Rökkur - 01.11.1942, Side 2

Rökkur - 01.11.1942, Side 2
kókkur — Eftirfarandi kafli er úr greinaflokkinum „Fornar sagn- ir endursagðar“, eftir F. Mata- nia, en þær eru hinar fróðleg- ustu og þykja með afbrigðum F. Matania: skemmtilegar. Frásögnin er nokkuð stytt í þýðingunni. — ÆíSntýri Kólumbn§ar. Áform Kolumbusar var að komast sjóleiðis til landsins, sem Marco Polo var sagður hafá komizt til landleiðis, og stofna til kynna og viðskipta við valdamenn og áhrifa í öllum þeim fylkj- um, sem Khan liinn mikli réði yfir, en Khan var einnig kallaður „konungur konunganna" og talinn auðugastur allra þjóðhöfð- ingja heims. En markmið Kolumbusar var einnig að boða kristna trú og sameina dreifða og sundurleita þjóðflokka, sem að sögn Toscanelli höfðu tekið kristna trú, en voru forystulausir og mundu fagna þeim, er til kristilegrar forystu byðist. Kolumbus hafði meðferðis til Khans liins mikla bréf, sem undirritað var af Ferdinand Spánarkonungi og Isabellu drottn- ingu. En í bréfi þessu var ekki minnst á nein áform um að kristna þjóðflokka í mörgum löndum heims. Það var augljóst, að markmið spönsku liirðarinnar var aðeins eitt: Að auðgast og eflast að áhrifum. Hlutverk Kolumbusar var að komast að því, hvar auðugar námur væri j jörðu, og senda til Spánar hvert skipið af öðru ldaðið gulli og gimsteinum. Hon- um har að finna ny lönd og leggja þau undir spönsku krúnuna og þar með stofna spanskt heimsveldi. Hann átti að hafa óbundn- ar hendur, — Honum var heimilað að leggja undir Spán öll lönd, er hann fyndi, nema, þau sem þegar lutu stjórn hvítra, kristinna þjóða. Kolumbus lét þessa afstöðu hirðarinnar engin áhrif hafa a áform sín. Hann vissi, að ef hann færi að gera grein fyrir mann-

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.