Rökkur - 15.07.1941, Blaðsíða 2

Rökkur - 15.07.1941, Blaðsíða 2
130 RO KKUR | Frá IJ. A. Hergagnaframleiðslan þre- földuð á fjórum mánuðum. j lok aprílménaðar ráðgerðu yfirmenn vígbúnaðar Bandaríkjanna, að framleiðslan í þágu vígbúnaðarins skyldi tvöfaldast og jafnyel þrefaldast á næstu fjórum mánuðum. Sú framleiðsla á þó ekki aðeins að vera handa her Bandarikjanna, heldur og handa herjum Breta, Rínverja og S.-Ameríkuþjóð- anna. Á tímabilinu frá 4. júlí þang- að til i septembermánuði er ráðgert lað 784 nýjar verk- smiðjur verði teknar til fram- leiðslu á fallbyssum, sprengi- kúlum, flugvélum, brynreiðum og öðrum hergögnum. í árs- byrjun 1942 á enn að taka 100 nýjar hergagnaverksmiðjur í notkun. Verksmiðjur, sem hafa verið lokaðar síðan 1930, eru nú opn- aðar á ný og á eklti að loka þeim aftur, meðan ekki breytist á- standið i heimsmálunum. — Það er ætlunin, að framleiðsla Bandarikjanna verði meiri en allra landa Evrópu til samans. I lok sumarsins á flugvéla- framleiðslan að minnsta kosti að vera orðin 2500 á mánuði, til samanburðar við 1216 flugvél- ar, sem framleiddar voru í marz. Hinar nýju flugvélaverk- smiðjur eiga aðallega að leggja stund á smíði þungra sprengju- flugvéla í stað kennsluflugvéla, sem nú eru framleiddar i svo stórum stíl, að það fullnægir eftirspurninni. Framleiðsla vél- byssna þrefölduð, Framleiðsla léttra skriðdreka — 13 smál. — verður þrefölduð, framleiðsla allra gerða vél- byssna, sem nú' er 10% á undan áætlun, riffla og smávopna verð- ur þrefölduð og vel það, og sama verður að segja um fram- leiðslu sprengikúlna og púðurs. Framleiðsla þeirra 3400 skipa, sem ætluð eru tveggja-hafa-flot. anum svo og kaupskipaflotum Bandaríkjanna og Bretlands, á að vísu að taka tvö til þrjú ár, en henni er nú hraðað eftir megni með þvi að verksmiðjur inni í landi eru látnar framleiða þau i hlutum, en þeir eru svo fluttir til sjávar. Allar skipa-

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.