Fréttablaðið - 09.02.2023, Page 11
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Kapítalismi er ekki hrífandi orð.
En fram hjá því verður ekki horft
að samhliða velferðarþjónustunni
skapar hann eftirsóknarverð gæði
fyrir fjöldann. Bankar eru svo
musteri kapítalismans.
Samkeppni er ásamt eignarrétti
forsenda kapítalisma. Það þýðir að
því minni sem samkeppnin er því
minni er kapítalisminn. Af sjálfu
leiðir að hvergi er virk samkeppni
mikilvægari en einmitt á markaði
fjármálafyrirtækja.
Góð tíðindi
Samkeppni milli þriggja stærstu
bankanna hefur lengi verið ófull-
komin. Samt bólar stundum á
henni.
Um miðjan nóvember greindi
forstjóri Kviku banka frá því að
frumkvæði bankans að nýrri og
kostnaðarlítilli tæknilausn hefði
haft umtalsverð samkeppnisáhrif
með hærri innlánsvöxtum. Hann
reiknaði með að frumkvæðið hefði
skilað heimilunum um tíu millj-
örðum króna á einu ári.
Þetta er dágóð upphæð, sem
skiptir heimilin máli, þótt hún sé
ef til vill ekki stórt hlutfall af heild-
arumfangi bankanna.
Tíðindi af þessu tagi eru svo fá
að þau hefðu verðskuldað meiri
athygli en raun varð á. Þau sýna að
samkeppni er möguleg.
Svo lengi sem
Eigendur Íslandsbanka þurfa nú
að taka afstöðu til óska Kviku
banka um samrunaviðræður. Það
væri lítið umhugsunarefni fyrir
almenning nema fyrir þá sök
að ríkissjóður á enn ríflega tvo
fimmtu hluta bankans.
Það er fullkomlega eðlilegt að
eigendur bankanna sjái sóknar-
færi í sameiningu og möguleika til
þess að auka verðmæti hlutabréfa
sinna svo lengi sem samkeppni
er nægjanlega virk til að tryggja
viðskiptavinum, heimilum og
fyrirtækjum, eðlilega hlutdeild í
væntum ávinningi.
Nýr banki yrði aukheldur að
stórum hluta í félagslegri eigu
ríkissjóðs og lífeyrissjóða. Að
sama skapi myndi ávinningurinn
styrkja eignastöðu félagslega hluta
þjóðarbúsins.
Mögulega bætir samruni hag
neytenda. Líkur á því hafa þó enn
ekki verið leiddar í ljós.
Vandinn
Eini vandinn í þessu máli felst í
hinu að ríkissjóður er ekki venju-
legur eigandi að fyrirtækjum á
samkeppnismarkaði.
Almennir hluthafar láta reyna
á afstöðu Samkeppniseftirlitsins
eftir að þeir hafa komist að niður-
stöðu. Það eru eðlilegar leikreglur.
Ríkið á hins vegar að hafa
skoðun á því samtímis hvort sam-
runi sé hagkvæmur og samkeppni
næg til að neytendur tapi ekki.
Þetta leiðir einfaldlega af því
að samkeppni og neytendavernd
eru kjarnaviðfangsefni ríkisins en
ekki annarra hluthafa.
Fyrstu viðbrögð ríkisstjórnar-
innar benda hins vegar til þess að
hún ætli ekki að leggja sjálfstætt
mat á samkeppnisstöðuna.
Pólitík
Þessi afstaða þarf ekki að brjóta
í bága við lög. Hún endurspeglar
bara sameiginlega pólitík stjórnar-
flokkanna varðandi samkeppni og
neytendavernd.
Lög um sölu á eignarhlutum
ríkisins í fjármálafyrirtækjum
segja skýrt að það skuli ávallt vera
markmið með sölu að efla virka
og eðlilega samkeppni. Í athuga-
semdum með frumvarpinu segir
að fyrir fram skuli meta sam-
keppnisáhrifin.
Í bæði skiptin sem sala á bréfum
ríkissjóðs í Íslandsbanka hefur
farið fram var þessi lagaskylda
virt að vettugi. Athyglisvert er
að eftirlitsaðilar hafa ekki gert
athugasemdir við það, jafnvel ekki
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis.
Að þessu leyti er lagaumgjörðin
of veik þegar ríkisstjórnir sitja,
sem líta á samkeppni sem víkj-
andi markmið en ekki forsendu
markaðsbúskapar. Slík sjónarmið
þekkjast lengst til hægri og lengst
til vinstri.
Skyldurækinn ráðherra
Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins frá
2018 segir að stofnist til nýrra yfir-
ráða við sölu á eignarhlut þyrftu
stjórnvöld þegar við undirbúning
slíkra ákvarðana að taka afstöðu
til þess hvort í henni felist skerðing
á samkeppni, sem leitt geti til
íhlutunar eftirlitsaðila.
Í því ljósi ætti að vera ákvæði í
eigendastefnu ríkisins, sem gerði
fulltrúum skattborgaranna á hlut-
hafafundum fjármálafyrirtækja
að gera fyrir fram rökstudda grein
fyrir mögulegum samkeppnis-
áhrifum ákvarðana um samruna.
Frá sjónarmiði almannahags-
muna er samkeppnin mikilvægari
en hlutabréfaverðið. Þess vegna
þurfa þeir sem fara með eignarhlut
ríkisins að hugsa öðruvísi en aðrir
hluthafar. Það er fylgifiskur opin-
bers eignarhalds.
Skyldurækinn ráðherra sam-
keppnismála myndi núna taka
málið upp á borð ríkisstjórnar og
óska eftir að eigendastefna ríkisins
yrði gerð skýr og afdráttarlaus um
þessi efni áður en fulltrúar ríkisins
taka afstöðu. n
Kapítalismi og samkeppni
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
LAND ROVER Discovery Sport P300e
Nýskr. 5/2021, ekinn 37 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 8.590.000 kr.
Rnr. 421088.
LAND ROVER Range Rover Vogue P400e
Nýskr. 8/2019, ekinn 91 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 13.990.000 kr.
Rnr. 149626.
JAGUAR I-Pace EV400 SE
Nýskr. 10/2019, ekinn 39 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 9.490.000 kr.
Rnr. 333027.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
1
4
8
8
1
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
5
x
2
0
6
b
íl
a
r
9
f
e
b
LAND ROVER Range Rover Sport HSE P400e
Nýskr. 7/2019, ekinn 46 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 11.890.000 kr.
Rnr. 421089.
JAGUAR E-Pace S
Nýskr. 1/2020, ekinn 49 þús. km, dísil, sjálfskiptur.
Verð: 6.690.000 kr.
Rnr. 421086.
LAND ROVER Discovery Sport
Nýskr. 5/2020, ekinn 23 þús. km, dísil, sjálfskiptur, 7 manna.
Verð: 8.390.000 kr.
Rnr. 149446.
Fréttablaðið sKoðun 119. Febrúar 2023
FIMMTuDAGuR