Rökkur - 15.07.1941, Qupperneq 3
RÖKKUR
131
smíðastöðvar landsins hafa
verið teknar í notkun og nýjar
er verið að reisa á strömlum
Atlantshafs, Kyrrahafs, Mexí-
kó-flóa og stóru stöðuvatnanna.
Aluminium-famleiðslan, sem
nam 20.000 smál. mánaðarlega
í apríl á að komast upp í 40.000
smál. í sumar, en fyrir ári síðan
var aluminíumframleiðslan að-
eins 12.000 smál.
Sérfræðingar ríkisstjórnar-
innar vinna nótt með degi að
því að finna gerfiefni í stað
éfna, sem eru bráðnauðsynleg
til hernaðar, en finnast ekki inn-
an endimarka landsins, svo sem
tungsten, gúmmí, tin, mangan,
nikkel og króm. Jafnframt er
unnið að því af kappi, að safna
birgðum af þesáum efnum frá
framleiðslulöndunum, ef svo
færi að siglingar tepptust við
þau.
Talið er, að hægt sé að afla
12.000 smál. af tini á ári með
því að bræða gamlar dósir og er
nú verið að smiða bræðsluofna
til þessa í Texas.
Hátt á þriðju milljón verka-
manna hafa fengið atvinnU
vegna vigbúnaðarins, síðan
hann var hafinn fyrir alvöru.Bú-
izt er við að 4.000.000 manna í
viðbót fái atvinnu vegna her-
gagnaframleiðslunnar, beint eða
óbeint.
J? rá 1. ágúst eiga bifreiða-
verksmiðjur Bandaríkj-
anna að draga úr framleiðslu
sinni um fimmta hluta til þess
að taka að sér vígbúnaðarstörf.
Hefir hifreiðaiðnaðinum verið
falið að framleiða hergögn o.
fl. fyrir 2.000 milljónir dollara.
Bifreiðaverksmiðjurnar veita
500.000 mönnum atvinnu þegar
nóg er að gera, en 300.000 mönn-
um á að bæta við vegna vígbún-
aðarins og eiga um 150.000
þeirra að vera að störfum um
áramótin.
Þessi störf verksmiðjanna
skiptast þannig:
Chrysler: 6000 menn vinna
að framleiðslu skriðdreka.
Buick: 15.000 menn vinna
að framleiðslu flugvélahreyfla.
Ford: 10.000 menn starfa að
framleiðslu flugvélahreyfla.
Studebaker: 9.400 menn
starfa að framleiðslu flugvéla-
lireyfla.
Packard: 14.000 manns vinna
að framleiðslu flugvélahreyfla.
Hudson: 5000 menn starfa að
framleiðslu flotafallbyssna.
General Motors, Ford og
Chrysler eiga auk þess að fram-
leiða hluti úr sprengjuflugvél-
um og eiga 107.000 manns að
starfa að þessari framleiðslu.
Packard • verksmiðjurnar
framleiða einnig hreyfla, sem
notaðir eru í herbátana litlu,