Rökkur - 01.11.1942, Blaðsíða 10

Rökkur - 01.11.1942, Blaðsíða 10
250 KOKKUE settir á flot og róið til lands. Valið lið’var sent á land og báru menn sin beztu klæði og ekki gleymdist að liafa glysvarning meðferðis. Kolumbus hafði klæðst fötum gerðum úr dýrindis flaueli og bar hann konungsfánann. Hann steig fyrstur á land og þar næst hinir tveir skiplierrarnir. Þegar Kolumbus bafði stigið fótum á hið nýja land kraup hann á kné og þakkaði guði skjálfandi röddu leið- sögn hans. Allir aðrir krupu á kné góða stund á mannlausri strönd- inni, því að binn nakti lýður liafði lagt á flótta og faldi sig meðal nmnanna skammt frá fjörunni. Landgöngusveitin gekk þá með Kolumbus i farabroddi upp á smáliæð og þar lýsti Kolumbus því hátíðlega yfir, að landið væri lagt undir konung og drottningu Spánar. Samkvæmt samkomulaginu var hann nú titlaður Don Kolum- bus og yfirflotaforingi á Atlantshafi. Eyjarskeggjar liertu nú upp hugann og færðu sig nær, því að aðkomumennirnir brostu til þeirra, og bugðu eyjarskeggjar þvi, að þeir þyrftu ekkert að óttast. Kolumbus benti sumum þeirra að koma nær og þeir þyrptust kringum hann og skoðuðu skartklæðn- að hans af mikilli forvitni. Sjálfur segir hann svo frá: „Eg gaf þeim rauðar húfur, festar úr lituðum glerjum, og aðra verðlitla en skartlega hluti. Þeir settu festarnar þegar um báls sér og þeir voru af hjarta þakklátir. Þeir virtust snauðir, en það lítið sem þeir höfðu stóð okkur til boða. Allir, konur sém karlar, voru alls naktir. Eg sá engan, hvorki karl eða konu, sem virtist eldri en þrjátíu ára. Allir voru vel byggðir, hraustlegir og alúðlegir á svip. Eivginn bar vopn, en karlmennirnir skoðuðu daggarð minn og handléku af nokkurri forvitni, og vöruðu sig ekki á því, að eggin var beitt“. Frá þessu segir Kolumbus ílarlega í minnisbókum sínum, frá þessu og öðru, sem gerðist hinn sögulega dag, 12. október 1492, er menn hins gamla heims í fvrsta sinni komust í kynni við íbúa hins nýja heims — Yesturálfu. Örlagadísirnar krýndu Kristófer Kolumbus tvívegis, 'í annað skiptið settu þær lárviðarsveig á böfuð hans, í hitt skiptið þyrni- kórónu.

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.