Víkurfréttir - 09.11.2022, Side 11
– segir Aníta Lind Róbertsdóttir, stofnandi og
eigandi vefverslunarinnar LIND Scandinavia.
Verslunin býður meðal annars upp á stílhrein vegg-
spjöld í skandinavískum stíl, með íslenskum orð-
skýringum, tilvitnunum og merkingum íslenskra nafna.
„Hugmyndin er að varðveita íslenskt tungumál og um
leið ylja þeim sem þér þykir vænt um með fallegum
orðum. Veggspjöldin eru falleg á heimilið eða einstök
gjöf við hvaða tilefni sem er,“ segir Aníta en hug-
myndin að veggspjöldunum kviknaði þegar Aníta var
huga að jólagjöfum fyrir fjölskyldumeðlimi.
„Veggspjöld með orðskýringum, eða
á ensku „word definitions“, eru ekki
ný af nálinni. Hugmyndin af því að
setja slíkt veggspjald upp sjálf kom til
þegar ég var að velta fyrir mér jóla-
gjöfum. Ég ákvað að prófa að setja
upp veggspjöld sem komu svo vel
út að ég ákvað að gera fyrir alla fjöl-
skylduna, mömmu, pabba, ömmu, afa
og systur mína og eru því textarnir
upprunalega frá mér, til þeirra sem
mér þykir vænst um,“ segir Aníta. Í
fyrstu hugsaði hún með sér að hún
væri mögulega ein um að þykja vegg-
spjöldin flott en ákvað þó að „láta
vaða“ og kanna áhuga vina og vanda-
manna á sínum persónulegu sam-
félagsmiðlum. „Það varð til þess að
LIND hefur í raun verið fullt starf hjá
mér síðan þá. Varðandi veggspjöldin
með merkingum íslenskra nafna,
þá kom sú hugmynd bara einhvern
veginn til mín. Ég tel mig ekki hafa
séð slík veggspjöld áður,“ segir Aníta.
Stefnir út fyrir landsteinana
Eftirspurnin á veggspjöldunum
færðist í aukana eftir því sem leið á
og áður en hún vissi var hugmynd
hennar orðin að fyrirtæki sem fékk
nafnið LIND hönnun. Í dag gengur
fyrirtækið undir nafninu LIND
Scandinavia en það kom til vegna
fyrirhugaðra breytinga. „Nafnið
LIND kemur til vegna millinafns
míns sem mér þykir afar vænt um.
Ég var aldrei nógu sátt við nafnið
LIND „hönnun“ þar sem ekki er beint
um hönnun að ræða. Þegar ég fór
að leiða hugann að því að fara með
vörurnar til Danmerkur, Noregs og
Svíþjóðar, þótti mér nafnið LIND
Scandinavia eiga vel við og þykir
mér það einstaklega fallegt. Breyt-
ingin er sú að stefnan er að markaðs-
setja vörumerkið í fyrrnefndum
löndum,“ segir Aníta.
Aníta segir það vera krefjandi
verk að fara með fyrirtækið út fyrir
landsteinana enda sé margt sem
þurfi að huga að, hún segist jafn-
framt vongóð um að viðtökurnar
verði góðar. „Stærsta verkefnið til
þessa hefur verið að þýða textana
en ég var svo heppin að fá góðar
Suðurnesjameyjar í það verkefni, þær
Elleni Hrund Ólafsdóttur og danskan
unnusta hennar, Niclas Jensen, Guð-
laugu Björt Júlíusdóttur og sænskan
unnusta hennar, Hannes Iwarsson, og
Vigdísi Eygló Einarsdóttur sem þýddi
yfir á norsku,“ segir hún og bætir við:
„Ég hef mikla trú á því að nágranna-
lönd okkar taki vel í LIND, enda um
skandinavískan stíl að ræða.“
Þakklát og stolt að
hafa þorað
Aðspurð hvernig viðtökurnar hafa
verið hingað til segir hún: „LIND
hefur gengið vonum framar frá upp-
hafi og er ég afar þakklát fyrir góða
viðskiptavini. LIND hefur tekið
mestallan minn tíma í rúmlega tvö
ár en ég hef fengið mikla aðstoð
og hvatningu frá mínum nánustu
og þökk sé þeim hefur mér tekist
að sinna rekstrinum vel samhliða
öðrum verkefnum. Ég hef lært margt
af því að hefja rekstur en það mikil-
vægasta er að hafa trú á sjálfum sér
og þora. Ekki leyfa áhyggjum af
mögulegu áliti annarra draga úr þér.
Þegar ég hugsa til baka er ég þakklát
og stolt af því að hafa látið vaða.“
Aníta Lind heldur uppi Instagram-
aðganginum @lindscandinavia og
vörur frá LIND Scandinavia má
versla á vefsíðunni
www.lindscandinavia.is.
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálfum,
sem hér segir
Stafnesvegur 22, Sandgerði, fnr.
209-4437, þingl. eig. Þuríður
Dagný Þormar og Vilhjálmur Birn-
isson, gerðarbeiðandi TM trygg-
ingar hf., þriðjudaginn 15. nóv-
ember nk. kl. 09:00.
Iðngarðar 2, Garði, fnr. 209-5570,
þingl. eig. Hilmar Friðrik Foss,
gerðarbeiðandi Suðurnesjabær,
þriðjudaginn 15. nóvember nk. kl.
09:30.
Garðbraut 15, Garði, fnr. 209-5394,
þingl. eig. Hilmar Friðrik Foss,
gerðarbeiðendur Suðurnesjabær
og Landsbankinn hf., þriðjudaginn
15. nóvember nk. kl. 09:40.
Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr.
232-0531, þingl. eig. Vatnsnesvegur
5 ehf. og Sverrir Einar Eiríksson,
gerðarbeiðendur ÍL-sjóður og
Vörður tryggingar hf. og Sýslu-
maðurinn á Suðurnesjum, þriðju-
daginn 15. nóvember nk. kl. 10:00.
Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr.
232-0532, þingl. eig. Vatnsnes-
vegur 5 ehf. og Sverrir Einar Ei-
ríksson, gerðarbeiðendur Reykja-
nesbær og ÍL-sjóður og Skatturinn
og Sýslumaðurinn á Suðurnesjum,
þriðjudaginn 15. nóvember nk. kl.
10:05.
Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-
0533, þingl. eig. Vatnsnesvegur
5 ehf. og Sverrir Einar Eiríksson,
gerðarbeiðendur Reykjanesbær og
ÍL-sjóður og Skatturinn og Vörður
tryggingar hf. og Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum, þriðjudaginn 15.
nóvember nk. kl. 10:10.
Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-
0534, þingl. eig. Vatnsnesvegur
5 ehf. og Sverrir Einar Eiríksson,
gerðarbeiðendur Reykjanesbær og
ÍL-sjóður og Skatturinn og Vörður
tryggingar hf. og Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum, þriðjudaginn 15.
nóvember nk. kl. 10:15.
Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-
0535, þingl. eig. Vatnsnesvegur
5 ehf. og Sverrir Einar Eiríksson,
gerðarbeiðendur Reykjanesbær og
ÍL-sjóður og Vörður tryggingar hf.
og Sýslumaðurinn á Suðurnesjum,
þriðjudaginn 15. nóvember nk. kl.
10:20.
Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-
0536, þingl. eig. Vatnsnesvegur
5 ehf. og Sverrir Einar Eiríksson,
gerðarbeiðendur Reykjanesbær og
ÍL-sjóður og Vörður tryggingar hf.
og Sýslumaðurinn á Suðurnesjum,
þriðjudaginn 15. nóvember nk. kl.
10:25.
Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr.
236-9586, þingl. eig. Ómar Freyr
Sævarsson, gerðarbeiðandi Ís-
landsbanki hf., þriðjudaginn 15.
nóvember nk. kl. 11:00.
Kliftröð 19, Ásbrú, fnr. 231-8312,
þingl. eig. Steðji fjárfestingar ehf.,
gerðarbeiðandi Fylkir ehf., þriðju-
daginn 15. nóvember nk. kl. 11:15.
Klettatröð 11, Ásbrú, fnr. 209-4241,
þingl. eig. Steðji fjárfestingar ehf.,
gerðarbeiðandi Fylkir ehf., þriðju-
daginn 15. nóvember nk. kl. 11:25.
Klettatröð 7, Ásbrú, fnr. 231-8314,
þingl. eig. Steðji fjárfestingar ehf.,
gerðarbeiðandi Fylkir ehf., þriðju-
daginn 15. nóvember nk. kl. 11:35.
Birkidalur 3, Njarðvík, fnr. 229-
7058, þingl. eig. Gunnar Daníel
Sveinbjörnsson og Erla Ragnars-
dóttir, gerðarbeiðendur Vörður
tryggingar hf. og Reykjanesbær,
þriðjudaginn 15. nóvember nk. kl.
12:00.
Leynisbrún 12B, Grindavík, fnr.
209-2052, þingl. eig. Anton Þór
Pribish Sigurðsson, gerðarbeið-
endur Húsasmiðjan ehf. og Bergvin
Oddsson, þriðjudaginn 15. nóv-
ember nk. kl. 13:15.
Arnarhraun 7, Grindavík, fnr. 209-
1403, þingl. eig. Andrés Þór Ás-
mundsson, gerðarbeiðandi Margrét
Lára Hr Arnardóttir, þriðjudaginn
15. nóvember nk. kl. 13:25.
Ránargata 3, Grindavík, fnr.
209-2183, þingl. eig. Gunnar Þór
Árnason, gerðarbeiðendur Grinda-
víkurbær og Vátryggingafélag Ís-
lands hf., þriðjudaginn 15. nóv-
ember nk. kl. 13:35.
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
7. nóvember
2022
uPPbOð
Mikilvægast af
öllu er að hafa trú á
sjálfum sér og þora
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Ég hef mikla
trú á því
að nágrannalönd
okkar taki vel í
LIND, enda um
skandinavískan stíl
að ræða ...
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 11