Rökkur - 01.11.1936, Blaðsíða 16
176
R Ö K K U R
ar borgir og bæir í Bandarikj-
unum hefðu sömu nöfn og
þýskar borgir. Var þess t. d.
getið, að í Bandaríkjunum væri
nú 82 bæir, sem hafa nafnið
Ilannover, 62 hafa nafnið Ham-
burg, 23 Brunswick og 19
Bremen. Landnemarnir, ekki
að eins Þjóðverjar, hafa vaiið
hæjanöfn úr heimalandi sínu,
er þeir stofnuðu þorp og bæi
vestra, og hefir þessum nöfnum
sjaldan verið breytt. Islenskir
landnemar hafa ráðið nöfnum
ýmissa þorpa og bæja bæði i
Canada og Bandaríkjunum, t. d.
Miklej% Reykjavik, Geysir,
Baldur, Gimli, öll i Manitoba o.
s. frv.
Bandaríkjamenn
ætla að verja 1 >/2 milj. dollara
til hafnarbóta á Kyrrahafseyj-
um — en hafnirnar verða eftir-
leiðis einnig notaðar fyrir flug-
báta flotans.
Tillögur hafa komið fram
um að verja 1.500.00 dollara til
hafnarbóta á ýmsum Iíyrra-
hafseyjum Bandaríkjanan og er
tilgangurinn meðfram sá, að
þær verði þá betur nothæfar
sem lendingarstöðvar fyrir
flugbáta Pan-American-Air-
ways, sem hefir farþega- og
póstflugbáta í förum yfir Ivyrra-
haf, en einnig er á það bent, að
hafnirnar mundu hafa ómetan-
lega þýðingu í liernaði. Verk-
fræðingar herskipaflotans hafa
skoðað hafnir þær, sem í ráði
er að endurbæta, og það er talið
víst, að tillögurnar nái fram að
ganga — og ef til vill, að fjiár-
hæðin verði mikið aukin. Er
það Bandarikjamönnum mikil
livatning að hefjast lianda i
þessu efni, að Japanir vinna að
hafnarbótum á eyjum þeim í
Kyrrahafi, sem þeir hafa fengið
yfirráðarétt yfir, en lilgangur
Japana er að hafa af höfnunum
hernaðarleg not. Þeim er
óheimilt að víggirða eyjar þær,
scm 'þeir hafa umráðarétt yfir,
og þeir neita þvi, að þeir hafi
gert það, en það er þó talið
sannað mál af Bretum og
Bandarík j amönnum.
Nýtt fylgirit:
Einstæðingurinn, saga eftir
Margaret Pedler, er að byrja að
koma út. Fyrstu arkirnar með
þessu hefti Rökkurs.
Utgefandi: Axel Thorsteinson.
Félagsprentsmiiðjan