Eldhúsbókin - 10.03.1982, Side 6
APPELSÍNUR (Framh. af forsíðu)
Hrærið saman appelsínuhýði, appelsínusafa, sykur og
smjör. Hitið allt saman í vatnsbaði, þar til smjörið er bráð-
ið. Þeytið maukið vel saman og hrærið eggin saman við.
Látið allt krauma en ekki sjóða og hrærið stöðugt í því
þar til það þykknar. Það tekur ca. 20 mín. Hellið maukinu
( hreina krukku og látið það kólna. Setjið lok á krukkuna
og geymið hana á köldum stað.
APPELSÍNUTERTA
4 egg, 2 dl sykur, 1 dl hveiti, 1 dl kartöflumjöl, 1 tesk lyfti-
duft,
Fyliing: 1 skammtur af appelsínumauki (uppskriftin á und-
an), 2 dl þeyttur rjómi.
Skraut: Þeyttur rjómi, appelsínusneiðar.
Stillið bakarofninn á 175°C. Smyrjið kringlótt tertumót
sem tekur ca. 2 lítra. Þeytið saman egg og sykur. Blandið
saman hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti og hrærið því sam-
an við egg og sykur. Hellið deiginu í tertumótið og bakið
það í ca. 30 mín. Hvolfið kökunni úr mótinu og látið hana
kólna. Búið til einn skammt af appelsínumauki. Látið það
kólna. og hrærið það síðan saman við þeyttan rjómann.
Skiptið kökunni í tvo eða þrjá botna og leggið þá saman
með appelsínufyllingunni. Skreytið tertuna eftir smekk með
þeyttum rjóma og þunnum appelsínusneiðum.
APPELSÍNUHLAUP
4 dl nýpressaður appelsínusafi, Ví dl nýpressaður sítrónu-
safi, IV2 dl vatn, IV2 msk sykur, 6 blöð matarlím, vínber,
mandarínubátar.
Blandið saman ávaxtasafa, vatni og sykri. Látið matar-
límið liggja í bleyti, bræðið það og hellið því út í ávaxta-
safann. Hrærið vel í. Hellt í vatnsskolað mót. Sett á kald-
an stað, þar til hlaupið er vel stíft. Hvolft á fat og skreytt
með vínberjum og mandarínubátum. Borið fram með þeytt-
um rjóma og litlum möndlukökum eða ískexi.
SUNNUDAGABÚÐINGUR
2 eggjarauður, 5 msk sykur, safi og rifið hýði af 1 stórri
appelsínu, 5 blöð matarlím, ÍV2 dl þeyttur rjómi, 2 eggja-
hvítur.
Hrærið eggjarauður og sykur vel. Hrærið síðan saman
við appelsínusafa og hýði. Bræðið matarlímið og hrærið
því saman við. Þeytið rjóma og eggjahvítur sitt í hvoru
lagi. Hrærið þá varlega saman við eggjablönduna, fyrst
rjómanum og síðan eggjahvítunum. Hellt í mót og látið
bíða á köldum stað í nokkrar klukkustundir. Hrært í búð-
ingnum annað slagið. Hvolft á fat og skreytt með appel-
sínusneiðum.
APPELSÍNUBÚÐINGUR MEÐ HRÍSGRJÓNUM
IV2 dl löng hrísgrjón, vatn, salt, 2 dl þeyttur rjómi, 3 blöð
matarlím, 1 msk vanillusykur, ca. 2 msk sykur, 3-4 appel-
sínur.
Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbeiningum á pakkanum. Skol-
ið þau úr köldu vatni og látið renna vel af þeim. Þeytið
rjómann og bragðbætið hann með sykri og vanillu. Bræðið
matarlímið og hrærið það saman við. Afhýðið appelsín-
urnar og skiptið þeim í rif. Gætið þess að engar hvítar
himnur fylgi með. Skerið appelsínurifin í litla bita. Hrærið
hrísgrjónin og appelsínubita saman við rjómann. Hellt í
vatnsskolað mót og sett á kaldan stað i nokkrar klst. Búð-
ingnum hvolft á fat og skreyttur með smáttrifnu appelsínu-
hýði og appelsínurifum.
FYLLTAR APPELSÍNUR
4 stórar appelsínur, 1 pakki vanillusósa, 2 blöð matarlím,
1 dl þeyttur rjómi.
Skraut: Þeyttur rjómi, kokteilber, appelsínuhýði.
Skolið appelsínurnar vel. Skerið lok af hverri appelsínu.
Pressið safann úr þeim og hreinsið síðan appelsínuhýðin
vel. Búið til vanillusósu eftir leiðbeiningum á pakkanum.
Bræðið matarlímið í appelsínusafanum og hrærið því út
í vanillusósuna. Setjið þá stífþeyttan rjómann saman við.
Þegar vanillusósan byrjar að stífna er hún sett í appel-
sínuhýðin og þau látin standa á köldum stað í ca. 1 klst.
Skreytt síðan með þeyttum rjóma, appelsínuhýði og kok-
teilberjum.
(Framh. á næstu síðu) 22