Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.2022, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 09.11.2022, Blaðsíða 13
Heilsueflandi vinnustaður Ásdís Ragna Einarsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Reykjanesbæ. Flest verjum við um þriðjungi tíma okkar við vinnu og því er mikilvægt að vinnustaðir bjóði upp á heilbrigt vinnuumhverfi og stuðli að heilsu- eflingu og vellíðan almennt. Vinna er góð fyrir andlega og líkamlega heilsu en neikvætt vinnuumhverfi getur leitt til líkamlegs og andlegs heilsu- farsvanda og jafnvel brotthvarfs af vinnumarkaði. Heilsueflandi vinnustaður er verk- færi sem gerir vinnustöðum kleift að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsu og vellíðan til góðs fyrir starfsfólk og er sameiginlegt verkefni vinnuveitenda, starfsmanna og samfélagsins alls. Verkefnið Heilsueflandi vinnustaður er sam- vinnuverkefni VIRK Starfsendur- hæfingarsjóðs, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins og hefur það að markmiði að fyrirbyggja kulnun og draga úr líkum á því að fólk falli brott af vinnumarkaði vegna heilsubrests Á heilsueflandi vinnustað er lögð áhersla á; hollt mataræði, hreyfingu og útiveru eftir því sem við á, vel- líðan starfsfólks, öruggt og heilsu- samlegt vinnuumhverfi, stjórnunar- hætti sem styðja við heilsueflingu, starfshætti sem stuðla að vellíðan og hæfilegu álagi, vímuefnalausan vinnustað og umhverfisvernd. Mótuð voru viðmið fyrir heilsu- eflandi vinnustaði til að auðvelda vinnustöðum að skapa heilsueflandi vinnuumhverfi og vinna þannig markvisst að góðri vinnustaðamenn- ingu. Á vefsvæðinu www.heilsu- eflandi.is er aðgangur að gagnvirku netsvæði þar sem fyrirtækjum og stofnunum í landinu gefst tækifæri á að vinna að sinni eigin heilsueflingu á vinnustað. Heilsueflandi vinnustaður hentar öllum vinnustöðum óháð stærð, at- vinnugrein eða staðsetningu. Ávinn- ingur vinnustaða af því að huga að heilsu starfsfólks er m.a. aukin vel- líðan í starfi og meiri starfsánægja, sterkari liðsheild, betri heilsa og andleg líðan, minni líkur á veik- indum og slysum, fjárfesting í mann- auði, minni starfsmannavelta, meiri framleiðni og eftirsóknarverðari vinnustaður. Fyrirtæki og stofnanir í Reykja- nesbæ eru hvött til þess að taka þátt í verkefninu og stuðla að heilsuefl- ingu á sínum vinnustað en hægt er að skrá sitt fyrirtæki eða stofnun til þátttöku inn á www.heilsueflandi. is. Frekari upplýsingar um verkefnið má einnig finna á vefsíðu Embætti landlæknis. FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS ÚTBOÐ Suðurnesjabær óskar eftir tilboðum í verkið ”Ásabraut – Endurgerð götu - 1. áfangi”. Verkið er fólgið í endurgerð götunnar Ásabraut í Sand- gerði, Suðurnesjabæ sem er íbúðagata í grónu og full- byggðu hverfi með aðkomu að leikskóla. Um er að ræða uppúrtekt í götustæði, gröft fyrir lögnum, fyllingum í götustæði og yfir lagnir, söndun og lagningu lagna, tengja lagnir við núverandi lagnir, útlagning jöfnunar- lags, malbikun, steypa kantstein, steypa gangstéttir og annað eins og fram kemur í útboðgögnum. Helstu magntölur eru u.þ.b: Uppúrtekt ................................................. 2800 m³ Fyllingar ................................................... 2600 m³ Fráveitulagnir ............................................. 450 m Vatnslagnir .................................................. 230 m Malbik ...................................................... 1350 m² Steyptar gangstéttar ................................. 700 m² Þökulögn .................................................... 300 m² Verklok skulu vera eigi síðar en 4 mánuðum eftir að verk hefst skv. samþykktri verkáætlun, þó aldrei síðar en 31. mars 2023. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir út- boðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið jonthor@t-sa.is með upplýsingum um nafn fyrirtækis, heimilisfang, nafni og síma tengiliðs ásamt netfangi. Út- boðsgögn verða þá send á netfang viðkomandi. Útboðsgögn verða afhent frá og með föstudeginum 11. nóvember 2022. Tilboðum skal skilað eins og fram kemur í útboðs- gögnum eigi síðar en föstudaginn 25. nóvember 2022, kl. 14:00. SUÐURNESJABÆR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Mikill áhugi var fyrir sagnastund á Garðskaga í vikunni þar sem varðskipið Óðinn var til umfjöllunar. Egill Þórðarson loftskeytamaður sagði frá varðskipinu Óðni en hópur fyrrum áhafnarmanna og annarra áhuga- samra hafa unnið ómælt við að halda skipinu siglinga- hæfu og er því siglt við hátíðleg tækifæri. Það var áhugahópur um sagnastund á Garðskaga sem stóð fyrir viðburðinum á veitingahúsinu Röstinni og var húsfyllir á þessum fyrsta viðburði en aðgangur var ókeypis og þá var byggðasafnið opið við þetta tilefni. Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi við þetta tæki- færi og sýna þar þéttskipaðan salinn á Röstinni. Mikill áhugi á sagnastund á Garðskaga Egill Þórðarson loftskeytamaður fór yfir sögu varðskipsins Óðins í sagnastund á Garðskaga á þriðjudaginn. Víkurfréttir standa vaktina í Suðurnesjabæ eins og öðrum sveitar- félögum á Suðurnesjum. Ábendingum um áhugavert efni úr Suður- nesjabæ má koma til blaðamanns Víkurfrétta með því að senda póst á hilmar@vf.is eða með því að hringja í síma 898 2222. 50 ára afmæli Kiwanisklúbbsins Hofs var fagnað formlega á dög- unum með kaffisamsæti í félags- heimili klúbbsins í Garði. Við það tækifæri voru afhentar gjafir frá Hofi til Tónlistarskólans í Garði, Gerðaskóla og félagsstarfs ung- menna. Fyrr á árinu voru afhentar gjafir til félagsstarfs í Auðarstofu og dagdvalar aldraðra á Garðvangi. Nemendur við Tónlistarskólann í Garði sungu og spiluðu fyrir afmæl- isbarnið og því voru einnig færðar gjafir. Margir góðir gestir heiðruðu Kiw- anisklúbbinn Hof á þessum tíma- mótum og m.a. var Jóhanna Einars- dóttir umdæmisstjóri Kiwanis á Ís- landi og í Færeyjum í veislunni. Hof er ekki fjölmennur klúbbur. Félagsmenn eru aðeins átta talsins en þeir funda tvisvar í mánuði og eru með öflugt starf, þrátt fyrir fáa félaga. Kiwnisklúbburinn Hof 50 ára Guðmundur Th. Ólafsson, forseti Hofs, Birta Rós Sigurjónsdóttir frá Tónlistarskólanum í Garði og Magnús Eyjólfsson, formaður fjáröflunarnefndar. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri, ávarpaði gesti. Jóhanna Einarsdóttir, umdæmisstjóri Kiwanis á Íslandi og í Færeyjum, skar fyrstu sneiðina af afmælistertunni. Tónlistarfólk úr Garði gladdi gesti í afmælisveislunni. VF-myndir: Hilmar Bragi vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.