Fréttablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 22
Nú er staðan bara
þannig að við getum
alveg eins lagt niður
fótboltaliðið ef við
fáum ekki betri
aðstöðu.
Samúel Samúelsson, formaður
meistaraflokksráðs Vestra
Samúel Samúelsson, formaður
meistaraflokksráðs Vestra á
Ísafirði, segir brýnt að aðstaða
félagsins til knattspyrnuiðk-
unar verði bætt hið snarasta.
Hann fagnar því að bæjaryfir-
völd stefni á framkvæmdir á
svæðinu en segir mikilvægt að
farið sé í þær af heilum hug.
helgifannar@frettabladid.is
Fótbolti „Það er löngu orðið tíma-
bært að fá bætta aðstöðu. Við erum
búin að vera öll þessi ár með enga
vetraraðstöðu en nú er staðan bara
þannig að við getum alveg eins lagt
niður fótboltaliðið ef við fáum ekki
betri aðstöðu,“ segir Samúel.
Veðurfarið undanfarið hefur
verið ansi slæmt til knattspyrnu-
iðkunar. Einn óupphitaður gervi-
grasvöllur er á svæði Vestra en lítið
er hægt að nota hann til æfinga yfir
veturinn.
„Við getum ekki ætlast til að allir
séu í þessu af öllu hjarta, leikmenn,
þjálfarar, stuðningsmenn og styrkt-
araðilar, þegar við getum ekkert æft.
Þetta er eins og að vera með fullt af
fiski en ekkert frystihús til að vinna
hann í,“ segir Samúel.
Þetta hefur mikil áhrif á undir-
búning liðsins fyrir hvert tímabil.
Vestri keppir í Lengjudeild karla.
Samúel segir hins vegar að menn
reyni allt sem þeir geti til að hafa
liðið tilbúið.
„Það segir sig sjálft að undirbún-
ingurinn hjá Vestra yfir þessa mán-
uði er fótboltalega enginn. Menn
geta hlaupið og lyft en fótboltalega
er hann enginn. Það er gríðarlega
slæmt. Það er aldrei neitt óraunhæft.
Það er allt hægt. En þetta hjálpar
okkur ekkert, að vera ekki með
aðstöðu. Í mikilli hreinskilni sagt
er það erfitt að vera með fótbolta-
lið sem æfir helminginn af árinu og
ætlast til að það keppi við lið sem
æfa allt árið. Það skerðir möguleika
okkar mikið.“
Myndi breyta öllu
Það stendur til hjá Ísafjarðarbæ
að leggja gervigras á keppnisvöll
Vestra.
„Það er jákvætt. En ég hef svo
sem ekki fengið það staðfest. Ef Ísa-
fjarðarbær fer í þetta með hálfum
hug, eins og þegar þau fóru í útboð
þegar þau ætluðu að bjóða út knatt-
spyrnuhús, þá gengur það ekki. Þau
vildu fá knattspyrnuhús en vildu
ekki borga fyrir það.“
Samúel leggur mikla áherslu á
að nýtt gervigras verði með upp-
hitunarkerfi undir, verði það lagt á
annað borð.
„Við erum í engu betri stöðu ef
við fáum gervigras sem er ekki upp-
hitað. Þetta eru eðlilegar kröfur, að
þetta sé eins og hjá öðrum, það sé
upphitað, vökvunarbúnaður í því
og slíkt til að það sé hægt að sinna
þessu almennilega.“
Gott gervigras yrði mikil búbót
fyrir knattspyrnusamfélagið á Ísa-
firði. Meistaraflokkur gæti þá æft
fyrir fyrir vestan og spilað þar leiki
á undirbúningstímabilinu.
„Þetta myndi breyta öllu fyrir
okkur. Við þurfum að sækja hverja
einustu æfingu eða leik yfir vetrar-
tímann annað, með tilheyrandi
kostnaði. Auðvitað myndi það
spara okkur helling að fá Lengju-
bikarsleiki hingað heim, að geta æft
hérna heima. Við gætum verið með
hópinn okkar miklu fyrr hérna. Þeir
þyrftu ekkert að fara og gætu bara
æft hér eftir tímabil. Við erum með
mikið af erlendum leikmönnum.
Þeir fara svo bara heim eftir tímabil
og koma aftur að vori. Það er ekki
boðlegt og ekki vænlegt til árang-
urs.“
Áður hefur verið greint frá því að
Ísafjarðarbær stefni að því að leggja
gervigras á aðalvöll Vestra fyrir
keppnistímabil næsta árs, 2024.
„Við trúum og treystum á að það
verði. Það eru 200 milljónir komnar
á fjárhagsáætlun en við vitum að
það er ekki nóg. Ef þú ætlar að gera
þetta almennilega þarftu pottþétt
250 milljónir. Bærinn hefur hingað
til getað bætt peningum í eitthvað
sem þarf að kosta aðeins meira.
Þau verða að átta sig á því að þau
þurfa að klára þetta verkefni sóma-
samlega, ekki bara út frá einhverri
ákveðinni upphæð.“
Engar fótboltaæfingar
Davíð Smári Lamude tók við þjálfun
meistaraf lokks karla hjá Vestra í
haust. Samúel segir hann ekki hafa
fengið tækifæri til að vinna með lið-
inu eins og hann myndi vilja vegna
aðstöðuleysis.
„Hann vissi hver staðan væri og
hvernig þetta yrði. Jafnframt fórum
við líka yfir hvað stæði til að gera.
Þrátt fyrir að Davíð sé grjótharður
og til í allt þá held ég að þetta hafi
komið honum aðeins á óvart því
hann hefur ekki getað tekið neina
fótboltaæfingu með liðið. Í þessi
skipti sem er æft úti er bara æft í
snjó og klaka. Þú ert ekki að drilla
uppspilið eða slíkt.“
Samúel hrósar Davíð hins vegar
fyrir framlag sitt til félagsins hingað
til.
„Hann og strákarnir hans leggja
sig samt alla fram við að undirbúa
sig eins og þeir geta en það er tak-
markað hvað er hægt að undirbúa
sig við þessar aðstæður.“
Samúel skorar á Ísafjarðarbæ að
ráðast í framkvæmdirnar að fullu.
„Það dugar ekki bara að setja
gervigras á Olís-völlinn. Þau verða
að skipta um gervigras á núverandi
velli. Ef það færi bara gervigras á
Olís-völlinn sinnir það aldrei öllu
knattspyrnustarfi hjá Vestra. Við
þurfum að skipta um gervigras á
núverandi velli, þó svo að hann
verði ekki upphitaður, og fá svo
upphitun á keppnisvöllinn.“
Þó að gervigras verði lagt á næst-
unni bindur Samúel vonir við enn
meiri framkvæmdir á knattspyrnu-
svæði Vestra einn daginn.
„Að sjálfsögðu vil ég í framtíðinni
fá knattspyrnuhús því þetta er eini
landshlutinn þar sem er ekkert
slíkt.“
Vilji til staðar hjá bænum
Aðspurð segir Arna Lára Jónsdóttir,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, ekki
ákveðið með hvaða hætti fram-
kvæmdirnar á nýju gervigrasi
Vestra verður, hvort völlurinn verði
með hitakerfi undir eða ekki.
„Við erum ekki komin að niður-
stöðu. Við erum að skoða hvaða leið
er best. Við erum að skoða mismun-
andi gras og reyna að gera sem mest
fyrir það fjármagn sem við höfum
áætlað í verkefnið,“ segir Arna í sam-
tali við Fréttablaðið.
Arna segir alla í bæjarstjórn af
vilja gerða til að bæta knattspyrnu-
aðstöðuna fyrir vestan. „Við erum
í góðu samstarfi við knattspyrnu-
hreyfinguna og það er okkar sam-
eiginlega markmið að gera þetta
vel. Þetta snýst að sjálfsögðu um
fjármagn.“
Hvað varðar enn frekari fram-
k væmdir á knattspyrnusvæði
Vestra, líkt og byggingu knatthúss,
segir Arna það þurfa að bíða betri
tíma.
„Við erum ekki að fara að gera
það að sinni. Við höfum ekki fjár-
hagslega burði til þess. Þess vegna
var ákveðið að fara þá leið að setja
gervigras.“ n
Brýnt sem aldrei fyrr að aðstaðan verði bætt
Samúel Samú-
elsson (lengst
til hægri), for-
maður meist-
araflokksráðs
Vestra, fylgist
með leik.
Mynd/Sigurður
Elvar ÞórólfSSon
Davíð Smári
Lamude (fyrir
miðju) er þjálfari
Vestra. Hann á
stórt verk fyrir
höndum í sumar.
Þá etur liðið
kappi í Lengju-
deild karla.
Mynd/aðSEnd
Arna Lára
Jónsdóttir,
bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar
14 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 9. FeBRúAR 2023
FiMMtUDAGUr