Fréttablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 21
Vesturgata 61 Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. janúar 2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.133.1, Landhelgisgæslureits, vegna lóðarinnar nr. 61 við Vesturgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir þ.e. Vesturgata 61 og Seljavegur 8. Á hvorri lóð er skilgreindur byggingarreitur og leyfilegt að byggja eitt íbúðarhús innan hvors reits. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Mosavegur hjúkrunarheimili Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. janúar 2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Spöngina, einingu H, vegna hjúkrunarheimilis við Mosaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er ný lóð 9750 m2 að stærð. Heimildum til uppbyggingar á svæðinu er breytt þannig að í stað íþróttahúss og sundlaugar verði heimilt að byggja 3-5 hæða hjúkrunarheimili með allt að 145 rýmum og tengdri þjónustu. Settir eru sérskilmálar fyrir uppbygginguna. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Spítalastígur 4, 4B, 6 og 6B Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. janúar 2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.0, Bergstaðastrætisreita, vegna lóðanna nr. 4, 4B, 6 og 6B við Spítalastíg. Í breytingunni sem lögð er til felst að kvöð um umferð á lóð Spítalastígs 4 að Spítalastíg 4B verður felld út og þess í stað verður sett kvöð á allar lóðir um umferð að Spítalastíg 4B í framhaldi af umferðarkvöð á lóð 6. Byggingamagn á Spítalastíg 4 eykst sem nemur flatarmáli undirganga. Byggingarreitur fyrir Spítalastíg 4B og 6B verður færður um 3m til vesturs. Lóðamörkum milli 4B og 6B verður jafnframt breytt þannig að þau skipta byggingarreit í tvo jafna helminga. Lóðastærðir breytast eins og kemur fram í skilmálatöflu og gert er ráð fyrir tveim bílastæðum við austurgafl Spítalastígs 6B. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:30 – 16:00 frá 9. febrúar 2023 til og með 24. mars 2023. Einnig má sjá tillögurnar á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 24. mars 2023. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 9. febrúar 2023 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipula ssvið Auglýsing um tillögur að breyttu deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Mófuglarnir okkar, sérstaklega heiðlóan og spóinn, eiga hug og hjörtu okkar Íslendinga. Sama er að segja um aðrar ábyrgðartegundir okkar eins og lóuþræl, stelk og jaðr­ akan, en yfir 20% af Evrópustofni þessara tegunda eiga sér varplönd á Íslandi. Þessir vinir okkar hafa flestir verið friðaðir í marga áratugi, allir friðaðir frá 1914 nema spóinn sem var loksins friðaður 1954 þegar ný lög voru sett með vísun í Parísar­ samkomulagið svokallaða um fugla­ vernd. Eini mófuglinn sem leyft hefur verið að veiða tímabundið á hverju ári er rjúpan. Á síðustu öld var hún þó stundum alfriðuð þegar stofninn var í lágmarki. Enginn ágreiningur hefur verið um friðun mófuglanna þótt deilt hafi verið um veiðitíma á rjúpu, sérstaklega á síðari árum. Íslendingar vilja að við verndum þessa sambýlinga okkar í samræmi við alþjóðlegar skuld­ bindingar okkar. Það skýtur því skökku við að við skulum ekki vernda heimili þessara fugla. Það dugir ekki að banna skot­ veiðar eða dráp einstaklinga með öðrum hætti ef við verndum ekki búsvæði þeirra eins og við höfum skuldbundið okkur til að gera með aðild að alþjóðlegum samningum. Nú ber svo við að íslensk stjórn­ völd boða herferð gegn heimilum þessara vina okkar með loftslags­ vána til réttlætingar. Það á að rústa mólendinu til að rækta skóga með framandi ágengum tegundum eins og stafafuru og sitkagreni sem gætu skilað „skógarafurðum“; nýrri „auð­ lind“ auk þess að binda kolefni úr andrúmslofti. Það á sem sagt bæði að eiga kökuna og éta hana. Vilja Íslendingar þessa boðuðu vegferð stjórnvalda eða vernda heimili mófuglanna okkar og ásýnd landsins, sem mun breytast verulega með skógum stórvaxinna barrtrjáa? Ég held ekki. Við elskum mófuglana okkar og mólendin. Við viljum ekki að óprúttnir aðilar selji heimkynni fuglanna okkar til aðila sem vilja búa til kolefniseiningar með því að rústa mólendinu til að fegra aðra skítugri starfsemi sína. Það er umhugsunarvert að opinber stofnun, Skógræktin, skuli hafa for­ göngu um að draga hingað erlenda aðila í þessum tilgangi. Siglt er undir fölskum flöggum með loforðum um kolefnisjöfnun og vottun kolefnis­ eininga (sbr. upplýsingar á vefnum natturuvinir.is). Sé vilji til að halda lóunni og spóanum hér megum við ekki láta skógræktaræðið, sem byggt er á mjög vafasömum for­ sendum, spilla heimilum þeirra. En það er fleira en búsvæði fugla sem mun breytast við skógrækt með stórvöxnum framandi tegundum. Það þarf ekki að fara víða um landið til að sjá að ásýnd landsins mun gerbreytast. Þá er ljóst að skógrækt mun hafa gríðarleg áhrif á jarð­ fræðilega og líffræðilega fjölbreytni, ekki síst á þá fjölbreytni landslags sem Ísland er þekkt fyrir. Ekki má Verndum mófuglana Jón Gunnar Ottósson fyrrverandi for- stjóri Náttúru- fræðistofnunar Íslands gleyma að skógrækt getur einnig haft mikil áhrif á minjar og menn­ ingarlandslag. Allt þetta sem hér hefur verið nefnt er að öllum líkindum undir­ staða þess að ferðamenn hafa um langa hríð haft mikinn áhuga á landinu. Við skógrækt er því margt í húfi og eins og Sigurður H. Magn­ ússon og Hans H. Hansen benda á í nýlegri grein sem birt hefur verið á vefnum natturuvinir.is þarf að fara fram með mikilli gát og nauð­ synlegt að skipuleggja skógræktina vandlega ef ekki á illa að fara. Þar eiga ekki aðeins áhugamenn um skógrækt að ráða för heldur einnig og ekki síður þeir sem þekkingu og skilning hafa á þeim þáttum sem hér hafa verið nefndir. Sýnum skynsemi og höfum var­ úðarregluna að leiðarljósi. n Nú ber svo við að íslensk stjórnvöld boða herferð gegn heimilum þessara vina okkar með loftslags­ vána til réttlætingar. Fréttablaðið skoðun 139. Febrúar 2023 FIMMTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.