Milli mála - 2022, Síða 263
MILLI MÁLA
262 Milli mála 14/1/2022
Heimildirnar eru teknar saman í viðauka (B) og þeim raðað
eftir því hvort þær hafa að geyma aðgang að rafrænu námsefni fyrir
börn – ýmist þeim að kostnaðarlausu eða gegn áskriftargjaldi – eða
fræðsluefni sem höfðar til kennara og foreldra, m.a. um tungumála-
kennslu barna, tvítyngi, málefni innflytjenda, o.fl. Stutt lýsing á
heimild og innihaldi hennar fylgir hverri færslu á heimildayfirlitinu.
Allt efni sem stóðst gefin skilyrði (það er sem hentar kennslu barna
eða leggur áherslu á kennslu íslensku sem annars máls og sem hægt
er að sækja á netinu notanda að kostnaðarlausu) kom til greina og
var þá skráð eftir kerfi sem lýst er í kafla 5.1. Ekki var gerð frekari
tilraun til greiningar á kennslufræðilegu gildi efnisins eða gæðum á
þessu stigi, en gæðamat fellur utan markmiða rannsóknarinnar. Hins
vegar fylgir hverri krækju lýsing eins og fram kemur hér fyrir neðan.
Eftir að öllum heimildum hafði verið safnað hófst skráning á öllu
því námsefni sem hægt var að nálgast á netinu án endurgjalds. Búið
var til eitt skráningarskjal fyrir hverja námsefnisveitu, t.d. Fræðsluskot,
og tengli bætt við viðkomandi færslu. Eftirfarandi upplýsingar um
námsefnið voru skráðar í dálkum: heiti námsefnis, áhersla á mál-
lega þætti, markhópur, gerð efnis (t.d. PDF-snið, rafbók, smáforrit,
o.s.frv.) og stutt lýsing á því. Slóð þar sem sækja má efnið beint af
netinu var einnig sett inn í sérdálk, og dálkur merktur „annað“ er
hafður með þar sem skrá má tilfallandi upplýsingar sem gætu komið
að gagni.
1.2.2 Könnun
Hönnun rafrænnar könnunar hófst um miðjan júlí í samvinnu við
utanaðkomandi kennara í hlutverki ráðgjafa. Spurningar í henni
voru hannaðar í samræmi við rannsóknarspurningar. Könnunin var
búin til með forritinu Google Forms. Ákveðið var að búa til könnun
á tveimur tungumálum, íslensku og ensku, til þess að gefa þeim
foreldrum og forráðamönnum sem tala ekki íslensku kost á að svara.
Könnuninni var skipt í þrjá hluta með alls átján spurningum um
bakgrunn svarenda þar sem spurt var um fjölda barna á heimili,
aldur og kyn þeirra, fjölda foreldra og forráðamanna á heimili og
móðurmál þeirra, tungumál sem töluð eru á heimilinu, og um búsetu
fjölskyldunnar; spurningar um íslenskunám heima, t.d. hversu oft í
KORTLAGNING RAFRÆNS NÁMSEFNIS Í ÍSLENSKU SEM ÖÐRU MÁLI FYRIR BÖRN OG
VIÐHORF FJÖLSKYLDNA TIL NOTKUNAR Á NÁMSEFNI Í SJÁLFSNÁMI BARNA
10.33112/millimala.14.1.12