Milli mála - 2022, Blaðsíða 167
MILLI MÁLA
166 Milli mála 14/1/2022
í grein sinni um tungumálakennslu í Póllandi að „[...] though dic-
tionary skills should be taught, some of the previously mentioned
results seem to indicate that they are, to a large extent, neglected in
the language classroom“ (2013, 190). Marello kemst að þeirri niður-
stöðu í grein sinni um notkun rafrænna orðabóka í snjallsímum að
„the experiment has shown that without knowing how to consult
a dictionary the user does not take full advantage of the electronic
dictionary [...]“ (2014, 78). Onieva Palomar tekur í sama streng þegar
hann bendir á að hjá kennurum jafnt sem annarsmálsnemum á Spáni
sé þekkingu og kunnáttu í notkun orðabóka ábótavant sökum þess
að engin fræðsla eða þjálfun sé í boði í orðabókarnotkun (2022, 43).
2. Erasmus Mundus og MULTIELE-námsleiðin
við Háskóla Íslands
Tildrög þess að námskeiðið „Orðabókarfræði/Orðabókin í tungu-
málanámi og -kennslu“ er kennt í spænsku við Háskóla Íslands eru
þau að kennarar í deildinni tóku, ásamt spænskukennurum í öðrum
evrópskum háskólum, þátt í að smíða sameiginlega námsleið3 sem
hlaut Erasmus Mundus styrk frá Evrópusambandinu á árunum frá
2010 til 2016. Þessi sameiginlega námsleið í kennslu spænsku sem
annars máls fékk heitið MULTIELE – Master‘s degree in Learning and
Teaching of Spanish in Multilingual and International Context. Markmið
námsins var að mennta og þjálfa nemendur í að kenna spænsku sem
annað mál í mismunandi samfélags- og menningarlegu umhverfi og
í mismunandi málsamfélögum. Um tveggja ára nám var að ræða sem
spannaði fjórar annir. Námið samsvaraði 120 eininga (ECTS) námi
á meistarastigi sem er alla jafna tveggja ára nám að BA-námi loknu.
Nemendur sem hlutu styrk til námsins komu víða að úr heiminum
en sú krafa var gerð að nemandi talaði afbragðsgóða spænsku, þ.e. C1
samkvæmt Evrópurammanum. Hvað varðar ensku skyldi nemandi
3 Evrópsku háskólarnir voru eftirfarandi: Stokkhólms-háskóli í Svíþjóð, Groningen-háskóli í
Hollandi, Freie Universität í Berlín, Þýskalandi, Deusto-háskóli í Bilbao á Spáni, Pompeu
Fabra-háskóli í Barcelona, Spáni, Háskólinn í Barcelona á Spáni og Háskóli Íslands. Fimm háskólar
í öðrum heimsálfum tóku þátt í samstarfinu. Í Asíu voru það Osaka-háskóli í Japan, Jawaharlal
Nehru-háskóli í Nýju Dehli, Indlandi, og Málvísindaháskólinn í Moskvu, Rússlandi. Í Ameríku
voru það Campinas-háskóli í Brasilíu og Maryland-háskóli í Bandaríkjunum.
ORÐABÆKUR, TUNGUMÁLANÁM OG TUNGUMÁLAKENNSLA
10.33112/millimala.14.1.8