Rökkur - 15.07.1941, Qupperneq 16

Rökkur - 15.07.1941, Qupperneq 16
144 R Ö K K U R milli okkar. Við gátum ekki séð hvaðan hún kom, en gerðum ráð fyrir, að hún kæmi ofan úr hlíðinni, þar sem sveitir okkar voru að lgita. Leyniskyttan lifði ekki þá nótt á enda. Um kl. 10 kom hann og varpaði handsprengju á jarðhúsið, þar sem O’Brien var að störfum. O’Brien var i síðasta stríði, svo að hann vissi að hann átti að liggja kyrr, þegar hann fann að hann var ósærður. Hann hevrði manninn kalla á þýzku: „Öllu óhætt. Eg sá fyrir lionum“, og jafnframt stóð hann upp og hljóp til fé- laga sinna. O’Brien rendi örygginu á byssunni fram og lét öll fimm skotin fara og morguninn eftir fannst hann — ungur Þjóðverji skotinn i gegnum höfuðið. H •ANN var stór og stæðilegur, eins stæðilegur og fanginn, sem komið var með þenna dag — stór og einfaldur Saxi, sem stóð teinréttur i fallhlífarein- kennisbúningi sínum. Flugvél kom fljúgandi meðan eg var að tala við hann, svo að eg tók i hann til að draga hann úr aug- sýn. Hann ypti bara öxlum og sagði: „Verið ekki hræddir við hana.“ En þá skaut flugvélin af vél- byssu og Saxinn varð dauð- skelkaður. Litli Bretinn, sem gætti hans, horfði undrandi á hann og síðan fyrirlitlega. — Hann gætti líka tveggja svif- flugmanna, 18 ára gamalla, sem höfðu verið teknir i herinn fyr- ir hálfum mánuði, til að stjórna svifflugunum. Þeir kunnu ekki einu sinni að skjóta af byssu og voru i vinnufötum í stað einkennis- klæða. Annar skældi, því að hann hjóst við að verða skotinn fvrir að vera óeinkennisklædd- ur. „Hann ætti það skilið,“ sagði Tommy, varðmaðurinn. En flugmaðurinn var látinn fylgj- ast með hinum föngunum. Varðmennirnir sögðu mér, að þegar stór fjórhreyfla flugvél flaug þá um daginn vfir Canea, hafi allir þýzku flugmennirnir orðið dauðhræddir og kastað sér niður. Á eftir sögðu þeir, að þetta hefði verið Focke-Wulff flug\-él, sem ber afar þungan sprengjufarm. h. (Niðurlag.) Útgefandi: Axel Thorsteinson. Afgreiðsla: í Félagsprentsmiðjuhúsinu, uppi. Opin 9—10 og 12—1 daglega.

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.