Víkurfréttir - 09.11.2022, Síða 9
Fávitar og fjölbreytileikinn
Bókin Fávitar og fjölbreytileikinn kemur út í vikunni
en hún er sú þriðja í fræðslubókaröð Sólborgar
Guðbrandsdóttur. Hún segir bækurnar vera kyn- og
kynjafræðslubækur sem einblína á jafnréttismál
og eru að mestu leyti skrifaðar fyrir unglinga.
Fyrsta bókin bar heitið Fávitar og önnur bókin
Aðeins færri fávitar en í nýju bókinni verður
hinseginleikinn í brennidepli.
„Bókin fjallar um hinseginleikann,
í henni fer ég yfir allskonar hliðar
hinseginleikans. Ég tækla hann ekki
allan en ég reyndi, á eins einfaldan
máta og ég mögulega gat, að fræða
fólk um hvað felst í því að vera hin-
segin. Ég fer yfir ólíkar kynhneigðir
og ólíka kynvitund, það er líka farið
yfir reynslusögur hinsegin fólks á
Íslandi í bókinni. Í henni má einnig
finna ráðleggingar og svör frá ráð-
gjafa sem starfaði hjá Samtökunum
‘78 við spurningum um að koma út
úr skápnum. Fremst í bókinni má
finna hugtakakafla með útskýringum
á orðum sem fólk gæti kannski ekki
skilið við lesturinn,“ segir Sólborg.
Ekki nóg að vera bestur
í tossabekk
Hún segir að með því að tryggja
grunnþekkingu samfélagsins á hin-
seginleikanum getum við skapað
betra samfélag. Þá telur Sólborg
það vera ábyrgð hvers og eins að
afla sér þekkingar og upplýsinga um
málefnið en jafnframt mikilvægt að
fræða hvert annað, því fordómar
eru samfélagslegt vandamál. „Það
eru miklir fordómar enn þá í gangi á
Íslandi þrátt fyrir að við séum komin
langt miðað við önnur lönd. For-
dómar eru samfélagslegt vandamál
og að mínu mati er það okkar sam-
félagslega ábyrgð að reyna að horfast
í augu við þetta og skilja af hverju
hlutirnir eru svona og koma þannig
í veg fyrir að þetta haldi áfram að
grassera í samfélaginu okkar. Við
eigum ennþá frekar langt í land og
mér finnst það frekar gömul tugga
að tala um að við séum best í jafn-
rétti á Íslandi ... það er einfaldlega
ekki nóg að vera bestur í tossa-
bekk. Við þurfum að halda áfram að
reyna að fræða okkur sjálf og fræða
hvert annað og grípa inn í þegar við
verðum vitni að ofbeldi. Því að of-
beldi gegn hinsegin fólki er ekki bara
eitthvað vandamál sem hinsegin fólk
á að þurfa að tækla.“
Aðspurð hvernig hún afli sér upp-
lýsinga og þekkingu á þessum mál-
efnum kemur segir hún: „Ég hlusta
og spyr. Ég tala við sérfræðingana
okkar, ég vil reyna að læra og þannig
kemst maður áfram með þetta. Í
tengslum við bókina, þá er ég ekki
sérfræðingur í hinsegin málefnum
en það er fullt af hinsegin fólki sem
kemur að bókinni. Aðilar að hags-
munasamtökum á borð við Sam-
tökin 78, Trans Ísland, Intersex
Ísland og Ásar á Íslandi lásu yfir
efni í bókinni og hjálpuðu mér með
ákveðnar útfærslur og leiðréttingar,
sem ég er mjög þakklát fyrir. Þetta
er alls ekki bók sem ég skrifaði ein.“
Ekki bara fyrir ungmenni
Sólborg segir bækurnar ekki aðeins
hugsaðar fyrir ungmenni því mikið
af fullorðnu fólki haldi oft fast í það
hvernig hlutirnir voru hér einu sinni.
„Ég einmitt skrifaði þessar bækur
fyrir öll þannig þetta séu ekki bara
unglingarnir sem ég er að hvetja
til að fræðast. Ég held það sé oft
mikilvægara að fræða starfsfólkið í
skólum en að fræða nemendurna í
skólum, að við fræðum foreldrana í
staðin fyrir börnin. Það eru kynslóð-
irnar sem eru, því miður, stundum
að halda fast í það hvernig þetta var
í gamla daga en unga fólkið er mót-
tækilegra fyrir þessum breytingum
og jákvæðu þróun sem er að eiga
sér stað hvað þessi málefni varðar,“
segir Sólborg og bætir við: „Ég er
mjög ánægð með unga fólkið okkar
sem er líka að garga og láta vita að
þau vilji fá þessar breytingar í gegn
og eru að krefjast þess af ráðherrum
og skólastjórnendum að hlutirnir
breytist. Þrátt fyrir að það séu
svartir sauðir alls staðar þá held ég
að þetta sé allt að þróast í rétta átt
en það gerist ekki að sjálfu sér sem
þýðir að við þurfum að halda þessari
baráttu áfram.“
Fræðast án þess að hræðast
Á síðustu misserurm hefur orðið
ákveðið bakslag í baráttu hinsegin
fólks, Sólborg segir að því sé mikil-
vægt fyrir okkur að fræðast og bera
virðingu fyrir fjölbreytileika fólks.
„Megininntakið í bókinni er að
fólk skaðar þig ekki með því að
vera það sjálft. Ég held að um leið
og við förum að leyfa fólki að vera
það sjálft, svo lengi sem það er ekki
að skaða aðra, gangi hlutirnir miklu
betur fyrir sig, okkur líður öllum
betur og búum í miklu betri heimi.
Það er eitthvað sem við ættum að
einblína á, að leyfa fólki að vera það
sjálft. Við erum bara að tala um ást
og fjölbreytileika og hann er ekki
eitthvað sem við ættum að hræðast.“
Fjölbreytileiki
ekki eitthvað sem við eigum að hræðast
Í tengslum við
bókina, þá er
ég ekki sérfræðingur í
hinsegin málefnum en
það er fullt af hinsegin
fólki sem kemur að
bókinni. Aðilar að
hagsmunasamtökum
á borð við Samtökin 78,
Trans Ísland, Intersex
Ísland og Ásar á Íslandi ...
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 9