Rökkur - 01.11.1936, Blaðsíða 14
174
RÖKKUR
á þessum slóSum eftir biblíunni
og bókum trúarlegs efnis, mat-
reiðslubókum og tímaritum.
Mrs. McLeod hefir fengið f'jölda
bréfa frá ýmsum, sem notið
hafa góðs af bessari starfsemi.
Mörg þeirra eru frá sjúku
lólki og börnum. Eitt bréfið,
sem hún fékk og þykir einna
mest vænt um, var frá dreng
Hitt og þetta*
—o——'
Nankingstjórnin kínverska
leggur mikla áherslu á, að efla
flugher sinn. — Mme Chiang
Kai-shek, koha forsætisráðherr-
ans, hefir unnið mikið starf í
þágu flugmálanna.
Nanlcingstjórnin ldnverska
hefir að undanförnu lagt hina
mestu áherslu á, að efla flug-
herinn kinverska, og liefir
kona Chiang Kai-shek forsætis-
ráðherra, int mikið starf af
höndum í þágu flugmálanna, og
sannleikurinn er sá, segir í víð-
lesnu og áreiðanlegu amerisku
blaði, að hún er eins valdamikil
og ráðherrarnir, þótt hún opin-
berlega gegni ekki neinu ráð-
herraembætti. „Hún er hér og
þar og alstaðar," segir fréttarit-
ari blaðsins í Nanking, „og nýt-
ur hins mesta álits meðal allra
ráðherranna, er daglega leita
álits hcnnar í mikilvægum mál-
um, enda má og segja, að hún
sé hægri hönd manns síns í
öliu, er utanrikismál og land-
varnir varðar. Mme. Chiang
Kai-sliek er prýðilega mentuð
kona. Mentun sína hlaut hún i
Bandaríkjunum (Wesleyan
College i Macon Georgia og
Wellesley-háskóla). Ensku talar
hún prýðilega og er vel að sér í
mörgum öðrum málum, m. a.
frakknesku, enda liefir hún að-
stoðað mann sinn og aðra ráð-
herra við mikilvægar samn-
ingagerðir. Þótt hún beiti sér
einkum fyrir því, ásamt manni
sínum, að vekja áhuga fyrir
loftvörnum Kína, leggur hún
gjörfa hönd á margt annað, m.
a. hefir hún komið upp fjölda
mörgum skólaheimilum fyrir
munaðarlaus hörn.“
í sambandi við þetta má
minna á, að þá er maður hennar
var hafður i haldi fyrir skömmu
að skipan Chang Tshue-liang,
tók hún mikinn þátt í sam-
komulagsumleitunum til þess
að fá hann látinn lausan. Er það
henni þakkað ekki síst, að
Chiang Kai-shek var látinn laus,
án þess að til frekari vandræða
kæmi.
Samnefndar borgir
í Ameríku og Evrópu.
í amerisku blaði var nýlega
gert að umtalsefni hversu marg-