Víkurfréttir - 09.11.2022, Page 14
Árið 1984 var Landsmót UMFÍ haldið í Keflavík og var ákveðið að Keflavík myndi vera með lið í blak-
keppni mótsins. Keppendur urðu þá að vera í ungmennafélagi til þess að taka þátt og út frá því var
stofnuð blakdeild UMFK. Ekki fara neinar sögur af starfsemi blakdeildarinnar eftir Landsmótið, þar
til blakdeild Keflavíkur var endurvakin árið 2013. Það má því segja að á næsta ári verða tíu ár liðin
frá formlegri stofnun blakdeildar Keflavíkur. Síðustu tvö ár hefur verið haldinn sérstakur blakdagur
fyrir grunnskólanna þar sem íþróttin er kynnt fyrir nemendum. Í þetta sinn fór blakdagurinn fram í
Nettóhöllinni miðvikudaginn 2. nóvember.
Guðrún Jóna Árnadóttir, formaður
blakdeildar Keflavíkur, segir þátt-
tökuna síðustu tvö ár hafa verið
góða og að börnin sýni blakíþrótt-
inni áhuga. „Skólarnir og börnin
hafa tekið þessu virkilega vel og
finnst þetta virkilega gaman, enda
er blak svo skemmtilegt. Flestir
skólar eru duglegir að gera eitthvað
svona með nemendum sínum til að
auka þekkingu á fjölbreyttri hreyf-
ingu.“ Aðspurð hvers vegna dagar
eins og þessi séu mikilvægir fyrir
deildina segir hún: „Þetta er gríðar-
lega mikilvægt fyrir okkur, það eru
strax komnir nýir krakkar að prófa
og fjölmargar fyrirspurnir að berast
um æfingarnar hjá okkur. Mark-
miðið með þessu er að auka þátt-
töku krakka í blaki á landsvísu og
það sýndi sig í fyrra að það virkaði
því fleiri krakkar fóru að æfa. Þetta
er ekki bara mikilvægt fyrir okkur,
þetta líka mikilvægt fyrir íþrótta-
hreyfinguna. Að kynna íþrótt með
þessum hætti kveikir áhuga meðal
barna á að fara æfa einhverja íþrótt.“
Metmæting á síðasta ári
Guðrún segir deildina hafa vaxið
hægt og rólega í öllum flokkum síð-
ustu tíu árin. „Fyrst voru þetta bara
karla- og kvennaæfingar og tóku
liðin aðeins þátt í hraðmótum og
öldungamótum en fóru svo að taka
þátt í Íslandsmótum og bikarmótum.
Fyrir ári síðan var farið af stað með
byrjendaæfingar og fundum við
mikinn áhuga þar en sá hópur heitir
Öldungar og áhugasamir blakarar.
Áhugi eldri kynslóða hefur greini-
lega aukist síðustu árin. Barna- og
unglingastarfið hefur líka aukist
undanfarin ár og erum við búin fara
úr því að vera með þrjá krakka á æf-
ingu í að vera með fimmtán, tuttugu.
Gaman að segja frá því að í fyrra var
met slegið í fjölda á þeim æfingum
þegar um þrjátíu krakkar mættu.“
Blak er fyrir alla
Guðrún segist reglulega heyra að
fólk sé hissa þegar það fréttir af
því að það sé blakdeild í Keflavík.
Það kemur henni á óvart þar sem
iðkendur hafa náð góðum árangri í
íþróttinni en einnig vegna þess að
Keflavík hefur haldið stór mót hér
í bæ. „Fyrir rúmum þremur árum
héldum við eitt af stærstu íþrótta-
mótum landsins, öldungamót í blaki.
Þar voru saman komnir um 1.500
þátttakendur, eða 165 karla- og
kvennalið, og var mótið fyrir 30 ára
og eldri,“ segir Guðrún og bætir við:
„Einnig hafa tveir strákar úr deild-
inni farið í landsliðsverkefni. Í fyrra
var Gunnar Trausti Ægisson valinn
úr æfingahópi fyrir landsliðsverk-
efni U17 fyrir NEVZA mótið og U18
fyrir EM. Hann var þá sextán ára og
aðeins búin æfa blak í tvö ár. Bjarni
Þór Hólmsteinsson var einnig sextán
ára gamall þegar hann var valin úr
æfingahópnum í U17 fyrir NEVZA.
Þrír aðrir frá blakdeild Keflavíkur
hafa verið boðnir í æfingahópa fyrir
landsliðsverkefni, þau Kristinn Rafn
Sveinsson, Davíð Freyr Sveinsson
og Martyna Kryszewska. Telst það
nokkuð gott miðað við hve lítið og
ungt félagið er.“
Guðrún segir blak vera góða hreyf-
ingu fyrir fólk á öllum aldri. „Blak er
fyrir alla og það segir ekkert til um
aldur. Yngstu iðkendurnir hjá okkur
eru sex ára og elsti 56 ára, blak er
því fyrir allan aldur og skemmir ekki
að félagsskapurinn er ekki af verri
endanum.“
Mikilvægt að
kynna nýjar
íþróttir fyrir
börnum
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Barna- og
unglingastarfið
hefur l íka aukist
undanfarin ár og erum
við búin fara úr því að
vera með þrjá krakka
á æfingu í að vera með
fimmtán, tuttugu . . .
Verkefni vinnustofunnar snýr að því að gera samfélagslagssáttmála fyrir
áfangastaðinn Reykjanesbæ. Sáttmálinn miðar að því að samfélagið setji leikreglur
fyrir ferðamenn og gesti bæjarins og stuðli þannig að betri umgengi og samskiptum
allra aðila sem að koma. Sambærilegir sáttmálar hafa verið gerðir víða um landið
og má finna upplýsingar um það á vef www.AECO.no.
Vinnustofan fer fram í Hljómahöll, miðvikudaginn 16. nóvember frá kl. 13:00-16:00.
Við hvetjum fólk sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun á móttöku skemmtiferðaskipa,
að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Léttar veitingar verða í boði.
Skráning á heimasíðu Reykjanesbæjar (www.reykjanesbaer.is) eða á netfangið
reykjaneshofn@reykjaneshofn.is
Viltu taka þátt í vinnustofu
vegna komu skemmtiferðaskipa
til Reykjanesbæjar?
sport