Eldhúsbókin - 10.03.1982, Side 4
Vex villtur undir trjánum í rökum frumskógum Brazilíu.
Kýs því raka og hlýju. Eftirsóknarverður vegna sérkenni-
legrar blaðfegurðar. Ræktað er einkum afbrigðið Maranta
Leucomeura sem ber allstór dökkgræn blöð með stóra flau-
elsbrúna bletti í beinum röðum (báðum megin blað-
strengjar). Neðar eru blöðin blágræn með rauðleita flekki.
Annað afbrigði „Massangeana" hefur rauðar blaðtaugar og
flauelskennda flekki. Til eru fleiri afbrigði t.d. M. bicolar
með 6-8 brúna flekki. Lítið er varið í blómin. Fluelsblettur
Flauelsblettur (Maranta)
liggur ekki alltaf kyrr. Á nóttunni og í mjög sterku sólskini
er líkt og hann leggi saman lófana, þ.e. vefur blöðunum
saman, hvoru á móti öðru. Á morgnana færast blöðin í
lag aftur. Flauelsblettur fer vel í lágum, breiðum jurta-
pottum eða skálum, svo blöðin geti breitt úr sér, þakið
moldina og haldið henni jafnrakri. Gott er að úða blöðin
oft með ylvolgu vatni a.m.k. ekki ísköldu. Ekki má vatn
standa til lengdar i undirskálinni og pottarnir þurfa að
vera vel framræstir. í gatalausri skál er betra en ekki
að hafa möl á botninum. Vökvið vel og jafnt á sumrin. Ef
rótin þornar dökkna oddar blaðanna. (Einnig í of þurru
stofulofti). Á sumrin skal vökva í góðri birtu. Liturinn
breytist oft ögn með aldrinum. Fjölgað með skiptingu á
vorin. Einnig með græðlingum á sumrin. Má síðan gróður-
setja nokkra græðlinga í sama pott eða blómaker. Dálítið
sendin gróðurmold hæfir vel. Jurtin þarf hvíld og litla vökv-
un á veturna. Má þó alls ekki þorna alveg. Allsvipaðar
flauelsbletti eru sumar Calathea tegundir með dökkgræn
blettótt blöð. Að neðan eru blöðin oft samlit. Af tegundum
má nefna Calathea makoyana og C. lancifolia, C. ornata er
sérkennileg með rósrauðar rákir á ungum blöðum, en
seinna fílabeinsgul. Calatheategundir þrífast vel í flötum
skálum eða í jurtapottum sem fylltir eru með möl eða
leirbrotum upp til hálfs. Þurfa hlýju og mikinn loftraka.
Þola illa hið þurra loft miðstöðvarofna.
Saltsíldarréttir
PAPRIKUSÍLD
2 saltsildar, 1 msk allrahanda, 1 tesk hvít
piparkorn, 2 lárviðarlauf, 1 stór laukur, 1 rauð
paprika, 1 dl edik, 1 dl sykur, 2 dl vatn.
Látið sildarnar liggja f bleyti í 12 klst.
Hreinsið sildarnar vel og flakið þær en roð-
flettið þær ekki. Sildarflökin skorin í 2 cm
breiða bita, sem raðað er í krukku ásamt
gróft muldu kryddinu og lárviðarlaufinu. Sjóð-
ið saman edik, vatn og sykur, kælið það og
hellið því yfir síldarbitana f krukkunni. Geymt
á köldum stað í 2 sólarhringa. Sett í krukku
sem bera má á borð ásamt laukhringjum,
paprikubitum og dilli. Einnig má setja svört
piparkorn með, það er fallegra. Hellið leg-
inum af. Sjóðið saman 1 dl af ediki, 1 dl af
sykri og 2 dl af vatni og hellið þvi yfir.
SÍLDIN HANS AFA
2 saltsíldar, 2 dl söxuð púrra, 'A dl smátt-
saxaður sultaður laukur, 200 gr olíusósa, 1
dl súrmjólk, 1 tesk karrý, 1 tesk paprikuduft.
Hreinsið, skolið og flakið síldarnar. Látið
þær liggja I bleyti í 12 klst. Skerið síldina i
mjóar ræmur og setjið hana á fat ásamt púrru
og lauk. Hrærið saman oliusósu og súrmjólk
og bragðbætið með karrý og paprikudufti. Hell-
ið sósunni yfir síldina. Geymd á köldum stað
í einn sólarhring áður en hún er borðuð.
Skreytt með söxuðum lauk og púrru.
NORSK SÍLD
4 síldarflök úr edikslegi, púrra, 2 harðsoðin
egg, 150 gr olíusósa, 3 msk sýrður rjómi, 3
dl saxaðar sýrðar rauðrófur, 1V4 dl eplabitar,
1 'h msk saxaður laukur, sinnep eða rifin pip-
arrót.
Skerið síldarflökin í bita. Raðið þeim á fat
ásamt saxaðri púrru. Skreytið fatið með eggja-
bátum. Hrærið saman olíusósu og rjóma, setj-
ið epli og rauðrófur saman við og kryddið
með sinnepi eða piparrót.
GESTASÍLD
Hreinsið og flakið tvær saltsildar. Látið
flökin liggja í bleyti yfir nótt. Saxið einn
lauk og látið hann krauma í smjörlíki á pönnu.
Saxið 2 harðsoðin egg og 2 epli og blandið
því saman við laukinn. Roðflettið síldarflökin
og raðið þeim ofan á. Skerið einn lauk i
sneiðar og raðið þeim yfir síldarflökin. Hellið
einum bolla af kaffirjóma yfir og látið síldina
sjóða i 5-7 minútur.
SALTSÍLD MEÐ BRÆDDU SMJÖRI
Látið 4 saltsíldarflök liggja í bleyti í 4 klst.
Takið flökin upp, roðflettið þau og skolið þau
úr heitu vatni þrisvar sinnum. Raðið síldar-
flökunum á fat og hellið bræddu smjöri yfir.
Harðsjóðið 2-3 egg, afhýðið þau og saxið
rauður og hvítur hvort [ sfnu lagi. Stráið því
í röðum yfir síldina ásamt saxaðri steinselju
eða graslauk.
EPLASÍLD
4 saltsíldarffök. púrra, dill, 2-3 epli, 1 msk
rasp, 50 gr smjör, 1% dl rjómi.
Smyrjið eldfast fat og setjið saxaða púrru
og dill í botninn á því. Setjið útvötnuð síldar-
flökin ofan á. Skerið súr epli I þunnar sneið-
ar og setjið þær inn á milli flakanna. Stráið
raspi yfir og setjið nokkra smjörbita efst.
Sett í 200°C heitan ofn í ca. 15 mínútur. Þá
er rjómanum hellt yfir. Soðið áfram í nokkrar
mín. Bornar á borð með nýsoðnum kartöflum.