Milli mála - 2022, Page 57
MILLI MÁLA
56 Milli mála 14/1/2022
Við vinnum þannig með þau að þau geti verið með öllum. [...] en svo dreg
ég þau í sæti til þess að þau sko venjist öllum, þú veist, séu tilbúin til þess
að vera með öllum. (Erla, bekkjarkennari)
Notkun fjölbreyttra, aldurssamsvarandi kennsluaðferða og sköpun
öruggs rýmis þar sem nemendur geta spurt alls konar spurninga
stuðlar að þátttöku og vellíðan nemenda í bekknum. Anna lýsti því
hvernig nemendur hennar í sjöunda bekk voru forvitnir um réttindi
sín og reglur:
Alltaf krakkar [...] bara spyrja hvenær má að vinna, hvaða lög eru eitthvað,
af hverju bara má vera úti til klukkan til dæmis tuttugu og af hverju eru
svona og alltaf að spyrja svo mikið um barnaréttindi hérna á Íslandi og
hvernig gerir í Póllandi [...] (Anna, móðurmálskennari)
Anna greindi frá mjög sjaldgæfum samskiptum grunnskóla og
móðurmálsskóla, þar sem hún var beðin um að aðstoða við greiningu
nemanda síns, en hún lýsti líka eigin frumkvæði að því að ná til
bekkjarkennara og færa þeim skilaboð um nemendur sína:
Stundum ég var, til dæmis, ég man hvar ég byrjaði og ég sá ég veit svona
krakki með lesblindu. Ég sá það mjög vel frá því ég var í kennslu, ég var
að skoða heimavinnu og ég var alltaf að spyrja foreldra hvernig gengur í
íslenskum skóla og ég var að segja kannski gott að segja kennaranum að
ég sé svona líka í pólsku og kannski þetta er lesblinda [...] Eða stundum
foreldra koma svo eftir frá skóla og segja: „Já, kennari var að segja svona.“
Íslenskukennari bara segja: „Já, þetta er svona málið, kannski við eigum
tékka það, bara hvernig er líka í pólska, getir þú skrifað eitthvað bréf?“
Það er bara svona grunnupplýsingar. (Anna, móðurmálskennari)
Tilvik 5 Clara
Þema 3 í tilviki Clöru segir að aðferðir og nálganir kennara byggi
á þekkingu þeirra á nemendum, gildum og skoðunum, frekar en á
samstarfi og sameiginlegri nálgun skólans. Hekla, bekkjarkennari
Clöru, þekkti tungumál nemenda sinna vel:
FJÖLTYNGDAR KENNSLUAÐFERÐIR OG NÁLGANIR Í TUNGUMÁLAKENNSLU
10.33112/millimala.14.1.3