Fréttablaðið - 09.02.2023, Page 21
Vesturgata 61
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. janúar
2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.133.1, Landhelgisgæslureits,
vegna lóðarinnar nr. 61 við Vesturgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir
þ.e. Vesturgata 61 og Seljavegur 8. Á hvorri lóð er skilgreindur byggingarreitur og leyfilegt að byggja eitt
íbúðarhús innan hvors reits. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Mosavegur hjúkrunarheimili
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. janúar
2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Spöngina, einingu H, vegna
hjúkrunarheimilis við Mosaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er ný lóð 9750 m2 að stærð.
Heimildum til uppbyggingar á svæðinu er breytt þannig að í stað íþróttahúss og sundlaugar verði heimilt
að byggja 3-5 hæða hjúkrunarheimili með allt að 145 rýmum og tengdri þjónustu. Settir eru sérskilmálar
fyrir uppbygginguna. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Spítalastígur 4, 4B, 6 og 6B
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. janúar
2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.0, Bergstaðastrætisreita,
vegna lóðanna nr. 4, 4B, 6 og 6B við Spítalastíg. Í breytingunni sem lögð er til felst að kvöð um umferð
á lóð Spítalastígs 4 að Spítalastíg 4B verður felld út og þess í stað verður sett kvöð á allar lóðir um
umferð að Spítalastíg 4B í framhaldi af umferðarkvöð á lóð 6. Byggingamagn á Spítalastíg 4 eykst sem
nemur flatarmáli undirganga. Byggingarreitur fyrir Spítalastíg 4B og 6B verður færður um 3m til vesturs.
Lóðamörkum milli 4B og 6B verður jafnframt breytt þannig að þau skipta byggingarreit í tvo jafna helminga.
Lóðastærðir breytast eins og kemur fram í skilmálatöflu og gert er ráð fyrir tveim bílastæðum við austurgafl
Spítalastígs 6B. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð,
virka daga kl. 8:30 – 16:00 frá 9. febrúar 2023 til og með 24. mars 2023. Einnig má sjá tillögurnar á vefnum,
www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa
eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 24. mars 2023. Vinsamlegast notið uppgefið
netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 9. febrúar 2023
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipula ssvið
Auglýsing um tillögur
að breyttu deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér
með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Mófuglarnir okkar, sérstaklega
heiðlóan og spóinn, eiga hug og
hjörtu okkar Íslendinga. Sama er
að segja um aðrar ábyrgðartegundir
okkar eins og lóuþræl, stelk og jaðr
akan, en yfir 20% af Evrópustofni
þessara tegunda eiga sér varplönd
á Íslandi. Þessir vinir okkar hafa
flestir verið friðaðir í marga áratugi,
allir friðaðir frá 1914 nema spóinn
sem var loksins friðaður 1954 þegar
ný lög voru sett með vísun í Parísar
samkomulagið svokallaða um fugla
vernd. Eini mófuglinn sem leyft
hefur verið að veiða tímabundið á
hverju ári er rjúpan. Á síðustu öld
var hún þó stundum alfriðuð þegar
stofninn var í lágmarki. Enginn
ágreiningur hefur verið um friðun
mófuglanna þótt deilt hafi verið
um veiðitíma á rjúpu, sérstaklega á
síðari árum. Íslendingar vilja að við
verndum þessa sambýlinga okkar
í samræmi við alþjóðlegar skuld
bindingar okkar.
Það skýtur því skökku við að við
skulum ekki vernda heimili þessara
fugla. Það dugir ekki að banna skot
veiðar eða dráp einstaklinga með
öðrum hætti ef við verndum ekki
búsvæði þeirra eins og við höfum
skuldbundið okkur til að gera með
aðild að alþjóðlegum samningum.
Nú ber svo við að íslensk stjórn
völd boða herferð gegn heimilum
þessara vina okkar með loftslags
vána til réttlætingar. Það á að rústa
mólendinu til að rækta skóga með
framandi ágengum tegundum eins
og stafafuru og sitkagreni sem gætu
skilað „skógarafurðum“; nýrri „auð
lind“ auk þess að binda kolefni úr
andrúmslofti. Það á sem sagt bæði
að eiga kökuna og éta hana.
Vilja Íslendingar þessa boðuðu
vegferð stjórnvalda eða vernda
heimili mófuglanna okkar og
ásýnd landsins, sem mun breytast
verulega með skógum stórvaxinna
barrtrjáa? Ég held ekki. Við elskum
mófuglana okkar og mólendin. Við
viljum ekki að óprúttnir aðilar selji
heimkynni fuglanna okkar til aðila
sem vilja búa til kolefniseiningar
með því að rústa mólendinu til að
fegra aðra skítugri starfsemi sína.
Það er umhugsunarvert að opinber
stofnun, Skógræktin, skuli hafa for
göngu um að draga hingað erlenda
aðila í þessum tilgangi. Siglt er undir
fölskum flöggum með loforðum um
kolefnisjöfnun og vottun kolefnis
eininga (sbr. upplýsingar á vefnum
natturuvinir.is). Sé vilji til að halda
lóunni og spóanum hér megum
við ekki láta skógræktaræðið, sem
byggt er á mjög vafasömum for
sendum, spilla heimilum þeirra.
En það er fleira en búsvæði fugla
sem mun breytast við skógrækt með
stórvöxnum framandi tegundum.
Það þarf ekki að fara víða um landið
til að sjá að ásýnd landsins mun
gerbreytast. Þá er ljóst að skógrækt
mun hafa gríðarleg áhrif á jarð
fræðilega og líffræðilega fjölbreytni,
ekki síst á þá fjölbreytni landslags
sem Ísland er þekkt fyrir. Ekki má
Verndum mófuglana
Jón Gunnar
Ottósson
fyrrverandi for-
stjóri Náttúru-
fræðistofnunar
Íslands
gleyma að skógrækt getur einnig
haft mikil áhrif á minjar og menn
ingarlandslag.
Allt þetta sem hér hefur verið
nefnt er að öllum líkindum undir
staða þess að ferðamenn hafa um
langa hríð haft mikinn áhuga á
landinu. Við skógrækt er því margt
í húfi og eins og Sigurður H. Magn
ússon og Hans H. Hansen benda á
í nýlegri grein sem birt hefur verið
á vefnum natturuvinir.is þarf að
fara fram með mikilli gát og nauð
synlegt að skipuleggja skógræktina
vandlega ef ekki á illa að fara. Þar
eiga ekki aðeins áhugamenn um
skógrækt að ráða för heldur einnig
og ekki síður þeir sem þekkingu og
skilning hafa á þeim þáttum sem
hér hafa verið nefndir.
Sýnum skynsemi og höfum var
úðarregluna að leiðarljósi. n
Nú ber svo við að
íslensk stjórnvöld
boða herferð gegn
heimilum þessara vina
okkar með loftslags
vána til réttlætingar.
Fréttablaðið skoðun 139. Febrúar 2023
FIMMTuDAGuR