Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.2022, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 09.11.2022, Blaðsíða 16
Mundi Svo vantar líka hús fyrir furðufugla eins og mig ... Upplifðu – Vertu – Njóttu OPNUNARTÍMAR Mán–Fös 12–18 Lau 11–16 Hólmgarður 2A 230 Keflavík s. 861 7681 marionehf@gmail.com Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum, í samstarfið við HSS, verða með ókeypis sykursýkismælingar í Krossmóa (Nettó) þann 11. nóv- ember nk. frá kl. 14 til 17. Einnig verður boðið upp á mælingar í Nettó Grindavík viku síðar, þann 18. nóvember nk., frá kl. 13 til 16. Lions á Íslandi stendur fyrir árlegri vitundarvakningu um sykursýki í nóvember og er alþjóðlegi sykur- sýkisdagurinn þann 14. nóvember. AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í SUÐURNESJABÆ TILLAGA AÐ AÐALSKIPULAGI SUÐURNESJABÆJAR 2022-2034 Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 2. nóvember 2022 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 ásamt umhverfismatsskýrslu skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Tillagan er aðgengileg í fylgiskjölum á vef Suðurnesjabæjar sudurnesjabaer.is frá og með 9. nóvember 2022 til 23. desember 2022. Einnig er hægt að nálgast tillöguna á skrifstofu Suðurnesjabæjar að Sunnubraut 4 í Suðurnesjabæ. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma með ábendingar og gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 23. desember 2022. Athugasemdum skal skilað á afgreidsla@sudurnesjabaer.is undir yfirskriftinni „Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034 - Auglýsing“ fyrir 23. desember 2022. Athugasemdir má einnig senda í bréfi á skrifstofu sveitarfélagsins Sunnubraut 4, 250 Suðurnesjabæ. Auglýst skjöl aðalskipulagsins eru: ■ Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034; Greinargerð – Tillaga ■ Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034; Aðalskipulagsuppdráttur – Tillaga ■ Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034; Valkostagreining og umhverfismatsskýrsla TILLAGA AÐ BREYTINGU Á DEILISKIPULAGI GARÐSKAGA Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. maí 2022 að auglýsa og kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðskaga samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010, samhliða aðalskipulagsauglýsingu. Núverandi deiliskipulagssvæði er vestast á Garðskaga og býr að nálægð við hafið, vitana tvo og byggðasafnið ásamt gamla vitavarðarhúsinu. Tillaga að deiliskipulagi gerir ráð fyrir að svæðið sé stækkað og komið fyrir nýrri aðstöðu sunnan Skagabrautar, þar sem m.a. verði heilsulind með baðlóni og veitingastað og möguleiki fyrir tjaldsvæði. Þessi aðstaða samnýtist svæði norðan Skagabrautar, þar sem byggingarreitur fyrir byggðasafnið er stækkaður ásamt skilgreiningu aksturs og gönguleiða og möguleika á frekari nýtingu svæðisins til útivistar og fræðslu. Tillagan er aðgengileg í fylgiskjölum á vef Suðurnesjabæjar sudurnesjabaer.is frá og með 9. nóvember 2022 til 23. desember 2022. Einnig er hægt að nálgast tillöguna á skrifstofu Suðurnesjabæjar að Sunnubraut 4 í Suðurnesjabæ. Athugasemdum skal skilað á afgreidsla@sudurnesjabaer.is undir yfirskriftinni „Deiliskipulag Garðskaga - Auglýsing“ fyrir 23. desember 2022. Athugasemdir má einnig senda í bréfi á skrifstofu sveitarfélagsins Sunnubraut 4, 250 Suðurnesjabæ. Auglýst skjöl deiliskipulagsins eru: ■ Deiliskipulag Garðskaga; Greinargerð og skilmálar – Tillaga ■ Deiliskipulag Garðskaga; Deililskipulagsuppdráttur – Tillaga Jón Ben Einarsson Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar Framkvæmdir við tvö fuglaskoðunarhús á Fitjum í Reykjanesbæ eru komnar vel á stað. Verkefnið er styrk af framkvæmdasjóði ferðamanna- staða en það eru JeES arkitektar í Reykjanesbæ sem hönnuðu húsin. Vonast er til að húsin sem nú rísa á sjávarkambinum á Fitjum auki áhuga á fuglaskoðun en Fitjarnar eru þekktur og vinsæll áningarstaður fugla á leið til og frá varpstöðvum á vorin og haustin. Þá halda hópar af fuglum til á svæðinu til lengri og skemmri tíma en vinsælt er að koma á Fitjar og gefa fuglunum brauð. Ókeypis blóðsykurmæl- ingar í Nettó Krossmóa og Nettó Grindavík Flott fuglaskoðunarhús rísa á Fitjum Form húsanna er sérstakt. Myndir/JeES arkitektar

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.