Milli mála - 2022, Síða 170
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 169
3 .1 .1 . Skipulag námskeiðsins
Námskeiðinu er skipt í fjóra hluta. Hér verður í stuttu máli gerð
grein fyrir hverjum hluta fyrir sig.
3 .1 .1 .1 . Fyrsti hluti: Tegundarflokkun og orðabókarskipan
Í fyrsta hluta námskeiðsins er það á hendi nemenda að undirbúa og
kynna í fyrirlestri það helsta sem lýtur að byggingu og skipan orða-
bókarinnar. Hér er völdum köflum handbókarinnar fylgt, þ.e. þeim
sem fjalla um tegundarflokkun orðabóka, orðabókarskipan, flokka
skilgreininga, rafrænar orðabækur, skólaorðabækur og tvímálaorða-
bækur. Kynningunni skal fylgja samantekt sem samnemendur fá
í hendur fyrir kennslustundina. Innihald, efnistök og framsetning
efnis er síðan útgangspunktur fyrir umræður í tímum.
Í fyrsta fyrirlestrinum er fjallað um tegundaflokkun orðabóka og
hvað einkennir hvern flokk. Nefna skal helstu flokka til sögunnar
og hvað það er sem aðgreinir einmálaorðabækur annars vegar frá tví-
málaorðabókum og hins vegar frá margmálaorðabókum. Gera skal
grein fyrir muninum á almennum orðabókum og sérhæfðum orða-
bókum, valkvæðum orðabókum og normkvæðum orðabókum, rað-
venslaorðabókum og staðvenslaorðabókum, inntaksskipuðum orða-
bókum og segðarskipuðum orðabókum, ásamt því að draga fram
muninn á skólaorðabókum, einmála orðabókum fyrir annars máls
nema, m.m.
Þá fylgir fyrirlestur þar sem gera skal grein fyrir heildarskipan og
meginskipan orðabóka, efnisvali, flettuvali, lemmun og mögulegri
skipan orðaflettanna í orðabókum (inntaksskipuð, segðarskipuð),
inngangi, notkunarleiðbeiningum, skammstafanaskrá, skrá yfir tákn
sem koma fyrir í orðabókinni ásamt leturgerð, viðauka eða viðaukum.
Innskipan orðabóka er í brennidepli í þriðja fyrirlestrinum.
Orðsgreinarskipan er skýrð ásamt helstu hugtökum stoðmálsins sem
koma fyrir í orðsgreinum. Má til að mynda nefna upplýsingar um
framburð, skiptingu í atkvæði, málfræðiupplýsingar, skilgreiningar
(eiginmerkingu og aukamerkingu), margræði, samheiti og andheiti.
Auk þess er orðmyndun, samkvæði og samgervi, notkunardæmum
og fleiryrtum orðum gerð skil. Jafnframt skal athyglinni beint að
ERLA ERLENDSDÓTTIR