Rökkur - 01.11.1936, Blaðsíða 1
RÖKKUR
ALÞÍÐLEGT MÁNAÐARRIT
STOFNAÐ f WINNIPEG 1922
XIII. árg. Reykjavík 1937. 11. hefti.
II ■ f * *
Að minsta kosti fimtíu
og fjórar þjóðir taka
þátt í sýningunni, auk
Frakka. Stórkostlegur
undirbúningur er haf-
inn víða um lönd til
undirbúnings þátttöku
í sýningunni.
I maímánuði n. k. ár verður
opnuð alþjóðasýning í París og
er þegar mikið um framkvæmd-
ir til undirbúnings þessari
miklu sýningu ritað í fréttablöð
og tímarit víðsvegar um heim.
Sýning þessi verður ein liin
mesta og fullkomnasta, sem
haldin hefir verið — ef til vill
hin fullkomnasta og glæsileg-
asta, sem nokkuru sinni hefir
haldin verið. Þar sýna þjóðirnar
alt það besta, sem þær hafa
upp á að bjóða, á sviði lista,
vísinda, uppfundninga, iðnaðar
o. s. frv. Hér er um storkostlegt
tækifæri að ræða fyrir hverja
framfaraþjóð til þess að vekja
athygli á sér, ekki að eins fyrir
þá frámleiðslu, sem hún hefir
að selja öðrunj þjóðum, lieldur
og á verkum sinna bestu lista-
manna. Og það sem ekki er
minst um vert, hver þjóð sýnir
þar sinn eigin fána. Fimtíu og
f jórar þjóðir hafa þegar tilkynt
])á(tlöku sína í þessari miklu al-
þjóðasýningu, auk Frakka. Eng-
in menningar- og framfaraþjóð
getur látið það tækifæri, sem
hér býðst, fara fram hjá sér.
N orðurlandaþ j óðirnar
— að íslendingum
undanteknum — hafa
ákveðið þátttöku í sýn-
ingunni.
Frændþjóðir vor íslendinga
liafa ákveðið þátttöku í sýning-