Rökkur - 01.11.1936, Blaðsíða 8
168
R Ö K K U R
ekki ræktað á Karafuto, en Japanir framleiða ósköpin
öll af þeim. En það er hægt að rækta ýmsar harðgerar korn-
tegundir á Karafuto, hafra og hygg og jafnvel hveiti. Sumir
bændanna leggja aðaláherslu á framleiðslu mjólkurafurða.
Rússneskum og pólskum hændum, sem sest hafa að á Kara-
futo, gengur búskapurinn betur en japönsku bændpnum, enda
eru þeir vanari loftslagi liku því, sem er norður þar.
Það hefir vitanlega sett sinn svip á margt á Karafuto, að
Japanir hafa ráðið þar ríkjum um þrjá tugi ára. Þeir hafa
reist þar fjölda bygginga í japönskum stil, lagt vegi og járn-
brautir og komið góðu sldpulagi á margt. En Chamberlin
segir, að sér hafi altaf fundist, að Japanir eigi ekki þarna
* heima, og margir þeirra sakni altaf ættjarðar sinnar svo, að
þeir eig'i erfitt með að festa rætur þarna norður frá. Sama
hefir reyndin orðið, segir hann, í Mansjúríu, sem Japanar raun-
verulega ráða nú yfir, og nefnist nú Mansjúkó.
Á Karafuto eru enn leifar frumþjóðarinnar, sem þar bjó, er
hvítir menn og gulir fyrst komu þar. Flestir þeirra eru af svo-
nefndum Ainu-, Oroconi-, Tunguz- og Kilyak-þjóðflokkum. Þeir
eru náskyldir frumbúum þeim, sem enn finnast leifar af í
Síberíu. Oroconarnir ferðast um með hreindýr sín og beita
þeim fyrir sleða. Þeir dveljasí aðallega inni í skógunum og
lifa á hreindýrarækt, veiðum og fiskveiðum. Chamberlain sá
nokkura þeirra og fanst þeir minna sig á Indíána. Ættirnar
hafa með sér félagsskap og ef ernhver er hjálpar þurfi í ætt-
inni, er hinum skylt að hjálpa honum.
Enskar
krabbameins-
rannsóknip
Á undanförnum árum hefir
baráttan á Bretlandi gegn
krabbameininu færst mjög í
aukana. Akveðinn órangur er
cnn eigi mikill og erfitt að gera
grein fyrir þeirri hlið málsins.
Við og við birtast tilkynningar
í blöðum þess efnis, að uppgötv-
un hafi verið gerð, sem kunni
að leiða til þess, að ráð finnist
til þess að lækna þennan sjúk-
dóm, en reynslan segir, að það
sé varlegra að vera ekki bjart-
sýnir um of, að því er þetta