Rökkur - 01.11.1936, Page 7

Rökkur - 01.11.1936, Page 7
RÖKKUR 167 Gæði kolanna eru þó minni en í námunum á Kyushu og Hok- kaido. Á Ivarafuto eru Japanir byrjaðir að gera tilraunir með að vinna olíu úr kolum, en slík framleiðsla er einnig hafin fyrir nokkuru og i allstórum stíl í Bretlandi. Það er nú sann- að, að auðið er að vinna olíu úr kolum, en það er erfiðara að leysa þann hnútinn, að geta gert það á þann hátt, að það svari kostnaði, en litilí vafi er á, að það muni takast að finna ráð til þess, á þeim framfaratímum, sem nú eru. Allar þjóðir keppast við að nota þau gæði, sem lönd þeirra hafa upp á að bjóða, og þess vegna reyna Bretar og Japanir, sem ekki eiga FRÁ IÍARAFUTO. — JAPANIR Á HUNDASLEÐA. olíulindir í heimalöndum sínum, að vinna oliu úr kolum. Á Ivarafuto er lögð áhersla á það, að fá þangað dugandi menn, sem vilja gerast landnemar. Karafuto ey nefnilega enn að mörgu leyti litt numið land. Landnemarnir fá land til rækt- unar ókeypis, gegn því að þeir brjóti það og rækti. Eitt hundr- að og fimtíu fjölskyldur fá árlega styrk frá stjórn-inni. En svo eru margir dugandi menn, sem liafa flust til Kara- futo, til þess að gerast bændur, án nokkurs stuðnings. Land- nemarnir fá og stuðning til þess að koma sér upp húsum. Um 70 af hverjum 100, sem flust hafa til Karafuto í þessu skyni, hafa komist þar vel áfram og sest þar að fyrir fult og alt, en hinir hafa horfið til heimalandsins aftur. Það eru menn, sem söknuðu svo æskustöðvanna, þar sem er mildara og hlýrra loftslag og meiri gróðursæld. Hrisgrjón geta menn

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.