Fréttablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 Það er eitthvað svo innilega fal- legt, göfugt og til eftirbreytni að sjá fólk vinna starfið sitt, sama hvað það er, af heilindum, metnaði og stolti. Það eru svo mörg störf sem eru bæði erfið og slítandi þó að sumir líti jafnvel niður á þau. Þó að það segi nú mest um þá sjálfa. Þetta er undarlegt. Við vitum til dæmis öll hvernig heimilin okkar líta út þegar enginn þrífur og gengur frá. Hlutirnir gerast nefnilega ekki af sjálfu sér. Og f lestum finnst nógu erfitt og leiðinlegt að þrífa eftir sig sjálfa og sína nánustu, hvað þá ókunn- ugt fólk. Af hverju hömpum við ekki meira störfunum sem fela í sér þrif og frágang? Það færi allt á hliðina í sam- félögum þar sem enginn vildi þrífa neitt, sækja ruslið og svo framvegis, eins og dæmin mörg sanna. Rutger Bregman sagnfræðingur sagði frá því að eitt sinnið þegar fólk sem sótti ruslið í New York- borg fór í verkfall var lýst yfir neyðarástandi í borginni og það grátbeðið að koma aftur eftir nokkra daga. Þegar bankamenn fóru í verk- fall (á Írlandi) gerðist ekkert í hálft ár. Ætlunin er samt ekki að gera hér lítið úr störfum einnar stéttar á kostnað annarrar. En það getur samt verið gott að velta þessu fyrir sér. Öll störf eru mikilvæg, alveg eins og við erum öll mikilvæg. Ég vona að við sem samfélag berum gæfu til að sjá til þess að allir geti lifað mannsæmandi lífi af launum sínum og borið höfuðið hátt. n Til eftirbreytni Ebbu Guðnýjar Guðmundsdóttur bakþankar | Nýr litur getur breytt rýminu. Við erum með allt fyrir málningarverkefnið þitt PRÓFUM NÝJA LITI SAMAN Sparaðu tíma og gerðu einfaldari innkaup á netto.is Fyrir fólk í leit af nýjum tækifærum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.