Rökkur - 01.11.1942, Page 14

Rökkur - 01.11.1942, Page 14
254 R O K K U R mætti mæla. Hann reif klaka- búta af andliti sínu jafnóðum og þiðnaði um þá. Hann henti þeim á ofninn og sauð þegar á þeim og var það eina hljóðið sem heyrðist í svip. Enginn mælti orð af vörum. -----„Ekkert að mér“, sagði hann loks. „En ef það er lækn- ir staddur hér, er lians sannar- lega þörf. Ofarlega við litlu Peco liggur maður nokkur þungt haldinn. Hann lennti í hardaga við pardusdýr og það er ógur- legt á að líta hvernig hann er útleikinn.“ „Hvað er langt þangað upp eftir?“ Iireytti Lindsay úr sér. „Um 160 kílómetra.“ „Hvenær gerðist þetta?“ „Fyrir þremur dögum og eg liefi verið þrjá daga á leiðinni.“ „Ásigkomulag mannsins?“ „Öxlin úr liði. Nokkur rif brotin . Hægri handleggur brot- inn. Sleiktur og klóraður inn að beini á mörgum stöðum. Andlitið óskaddað. Við saum- uðum saman á tveim eða þrein stöðum til hráðahirgða, hund- um saman með tvinna við lif- æð, þar sem hann var sundur- hitinn.“ „Þá er úti um liann. Hvar í líkamanum ?“ „Kviðnum.“ „Hann lítur vízt fallega út núna.“ „Við gerðum það sem liægt var . Við þvoðum sárin með veggjalúsavökva áður en við saumuðum saman, Aðeins þó til bráðahirgða. Höfðum aðeins léreftstvinna, en þvoðum hann líka.“ „Maðurinn er sama sem dauður,“ sagði Lindav um leið og hann tók spilin sín. „Nei. Þessi maður ætlar sér ekki að deyja. Hann veit, að eg fór að sækja lækninn. Honum tekst að lifa þangað til þú kem- ur. Hann hefir ákveðið að lifa þangað til. Eg þekki hann.“ „Kristileg vísindi og rotinn líkami, ha?“ sagði læknirinn Iiáðslega. „Eg stunda ekki lækningar nú. Og þvi síður dett- ur mér í hug að ferðast hundrað mílur í fimmtíu stiga frosti fyrir dauðan mann.“ „Þú ferð og það fyrir mann, sem er langt í frá dauður“. Lindsay hristi höfuðið. „Leitt að þá fórst ónýtisför, en þú getur verið hér í nótt.“ „Við leggjum af stað innan tíu mínútna." „Hvi ertu svo handviss um það?“ Þá var það, sem Tom Daw hélt lengstu ræðuna á ævi sinni: „Af þvi, að hann ætlar sér að lifa þangað til þú kemur, þótt þú verðir að hugsa þig um í viku. Þar að auki er konan hans

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.