Qupperneq 13
Umhverfismál í Suðurnesjabæ Nýlega sendi ég erindi til fram- kvæmda- og skipulagsráðs Suður- nesjabæjar með nokkrum hug- myndum um umhverfismál. Ráðið tók erindið fyrir á fundi sínum og var eftirfarandi bókað og svar sent til mín: Á fundi framkvæmda- og skipu- lagsráðs Suðurnesjabæjar þann 20. september 2022 var til umfjöllunar bréf þitt með hugmyndum og til- lögum í umhverfismálum í Suður- nesjabæ. Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar á erindinu: „Ráðið þakkar bréfritara fyrir ábending- arnar sem margar hverjar eru góðar og sumar eru þegar í ferli.“ Af bókuninni og svarinu er ekkert hægt að átta sig á um hvað erindi mitt fjallaði eða hverjar umræður um það voru. Af þeirri ástæðu langaði mig til að upplýsa um málið og mögulega skapa um það umræður. Erindið var svohljóðandi: Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar. b/t Jóns Ben Einarssonar, sviðs- stjóra. Efni bréfs: Hugmyndir er varða um- hverfismál í Suðurnesjabæ. Ágæta ráðs- og starfsfólk. Sem bæjarbúi og sameiningarsinni sveitarfélaga langar mig til að koma á framfæri við ykkur nokkrum hug- myndum varðandi umhverfismál. Eins og margir bæjarbúar hef ég verið áhugasamur um umhverfið og reynt í því sambandi að vera á ýmsan hátt hvetjandi, meðal annars með myndasendingum og athuga- semdum til ráðamanna svo og með jákvæðum skrifum í blaðagreinum og á Facebook. Í grein sem ég skrifaði í Víkur- fréttir í desember 2021 sagði ég meðal annars: „Hjá bæjarstjórn í nýju sameinuðu sveitarfélagi er eflaust í mörg horn að líta og þar af leiðandi þurfa sum verkefni að bíða til betri tíma. Sem áhugasamur íbúi fyrir velferð og framgangi bæjarins okkar hef ég reynt að fylgjast með gangi mála. Sumt hefur vakið athygli mína meira en annað og þar nefni ég meðal annars umhverfismálin. Vonandi verður sá málaflokkur í forgangi á næsta kjörtímabili. Sérstakt um- hverfisráð verði skipað áhugasömu fólki og með sameiginlegu átaki geta stjórnendur bæjarins og íbúarnir gert Suðurnesjabæ að snyrtilegasta bæjarfélagi landsins. Við eigum að stefna hátt á öllum sviðum.“ Svo mörg voru þau orð. Í greininni tala ég um að sér- stakt umhverfisráð verði skipað. Ástæðan er sú að mér finnst að umhverfismálin hafa að sumu leyti mætt afgangi hjá framkvæmda- og skipulagsráði eftir að fyrirkomu- laginu var breytt með sameiningu sveitarfélaganna. Þetta má sjá með lestri fundargerða þar sem skipulags- málin eru mun fyrirferðameiri, sem er væntanlega ekki óeðlilegt miðað við umfang. Ef stjórnendur telja að umhverfismálin eigi áfram að falla undir framkvæmda- og skipulagsráð, þá finnst mér eðlilegra að ráðið verði kallað framkvæmda-, umhverfis- og skipulagsráð. Til viðbótar framansögðu, langar mig til að koma á framfæri við ykkur eftirfarandi tillögu: • Að samin verði metnaðarfull til- laga að umhverfisstefnu sem lagt verði til að bæjarstjórn samþykki. Athugasemdir og ábendingar varð- andi þessa tillögu eru eftirfarandi: Nú á tímum þegar umhverfismál eru í brennidepli vítt og breytt um veröldina, þá er merkilegt að ekki sé til staðar umhverfisstefna í bæjar- félaginu. Markmið með umhverfis- stefnu finnst mér að eigi meðal annars að veita leiðbeiningar og aðhald fyrir stjórnendur bæjarins, stjórnendur fyrirtækja og bæjarbúa alla. Umhverfisstefna gæti meðal annars innifalið eftirfarandi atriði: • Að stefnt sé að því að bæjar- félagið sé ávallt mjög til fyrir- myndar og að áhersla sé lögð á að bærinn hafi frumkvæði og sýni gott fordæmi í umhverfis- málum. • Að umhverfismál séu ávallt eðli- legur hluti af vinnubrögðum alls starfsfólks og stofnana bæjarins og að tillit sé tekið til þess við hvers konar ákvarðanatökur þar sem það á við. • Að stefnt verði að því að Suður- nesjabær skipi sér í hóp snyrti- legustu bæjarfélaga landsins og verði ávallt til fyrirmyndar á öllum sviðum umhverfismála. • Að samþykkt verði og kynnt með fundarhöldum og á heimasíðu bæjarins, áætlun um aðgerðir og framkvæmdir sem hvetur alla bæjarbúa og fyrirtækjastjórn- endur til dáða í umhverfismálum og að a.m.k. árlegt skipulagt átak verði liður í þeirri áætlun. • Að árlega verði veittar viður- kenningar til einstaklinga og fyr- irtækja fyrir fallegt og snyrtilegt umhverfi (sjá erindisbréf fyrir framkvæmda- og skipulagsráð). • Að fylgt verði lögum og reglu- gerðum um umhverfismál sem eiga við um alla starfsemi bæjar- félagsins. • Að allir starfsmenn bæjar- félagsins eigi möguleika á fræðslu um umhverfismál sem miðar að því að þeir séu meðvitaðir um áhrif starfa sinna á umhverfið, þekki vel umhverfisstefnu bæjar- félagsins og verði virkir þátttak- endur í henni. • Að tryggt verði að allt sem lýtur að öryggi í umhverfi bæjarins verði ætíð eins og best verður á kosið. • Að umhverfisstefnu bæjar- félagsins verði viðhaldið og hún endurskoðuð í samræmi við allar mögulegar breytingar á að- stæðum. • Gefin verði út umhverfisskýrsla ár hvert, sem auðveldi saman- burð og yfirlit yfir umhverfismál í bæjarfélaginu og verkefnum þeim tengdum. Í erindisbréfi fyrir f r a m k v æ m d a - (umhverfis-) og skipulagsráð er fjallað um hlutverk og verkefni ráðsins. Þar kemur meðal annars fram eftirfarandi: • að hafa umsjón með árlegu vali og veitingu viðurkenninga til fyrirtækja og einstaklinga fyrir fallegt umhverfi. • að hafa umsjón með skipulagi og almennri fegrun opinna svæða í bæjarfélaginu. Ég minni sérstaklega á ákvæðið í erindisbréfinu um veitingar viður- kenninga fyrir fallegt umhverfi. Af einhverjum ástæðum hefur þetta því miður lagst af síðustu ár. Ég veit að margir sakna þess mjög, enda eru viðurkenningar og verðlaun fyrir fagurt og snyrtilegt umhverfi mjög hvetjandi aðferð og góð leið til að ná meiri og betri árangri. Ég tala af reynslu í þessum efnum en við hjónin höfum þrívegis fengið slíkar viðurkenningar. Ég hvet eindregið til þess að þessi góða leið verði tekin upp aftur. Að endingu vísa ég til yfirlýsingar meirihluta bæjarstjórnar í umhverf- ismálum sem kynnt var á bæjar- stjórnarfundi hinn 1. júní síðast- liðinn. Ég tek heilshugar undir það sem fram kemur í yfirlýsingunni og vænti þess að þessi markmið nái fram að ganga: • Auka vitund íbúa um flokkun sorps og fjölga hreinsunardögum í sveitarfélaginu. • Suðurnesjabær á að vera leiðandi í umhverfismálum og sýna gott fordæmi. • Áminning og hvatning um snyrti- legt umhverfi á að koma reglu- lega frá sveitarfélaginu. • Komið verði á fót umhverfisráði áhugasamra íbúa sem geti með aðstoð umhverfisfulltrúa verið ráðgefandi og skapað jákvæða ímynd þess átaks að bærinn verði snyrtilegur. • Hreinsun strandlengjunnar í samstarfi við hin ýmsu félaga- samtök verði áfram unnin. • Áætlun um fráveitumál verði kláruð og tímasett og þá verði byrjað á stórum endurbótum. • Fegrun byggðarkjarnanna verði í hávegum höfð og aukin gróður- setning verði í sveitarfélaginu í samstarfi við skógrækt ríkisins og aðra aðila. • Skilgreind verði svæði fyrir trjárækt með kolefnisjöfnun að leiðarljósi. • Unnið verði að fjölgun á hleðslu- stöðvum í Suðurnesjabæ í sam- vinnu við aðila á þeim markaði. Bestu kveðjur, með von um að skjótt verði brugðist við og svo óska ég ykkur alls velfarnaðar í vanda- sömum störfum ykkar. Jón Norðfjörð, Sandgerði, Suðurnesjabæ. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til: • viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, ásamt öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. • byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningar húsa og mannvirkja, og miðlunar upplýsinga um þær. • sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í byggð. Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2021. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á www.husverndarstofa.is). Suðurgötu 39, 101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is husafridunarsjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2022 LÝSING VEGNA BREYTINGAR Á AÐALSKIPULAGI SVEITAR- FÉLAGSINS GARÐS 2013–2030 Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt til kynningar lýsingu vegna breytingar á Aðal- skipulagi Sveitarfélagsins Garðs 2013–2030. Breytingin felst í breytingu á skilgreiningu svæðis frá skilgreindri notkun opins svæðis í núgildandi aðalskipu- lagi í skilgreinda notkun afþreyingar- og ferðamanna- svæðis, þar sem stefnt er að uppbyggingu gistirýma til útleigu fyrir ferðaþjónustu. Lýsingin er kynnt á heimasíðu Suðurnesjabæjar, www.sudurnesjabaer.is, ásamt því að vera aðgengileg í anddyri bæjarskrifstofu og skulu athugasemdir og ábendingar hafa borist skriflega eigi síðar en fimmtu- daginn 10. nóvember 2022. Athugasemdir og ábendingar skulu berast með tölvu- pósti á sigurdur@sudurnesjabaer.is, eða á bæjarskrif- stofuna í Garði, b.t. skipulagsfulltrúa, Sunnubraut 4, 250 Garður. Jón Ben. Einarsson, skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar Baráttan heldur áfram Sigurður Jónsson, formaður Öldungaráðs Suðurnesja. Öldungaráð Suðurnesja var stofnað í nóvember 2014. Öldung- aráð er skipað fulltrúum sveitar- félaganna frá Reykjanesbæ, Suður- nesjabæ og Sveitarfélagsins Voga. Einnig tilnefnir Félag eldri borg- ara á Suðurnesjum sína fulltrúa. Styrktarfélag HSS á einnig fulltrúa. Hlutverk Öldungaráðs Suður- nesja er að gæta hagsmuna eldri borgara á Suðurnesjum. Öldung- aráð hefur á þessum árum bar- ist fyrir því að fjölga hjúkrunar- rýmum á svæðinu, einnig fyrir því að heilsugæslustöðvar verði fleiri á Suðurnesjum sem og fjölgun dag- dvalarrýma. Öldungaráð hefur gagnrýnt að ríkisvaldið hefur ekki aukið fjármagn til starfsemi HSS í samræmi við fjölgun íbúa á svæð- inu. Sveitarfélögin gera mjög vel varðandi ýmsa þjónustu og að- búnað fyrir aldraða og ber að þakka það. Á þessum árum hafa nokkur skref verið stigin til hagsbóta fyrir þjónustu við eldri borgara. En það eru mörg stór, sameiginleg hags- munamál sem krefjast þess að baráttan haldi áfram. Af þeirri ástæðu er nauðsynlegt að Öldung- aráð Suðurnesja starfi áfram. Nú er það svo að samkvæmt lögum ber að skipa Öldungaráð í hverju sveitarfélagi og það ákvæði er uppfyllt hér á Suðurnesjum. Það er hið besta mál. Eftir sem áður er nauðsyn- legt að hafa sameiginlegan vett- vang til að ræða hagsmuni svæð- isins í heild. Til þess þarf að hafa Öldungaráð Suðurnesja. Aðalfundur Öldungaráðs Suður- nesja verður haldinn föstudaginn 21. október 2022 kl. 16:00 Nes- völlum. vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.